Skessuhorn - 26.08.2015, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 201510
Starfsfólk leikskólans Andabæj-
ar á Hvanneyri hefur sent sveitar-
stjórn Borgarbyggðar bréf þar sem
því er harðlega mótmælt að horf-
ið hafi verið frá því að ráða í stöðu
leikskólastjóra eftir að hún losnaði
í sumar. Staðan hafi verið auglýst
og sótti einn um, starfandi deild-
arstjóri sem starfmenn bera fullt
traust til. Engu að síður hætti sveit-
arstjórn við að ráða í starfið. Þessu
mótmæla starfsmenn harðlega sem
og foreldrafélag skólans en báðir
hópar sendu í vikunni frá sér álykt-
anir um málið.
Bréf starfsmanna
er svohljóðandi:
„Í 5. gr. laga um leikskóla (nr.
90/2008) segir: ,, Við leikskóla skal
vera leikskólastjóri sem stjórnar
starfi hans í umboði rekstraraðila.
Leikskólastjóri stjórnar daglegum
rekstri og starfi leikskóla og gætir
þess að leikskólastarf sé í samræmi
við lög, reglugerðir, aðalnámskrá
leikskóla, skólanámskrá og önn-
ur gildandi fyrirmæli. Leikskóla-
stjóri stuðlar að samstarfi milli for-
eldra, starfsfólks leikskóla og ann-
ars fagfólks með velferð barna að
markmiði. Leikskólastjóri boðar til
kennara- og starfsmannafunda svo
oft sem þurfa þykir.“
Þann 9. júlí síðastliðinn aug-
lýsti Borgarbyggð eftir leikskóla-
stjóra við Andabæ en í auglýsing-
unni stóð að brýnt væri að viðkom-
andi gæti hafið störf í ágúst. Ein
umsókn barst um starfið og kom
hún frá starfandi deildarstjóra á
Andabæ. Sá starfsmaður ber full-
komið traust samstarfsmanna sinna
til að gegna starfi leikskólastjóra og
hefur bæði menntunina og reynsl-
una sem til þarf í starfið, svo ekki
sé minnst á þekkingu á starfsemi
Andabæjar. Þrátt fyrir þessi miklu
gæði er ákveðið á fræðslunefnd-
arfundi þann 11. ágúst síðastlið-
inn að ráða ekki í starfið og var sú
ákvörðun staðfest á sveitarstjórn-
arfundi 13. ágúst. Því hefur ver-
ið leikskólastjóralaust á leikskól-
anum frá og með 1. ágúst og stefn-
ir allt í að það verði svoleiðis fram
að áramótum miðað við fundargerð
fræðslunefndar. Í henni segir: ,, Að
höfðu samráði við verðandi sviðs-
stjóra fjölskyldusviðs Borgarbyggð-
ar er lagt til að fallið verði frá ráðn-
ingu að sinni og fyrirkomulag og
stjórnun leikskólans skoðuð. Þeirri
skoðun verði lokið ekki seinna en
um næstu áramót.“
Starfsmenn leikskólans fordæma
þessa ákvörðun og er það eindreg-
in krafa þeirra að málið verði leyst
sem fyrst. Leikskólar starfa ekki án
leikskólastjóra og samkvæmt lög-
um á hann að vera til staðar. Starfs-
fólk hefur með þrautseigju og elju-
semi náð að halda leikskólanum
gangandi hingað til en ljóst þykir
að ef málið leysist ekki hið snarasta
muni staðan fara að bitna alvarlega
á skólastarfinu. Nú eru viðkvæmir
tímar á leikskólanum, aðlaganir og
börn að færast á milli deilda og það
er ekki boðlegt að starfsfólk þurfi að
hafa áhyggjur af málum sem þessu
á meðan. Í augum okkar er þessi
ákvörðun sveitarstjórnar algjör van-
virðing í garð starfsmanna leikskól-
ans sem og í garð leikskólastarfs í
heild sinni. Við förum því fram
á að ákvörðunin um að hætta við
að ráða leikskólastjóra verði dreg-
in til baka, að virðing verði borin
fyrir umsóknarferlinu og að leik-
skólastjóri verði ráðinn hið fyrsta.
