Skessuhorn - 01.07.2015, Síða 38
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 201538
Hvað ætlar þú að gera á helgi
Írskra daga?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Elín Birta Kolbeinsdóttir:
Fara með litla frænda minn í
leiktæki.
Sigurþór Guðmundsson:
Ég ætla bara að vera heima í
sveitinni, á Hóli í Svínadal.
Álfheiður Gunnsteinsdóttir:
Ég ætla á æskuslóðir í Norður-
fjörð á Ströndum.
Ólafur Eyberg Guðjónsson:
Ég ætla í litboltann ef hann
verður.
Alexandra Arndísardóttir og
Sólon Amír:
Fara með Sóloni syni mínum og
leyfa honum að leika sér út um
allt. Svo á Lopapeysuna.
Í síðustu viku lauk sundnámskeiði
sem haldið er á vegum Sundfélags
Akraness fyrir 1.-4. bekk grunn-
skóla og elstu nemendur leikskóla
bæjarins. Auk þess að skemmta
sér saman í lauginni eru börnun-
um kennd undirstöðuatriði sunds-
ins. Stundum eru þeim undirstöðu-
atriðum fengin skemmtileg dulnefni
á námskeiðinu. Þannig syntu krakk-
arnir til dæmis Súperman-sund,
mörgæsasund og ísbjarnasund.
Að sögn aðstandenda var nám-
skeiðið vel sótt, venju samkvæmt og
mikið fjör hjá krökkunum í lauginni.
kgk
Kvennanefnd Golfklúbbsins Leynis
á Akranesi hélt hið árlega Opna
Helena Rubinstein mót síðastliðinn
laugardag. Mótið fór fram í ágæt-
is veðri á Garðavelli. Um 70 kon-
ur tóku þátt í mótinu og kepptu þar
um glæsilega vinninga, snyrtivörur
frá Helena Rubinstein. Gríðarleg
barátta var um efstu sætin í öllum
flokkum en úrslit mótsins urðu eft-
irfarandi:
Leikforgjöf 0 - 17,9:
1. sæti: Hildur Nielsen GKG, 33
punktar
2. sæti: Anna Snædís Sigmarsdóttir
GK, 32 punktar
3. sæti: Helga Þorvaldsdóttir GR,
30 punktar (fleiri punktar en Ingi-
björg á seinni 9 holunum)
4. sæti: Ingibjörg Ketilsdóttir GR,
30 punktar
Leikforgjöf 18 - 27,9:
1. sæti: Þóra Pétursdóttir GM, 37
punktar
2. sæti: Björg Guðrún Bjarnadóttir
GM, 36 punktar
3. sæti: Þóranna Halldórsdóttir
GL, 36 punktar (fleiri punktar en
hjá Ellu Maríu á seinni 9 holunum)
4. sæti: Ella María Gunnarsdóttir
GL, 36 punktar
Leikforgjöf 28 - 36:
1. sæti: Kolbrún Haraldsdóttir
GVG, 35 punktar
2. sæti: Edda Elíasdóttir GL, 33
punktar (fleiri punktar en hjá Soff-
íu á seinni 9 holunum)
3. sæti: Soffía Margrét Pétursdóttir
GL, 33 punktar
4. sæti: Brynja Guðmundsdóttir
GL, 32 punktar
Á mótinu voru veitt vegleg nánd-
arverðlaun á öllum par 3 brautum
vallarins. Nándarverðlaunin fengu
þær:
3. braut: Arna Magnúsdóttir GL
1,25 m.
8. braut: Svava Skúladóttir GK
0,39 m.
14. braut: Hildur Magnúsdóttir
GL 2,84 m.
18. braut: Ella María Gunnarsdótt-
ir GL 2,62 m.
Auk þessa fengu fimm heppnar
konur veglega vinninga þegar dreg-
ið var úr skorkortum.
„Kvennanefnd Leynis þakkar
öllum þátttakendum kærlega fyrir
þátttökuna í mótinu sem og heild-
versluninni Terma ehf og Verslun-
inni Bjargi á Akranesi fyrir veglegan
stuðning við mótið í ár sem og und-
anfarin ár. Þá er þeim sem hjálpuðu
til við mótshaldið með einum eða
öðrum hætti jafnframt færðar bestu
þakkir.“ grþ
Fyrir nokkru kom það til tals meðal
foreldra í Borgarnesi að þörf væri á
leiksvæði fyrir börnin í Bjargslandi.
Það voru svo þau Birgir Benedikts-
son Waage og Valborg Elva Braga-
dóttir, átta ára gamlir fótboltaiðk-
endur hjá Skallagrími, sem tóku af
skarið og gengu í hús í hverfinu og
söfnuðu undirskriftum. Börnin fóru
ásamt Magnúsi Baldri, bekkjar-
bróður sínum, og afhentu Kolfinnu
Jóhannesdóttur sveitastjóra und-
irskriftarlistann þar sem þau ósk-
uðu eftir leiksvæði, t.d. til að spila
fótbolta. Vel var tekið í hugmynd-
ina og málið var tekið fyrir á fundi
byggðarráðs í október á síðasta ári.
Úr varð að sveitafélagið útvegaði
þökur og stað fyrir völl og foreldrar
tóku síðan að sér vinnuþáttinn. Það
var svo í síðustu viku sem Wembley
var endurreistur en margir muna
eflaust eftir gamla Wembley, en þar
spiluðu börn fótbolta á níunda ára-
tugnum. Völlurinn er kenndur við
þjóðarleikvang Englendinga. Það
vantaði ekki samstöðuna í Borgar-
nesi því að sögn Huldu Waage voru
á bilinu 60-70 manns, auk barna,
sem hjálpuðust að við að undir-
búa og þökuleggja völlinn sem er
1200 fermetrar. Að verki loknu
var þreyttu vinnufólki boðið upp á
grillaðar pylsur að launum.
arg
Líf og fjör á sundnámskeiði
Hluti hópsins sem tók þátt í námskeiðinu í ár. Ljósm. Kristinn Gauti. Samúel Örn kafar í gegnum hring á botni laugarinnar.
Ljósm. Þór Llorens Þórðarson.
Sigurbjörg Helga í kafi. Ljósm. Hildur Karen. Sindri Leó og Christian Darri synda kafsund. Ljósm. Hildur Karen.
Margar konur á Helena
Rubinstein móti á Akranesi
Um sjötíu konur tóku þátt í Helena Rubinstein móti sem haldið var á Garðavelli
síðastliðna helgi í góðu veðri. Sjá má fleiri myndir frá mótinu og verðlaunaaf-
hendingu á Facebooksíðunni Leynisskvísur. Ljósm. Jensína Valdimarsdóttir.
Sjálfboðaliðar að leggja þökur. Völlurinn er sunnan við blokkarbygginguna við
Arnarklett.
Nýr Wembley í Borgarnesi
Valborg Elva og Birgir með skilti sem
gert var fyrir völlinn.
Valborg Elva Magnús Baldur og Birgir
ásamt Kolfinnu Jóhannesdóttur.