Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Síða 6

Skessuhorn - 26.08.2015, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 20156 Feðgar dæmdir fyrir þjófnað VESTURLAND: Feðgar af erlendum uppruna, fæddir 1972 og 1993, voru dæmdir í þriggja mánaða fangelsi í Hér- aðsdómi Vesturlands í gær- morgun. Dómurinn er skilorð- bundinn til þriggja ára. Feðg- arnir voru dæmdir fyrir þjófn- aði og gripdeildir víðsvegar um landið undanfarnar vikur. Þeir höfðu verið í gæsluvarð- haldi frá 12. ágúst síðastliðn- um. Feðgarnir gengust greið- lega við ákærunni enda voru til ljósmyndir og önnur gögn sem sýndu þá við iðju sína. Þá lagði lögreglan hald á ýmsa muni sem að fundust í fórum feðganna og þeir höfðu stol- ið á ferðalagi sínu um landið. Aðferðin sem þeir notuðu oft- ast í þeim verslunum sem þeir stálu úr, var að sá yngri hélt af- greiðslufólkinu uppteknu með frásögnum á meðan sá eldri lét greipar sópa. -mm Leiguíbúðir í sveitarfélögum LANDIÐ: Sveitarfélögin í landinu áttu í lok síðasta árs tæplega 5.000 leiguíbúð- ir samkvæmt nýbirtri skýrslu Varasjóðs húsnæðismála fyr- ir leigumarkaðinn árið 2014. Á Vesturlandi eru 142 leigu- íbúðir skráðar í eigu sveitar- félaga og eru flestar í Borgar- byggð, eða 34, næstflestar, eða 32, eru í Snæfellsbæ. Á Akra- nesi eru 27 leiguíbúðir, 18 í Grundarfirði, 25 í Stykkis- hólmi og 6 í Dalabyggð. Hval- fjarðarsveit á enga leiguíbúð. Í skýrslu varasjóðs kemur fram að lengsti biðtími eftir félags- legu leiguhúsnæði árið 2014 var 30 mánuðir hjá Kópa- vogsbæ og Akraneskaupstað. 29 mánaða bið var í Reykjavík og 24 mánuðir í Hveragerði. Á landsvísu var meðalbiðtími eftir félagslegu leiguhúsnæði 25,6 mánuðir. -mm Mörg hraðabrot mæld VESTURLAND: Síðasta vika hjá Lögreglunni á Vesturlandi var frekar róleg að sögn Theó- dórs Þórðarsonar upplýsinga- fulltrúa embættisins. Alls voru 74 ökumenn stöðvaðir fyrir að aka of greitt. Sá sem ók hrað- ast var karlmaður á bifhjóli á 147 km hraða þar sem að há- marki má aka á 90 km/klst. Erlendur ferðamaður ók á 145 km hraða og staðgreiddi hann sekt sína upp á 97.500 krón- ur á staðnum. Tveir ökumenn voru teknir fyrir að aka und- ir áhrifum áfengis og einn fyr- ir að aka undir áhrifum fíkni- efna en í honum mældist kannabis og opíum. Sex um- ferðaróhöpp urðu í umdæm- inu og öll þeirra minniháttar og slysalaus. Ekið var á þrjú lömb í vikunni, sama fjölda og í síðustu viku. „Nú eru skól- ar að hefjast og mun lögregl- an auka eftirlit sitt með um- ferð ökutækja í nágrenni við þá næstu vikurnar. „Eru öku- menn beðnir um að aka var- lega nærri skólum og þar sem búast má við ungum börnum. Einnig eru ökumenn beðnir um að virða rétt gangandi við gangbrautir,“ segir Theódór. -mm Baldur í slipp í september STYKKISH: Siglingar ferj- unnar Baldurs um Breiðafjörð munu falla niður í nokkra daga í næsta mánuði. Að sögn Gunnlaugs Grettissonar fram- kvæmdastjóra Sæferða er gert ráð fyrir að ferjan fari í slipp seinnihlutann í september. „Hann verður frá í viku. Hann tók niður snemmsumars og það er verið að laga það. Við pössum upp á að þetta verði gert snemma, á meðan veg- ir eru í góðu standi,“ segir Gunnlaugur og bætir við að Særún muni leysa Baldur af og halda uppi farþegaflutn- ingum til Flateyjar á meðan, líkt og verið hefur þegar Bald- ur hefur farið í slipp. Særún er skemmtisiglingaskip Sæferða, sem fer með ferðamenn um eyjasvæðið við innanverðan Breiðafjörð. –grþ Skráðum kött- um ekki lógað