Virðingarfyllst, starfsfólk leikskól-
ans Andabæjar á Hvanneyri.“
Yfirlýsing frá foreldra-
félagi Andabæjar
„Foreldrafélag Andabæjar vill lýsa
yfir óánægju sinni með ástand
mála í leikskólanum. Okkur þyk-
ir það óásættanlegt að ekki skuli
vera starfandi leikskólastjóri í An-
dabæ síðan 1. ágúst. Staða leik-
skólastjóra var auglýst 9. júlí s.l. og
áhersla lögð á að sá aðili yrði að geta
hafið störf strax í ágúst. Í fundar-
gerð frá fræðslunefndarfundi þann
11. ágúst nr. 1508002 kemur fram
“Ein umsókn barst um starfið. Að
höfðu samráði við verðandi sviðs-
stjóra fjölskyldusviðs Borgarbyggð-
ar er lagt til að fallið verði frá ráðn-
ingu að sinni og fyrirkomulag og
stjórnun leikskólans skoðuð. Þeirri
skoðun verði lokið ekki seinna en
um næstu áramót.” Sú umsókn sem
borist hafði var frá núverandi deild-
arstjóra, Ástríði Guðmundsdóttur
sem uppfyllir menntunarkröfur sem
og að hafa reynslu, góða þekkingu á
skólanum og starfsemi hans. Einnig
nýtur hún trausts stjórnar foreldra-
félagsins til að gegna þeirri stöðu,“
segir í ályktun sem foreldrafélagið
samþykkti nýverið.
Foreldrar segjast engin boð hafa
fengið eða útskýringar á stöðu mála
eftir sumarleyfi en það hefur skap-
að óöryggi meðal nemenda og for-
ráðamanna. „Ætla má að það komi
einnig illa fyrir nýja nemendur sem
eru að hefja leikskólagöngu sem og
foreldra þeirra. Við lýsum yfir fullu
trausti til starfsfólks Andabæjar en
það skapar óvissu og óöryggi þeg-
ar ekki er hægt að fá útskýringar á
stöðu mála né vita hvað sé í hyggju
í náinni framtíð. Við viljum koma
á framfæri óánægju með að ekki
hafi átt sér stað samtal við foreldra
né starfsfólk Andabæjar um ástæð-
ur þess að ekki verði ráðið í auglýsta
stöðu leikskólastjóra eða útskýringar
á því af hverju því hafði verið frest-
að. Einnig viljum við koma á fram-
færi óánægju með að hætt sé að taka
inn 12 mánaða börn. Sá möguleiki
hafði mælst mjög vel fyrir í foreldra-
samfélaginu og hróður hans jafn-
vel borist út fyrir sveitarfélagið sem
mjög ákjósanlegan kost. Það að lok-
að var fyrir þennan möguleika skap-
aði enn á ný óvissu í samfélaginu þar
sem stuttur fyrirvari var á breyting-
unum og lítið svigrúm til aðlögun-
ar á nýjum úrlausnum. Fáir aðrir
möguleikar eru á daggæslu fyrir ung
börn sem hefur bein áhrif á staðinn
og rýrir sem ákjósanlegan kost til
búsetu og/eða náms.“ mm
Starfsfólk og foreldrafélag Andabæjar fordæmir
ákvörðun um leikskólastjóralausan skóla
Dagana 23. - 26. júlí síðastliðna var
Íslandsmótið í golfi haldið á Garða-
velli á Akranesi þar sem Signý Arn-
órsdóttir úr GK og Þórður Rafn
Gissurarson úr GR stóðu uppi
sem sigurvegarar. Golfklúbburinn
Leynir átti veg og vanda að fram-
kvæmd mótsins og nú þegar mán-
uður er liðinn frá því að því lauk lít-
ur Guðmundur Sigvaldason fram-
kvæmdastjóri til baka og gerir upp
Íslandsmótið í golfi 2015. „Við gáf-
um okkur tvö ár í undirbúnings-
vinnu. Fylgdumst með Íslands-
mótunum árin 2013 og 2014, sáum
hvað var vel gert þar og hvern-
ig við hjá GL gætum gert hlutina
á Garðavelli. Skipulag mótsins í
ár tók því mið af fyrri mótum. Við
lærðum mikið á því að gefa okkur
góðan tíma í undirbúninginn,“ seg-
ir Guðmundur. „Völlurinn hefur
sjaldan verið eins góður, bæði hvað
varðar uppsetningu og annað. Auk
þess lék veðrið við okkur alla móts-
helgina. Það gekk allt upp og mótið
var vel heppnað í alla staði. En það
sem stendur mest upp úr er gríðar-
lega vel skipulagt Íslandsmót. Um
hundrað manns á öllum aldri komu
að framkvæmd mótsins á einn eða
annan máta og starfsmenn, félags-
menn og sjálfboðaliðar allir sem
komu að mótinu eiga gríðarlegt
þakklæti skilið,“ bætir hann við.
