Skessuhorn - 26.08.2015, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 20158
Á annað hundrað
á útigangi
LANDIÐ: Alls var 7.471 íbúi
á landinu búsettur á stofnana-
heimili hinn 31. desember 2011
samkvæmt manntali sem Hag-
stofa Íslands tók þann dag og
kynnt var nú í vikunni. Flest-
ir bjuggu á hjúkrunarheimilum
og heimilum fyrir aldraða, eða
3.853, en 2.545 voru búsettir í
námsmannaíbúðum. Alls voru
812 búsettir á heimilum fyr-
ir fatlað fólk, en 261 með bú-
setu í annars konar stofnunum.
Þá var 761 íbúi án heimilis, þar
af 111 á útigangi og 650 í hús-
næðishraki hinn 31. desemb-
er 2011. Langflestir heimilis-
lausra voru staðsettir á höfuð-
borgarsvæðinu. Karlar voru í
meirihluta meðal heimilislauss
fólks. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
15. - 21. ágúst
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 16 bátar.
Heildarlöndun: 55.150 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 34.880
kg í fjórum löndunum.
Arnarstapi 7 bátar.
Heildarlöndun: 22.005 kg.
Mestur afli: Daðey GK: 6.172
kg í einni löndun.
Grundarfjörður 7 bátar.
Heildarlöndun: 415.244 kg.
Mestur afli: Ljósafell SU:
107.493 kg í einni löndun.
Ólafsvík 24 bátar.
Heildarlöndun: 352.879 kg.
Mestur afli: Brynja II SU:
39.450 kg í sex löndunum.
Rif 19 bátar.
Heildarlöndun: 233.904 kg.
Mestur afli: Sæhamar SH:
38.132 kg í sex löndunum.
Stykkishólmur 2 bátar.
Heildarlöndun: 9.602 kg.
Mestur afli: Blíða SH: 9.019
kg í fjórum löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Ljósafell SU - GRU:
107.493 kg. 17. ágúst.
2. Hringur SH - GRU:
66.880 kg. 19. ágúst.
3. Frosti ÞH - GRU:
61.262 kg. 15. ágúst.
4. Bergur VE - GRU:
51.359 kg. 19. ágúst.
5. Grundfirðingur SH -
GRU: 45.277 kg. 16. ágúst
grþ
Stjórnmálasam-
tök meðlags-
greiðenda í píp-
unum
LANDIÐ: Ákveðið hefur ver-
ið að leggja niður Samtök með-
lagsgreiðenda og er ástæðan
sögð sú að ekki hefur skapast
rekstrargrundvöllur fyrir starf-
inu. Samtökin hafa óskað eftir
þjónustusamningi við stjórnvöld
til að mæta brýnni þörf með-
lagsgreiðenda og fjölskyldna
þeirra, en án árangurs. „Hins
vegar er fyrirhugað að stofna
Stjórnmálasamtök meðlags-
greiðenda og framfærsluþega
sem munu vinna að réttindum
umgengnisforeldra, barna og
framfærsluþega. Nokkur helstu
málefni hinna nýju samtaka eiga
að vera að umgengnistálmanir
verði skilgreindar sem ofbeldi
í almennum hegningarlögum,
að barnaverndaryfirvöldum
verði fengnar auknar valdheim-
ildir, fjármagn og áhersla lögð
á bætta málsmeðferð. Í þriðja
lagi að skerpt verði á lögum til
að mæta heimilisofbeldi með
sértækum aðgerðum. Þá munu
samtökin berjast fyrir auknum
stuðningi fyrir einstæða for-
eldra, helmings umgengni verði
meginreglan í skilnaðarmálum,
að felld verði niður lagaákvæði
og reglugerðir um aukin með-
lög og að meðlagsskylda verði
aflögð.
-mm
Seðlabankinn
hækkaði
stýrivexti
LANDIÐ: Peningastefnu-
nefnd Seðlabanka Íslands hef-
ur ákveðið að hækka vexti bank-
ans um 10 prósent, úr 5,0% í
5,5%. Þetta kom fram í tilkynn-
ingu frá stofnuninni síðast-
liðinn miðvikudag. Þar sagði:
„Meginvextir bankans, vext-
ir á sjö daga bundnum inn-
lánum, verða því 5,5%. Sam-
kvæmt nýbirtri spá Seðlabank-
ans verður árlegur hagvöxtur
rúmlega 4% í ár og u.þ.b. 3%
næstu tvö árin. Á spátímabilinu
er vöxturinn um hálfu prósentu
minni á ári en bankinn spáði í
maí sl. Þetta er þó öflugur vöxt-
ur enda fer framleiðsluspenna
vaxandi á næstu misserum og
hagvöxtur verður í ríkari mæli
en á undanförnum árum drifinn
af innlendri eftirspurn, ekki síst
einkaneyslu. Fjárfesting verður
hins vegar veikari en áður var
spáð og vinnuaflseftirspurn vex
hægar,“ segir í tilkynningu frá
Seðlabanka Íslands.