Borgarbyggð: Nýverið hand- samaði dýraeftirlitsmaður í Borgarbyggð kött sem síð- an svar lógað. Í kjölfarið hóf- ust deilur um réttmæti þess að lóga þessum tiltekna ketti og öðrum köttum sem handsam- aðir eru af dýraeftirliti bæjar- ins. Á vefsíðu Borgarbyggð- ar er það ítrekað að ákvörð- un um að lóga dýri sé allt- af tekin í samráði við starfs- mann Umhverfis- og skipu- lagssviðs sveitarfélagsins. Þar segir einnig að aldrei hafi ver- ið lógað merktum eða skráð- um heimilisketti sem dýraeft- irlit bæjarins hafi handsamað. Umræddur köttur hafi hvorki verið merktur, örmerktur né á skrá hjá Borgarbyggð. Á vef- síðunni er einnig ítrekað að íbúum beri að skrá dýr sín hjá sveitarfélaginu. –arg Afkomendur Gunnars Bjarnason- ar, kennara og hrossaræktarráðu- nautar, gáfu í sumar FEIF, Alþjóða- samtökum um íslenska hestinn, farandgripinn „Kóngur um stund“. Gripurinn var gefinn til minning- ar um Gunnar sem hefði orðið 100 ára á þessu ári en hann var mikill frumkvöðull í þágu íslenska hests- ins, þjóðkunnur fyrir störf sín að hrossarækt og kynningu íslenska hestsins á erlendri grundu. Grip- urinn er afsteypa minnisvarða um Gunnar sem reistur var á Hvann- eyri fyrir þremur árum en það verk er eftir listamanninn Bjarna Þór Bjarnason á Akranesi. Gripurinn, sem ber hestshöfuð, er gerður eft- ir teikningu Gunnars sjálfs og var bókarmerki hans. Hann er á fót- stalli lerkis úr Hallormsstaðaskógi og á hann eru áletruð þau orð sem eru á minnisvarðanum á Hvann- eyri, ásamt merki heimsmeistara- mótsins. Þá eru einnig á gripnum öll ártöl og staðir þar sem hald- in hafa verið Evrópumót og síðar heimsmeistaramót íslenska hests- ins. Gert í anda frumkvöðulsstarfs Gripurinn var afhentur í fyrsta sinn á heimsmeistaramóti íslenska hestsins, sem haldið var í Hern- ing í Danmörku fyrr í ágúst. Það var Gunnar Sturluson forseti FEIF sem afhenti gripinn. „Árið 1954 stóð Gunnar fyrir því að hefja út- flutning á íslenska hestinum og að Alþjóðasamtök íslenska hests- ins yrðu stofnuð árið 1969. Af- komendur hans vildu þarna minn- ast þess frumkvöðuls sem Gunn- ar var, með því að gefa þennan grip til samtakanna,“ segir Gunn- ar Sturluson í samtali við Skessu- horn. Hann segir stjórn FEIF hafa ákveðið að veita þeim sem stæðu fyrir undirbúningi heimsmeistara- mótanna gripinn. Það voru hjón- in Bo og Maja Hansen sem veittu gripnum viðtöku fyrir hönd und- irbúningsnefndarinnar sem skipu- lagði mótið í ár og munu þau varð- veita hann í tvö ár. „Þetta er gert í anda þessa frumkvöðulsstarfs sem Gunnar stóð fyrir þegar hann stóð fyrir því að FEIF byrjaði að halda Evrópumótin, sem í dag eru heims- meistaramót. Það er mikið átak að koma svona móti heim og sam- an og það var sýn Gunnars að það myndi ýta undir útbreiðslu íslenska hestsins að halda þessi mót.“ Hann bætir því við að draumar Gunn- ars um útbreiðslu íslenska hests- ins hafi ræst. Nú hafi verið haldin tíu Evrópumeistaramót og þrettán heimsmeistaramót íslenska hestsins ásamt því að íslenski hesturinn hafi öðlast aðdáun fólks um heim allan. „Með þessari gjöf vildu afkomend- ur Gunnars færa hamingjuóskir til allra þessara einstaklinga.“ grþ Gripurinn er afsteypa af minnisvarða um Gunnar Bjarnason sem stendur á Hvann- eyri. Gáfu farandgrip til minningar um Gunnar Bjarnason Gunnar Sturluson afhenti hjónunum Bo og Maju Hansen gripinn á heims- meistaramótinu í ágúst. Ljósm. Jón Björnsson.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.