Flottur klúbbur og
hópur félagsmanna
Guðmundur áætlar að um 500
manns hafi verið á keppnissvæðinu á
lokadegi mótsins. Margir hafi kom-
ið og fylgst með á hverjum degi og
fjöldi áhorfenda hafi farið vaxandi
eftir því sem leið á. Mikil vinna var
lögð í að gera upplifun keppenda og
gesta sem allra besta sem gerði það
að verkum að klúbburinn var vel í
stakk búinn að taka á móti miklum
fjölda gesta yfir helgina. „Umgjörð-
in var glæsileg, þó ég segi sjálfur frá.
Við gáfum þeim mótum sem hald-
in hafa verið á höfuðborgarsvæð-
inu ekkert eftir með því að reisa
áhorfendastúku, setja upp skjá og
fleira. Keppendur voru einnig mjög
ánægðir með alla umgjörð mótsins,
við urðum varir við það í aðdraganda
þess,“ segir Guðmundur og leggur
áherslu á að ekkert þessa hefði ver-
ið mögulegt án þeirrar miklu vinnu
sem allir sem komu að mótinu lögðu
á sig. „Ég er mjög stoltur af því hvað
við eigum flottan klúbb og flottan
hóp félagsmanna. Eftir því er tekið.
Þeir sem munu halda komandi Ís-
landsmót eru þegar byrjaðir að hafa
samband og horfa til þess hvernig til
tókst hjá okkur,“ bætir hann við og
segir gott að geta miðlað reynslu af
mótum sem þessum milli klúbba, frá
ári til árs. „Einnig má geta þess að
Eimskip er að gera góða hluti með
samstarfi sínu við GSÍ. Það skilar
sér í því að umgjörð mótaraðarinnar
er orðin glæsileg. Þetta er góð sam-
vinna.“
Golfsumarið
senn á enda
Framundan í starfi Golfklúbbs-
ins Leynis er Vatnsmótið, lokamót
kvenna og Bændaglíman. „Völlur-
inn hefur verið mjög vel sóttur og
mikil umferð um hann í allt sumar.
Bændaglíman er síðasta mótið sem
við höldum á hverju ári. Eftir sept-
ember fer svo aðeins að hægja á
starfi klúbbsins. Um mánaðamót-
in nóvember, desember, færum við
okkar starf í inniaðstöðuna. Þar
er golfhermir sem kylfingar geta
nýtt til æfinga, púttaðstaða og net
til þess að slá í. Það er bjart fram-
undan í starfi Leynis,“ segir Guð-
mundur.
„Mig langar enn og aftur að
þakka starfsmönnum, félagsmönn-
um, sjálfboðaliðum, keppendum
og öllum gestum fyrir sitt framlag
á vel heppnuðu og góðu Íslands-
móti,“ segir Guðmundur, hæst-
ánægður með Íslandsmótið í golfi
á Garðavelli 2015.
kgk
Guðmundur Sigvaldason gerir upp Íslandsmótið í golfi
„Það gekk allt upp og mótið var vel heppnað í alla staði“
Guðmundur Sigvaldason, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis,
kveðst hæstánægður með vel heppnað
Íslandsmót í sumar.
Fjöldi gesta sótti Garðavöll heim meðan á mótinu stóð. Áætlað er að um 500
manns hafi verið á keppnissvæðinu á lokadegi Íslandsmótsins, flestir við 18. flöt
þar sem þessi mynd er tekin. Ljósm. seþ.
Áhorfendur fylgjast með Skagakonunni Valdísi Þóru Jónsdóttur úr GL slá af fyrsta
teig á Íslandsmótinu. Valdís hafnaði í öðru sæti á mótinu.
Um hundrað manns á öllum aldri komu að framkvæmd mótsins með einum eða
öðrum hætti. Þessir vösku piltar voru í þeim hópi.
Ljósm. fengin af facebook-síðu GL.