-mm
Lítið atvinnuleysi
VESTURLAND: Alls voru
um 4680 skráðir án atvinnu hjá
Vinnumálastofnun í júlí síðast-
liðnum og svarar það til 2,6%
atvinnuleysis. Atvinnuleysi
mældist 3,2% meðal kvenna
en 2,0% hjá körlum. Atvinnu-
ástand mældist svipað í júní síð-
astliðnum og áætlað er að skráð
atvinnuleysi í ágúst verði á
bilinu 2,6 – 2,8%. Á Vesturlandi
dró heldur úr atvinnuleysi milli
mánaðanna júní og júlí. Það var
í júlí um 1,6% í landshlutanum.
-mm
Grundarfjarðarbær hefur endur-
nýjað gólfdúkinn í íþróttahúsi bæj-
arins. Gamli dúkurinn var kominn
til ára sinna enda hefur hann legið
þar síðan 1989. Það var fyrirtæk-
ið Sporttæki ehf. sem sá um fram-
kvæmdina en alls var þetta kostn-
aður upp á þrjár og hálfa milljón
króna. Nýi dúkurinn er töluvert
öðruvísi en sá gamli og er þetta
skemmtileg tilbreyting frá því sem
var. Blakvöllurinn er mjög greini-
legur á nýja gólfinu og svo eru
merkingar fyrir körfubolta, hnit
og handbolta eins og áður var. Að-
alsteinn Jósepsson, forstöðumaður
íþróttamannvirkja, var hæstánægð-
ur með nýja gólfið þegar ljósmynd-
ari Skessuhorns fékk að skoða. Hér
stendur hann á nýja dúknum.
tfk
Búið að endurnýja gólfdúkinn í íþróttahúsinu
Það voru stór skref fyrir stutta fætur
þegar börn fyrsta bekkjar Grunn-
skóla Snæfellsbæjar mættu í gær-
morgun í sinn fyrsta tíma. Í þessum
árgangi eru 20 börn og flest þeirra
mjög spennt að koma í skólann.
af
Mætt í skólann
í fyrsta sinn
Gangar grunnskóla Grundar-
fjarðar hafa nú fyllst af glaðvær-
um krakkaómi eftir að hafa ver-
ið hljóðir í allt sumar. Krakkarn-
ir streymdu í skólann eftir hádeg-
ið þriðjudaginn 25. ágúst en þá var
skólinn settur við hátíðlega athöfn
í efri sal skólans. Nýir stjórnend-
ur sáu þá um að bjóða krakkana
velkomna en það eru þeir Sigurð-
ur Gísli Guðjónsson skólastjóri og
Björgvin Sigurbjörnsson aðstoð-
arskólastjóri sem tóku við stjórn
skólans í sumar. Þorsteinn Steins-
son sveitarstjóri bauð þá velkomna
til starfa og leysti þá út með blóm-
um.
tfk
Búið er að sjósetja nýjan Víking
AK-100 í skipasmíðastöðinni Ce-
liktrans í Tyrklandi. Smíðin er á
áætlun og ráðgert að skipinu verði
siglt til Íslands í desember. Systur-
skip Víkings er Venus NS sem kom
til landsins í vor og er nú á makríl-
veiðum. Smíði Víkings hefur mið-
að vel og er það nú nánast búið að
fá endanlegt útlit, fagurblátt og hvítt
í litum útgerðarfélagsins HB Granda
sem er kaupandinn. Þegar smíði Vík-
ings lýkur á tyrkneska skipasmíða-
stöðin að smíða þrjá ísfisktogara fyrir
HB Granda. mm/ Ljósm. Celiktrans.
Nýr Víkingur AK sjósettur
Nýir skólastjórnendur í Grunnskóla Grundarfjarðar. Björgvin er vinstra megin og
Sigurður Gísli til hægri.
Nýir skólastjórnendur í Grunnskóla
Grundarfjarðar