Skessuhorn - 26.08.2015, Síða 16
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 201516
„Það er gjörsamlega ólíðandi að
Már Guðmundsson [seðlabanka-
stjóri] taki ákvörðun um að auka
kostnað heimila og fyrirtækja um
tugi milljarða króna vegna þessarar
ákvörðunar um stýrivaxtahækkun
en hugsanlega kostar þessi hækk-
un almenning og fyrirtæki meira
en viðskiptabann Rússa mun gera,“
skrifar Vilhjálmur Birgisson for-
maður Verkalýðsfélags Akraness í
tilefni þeirrar ákvörðunar Seðla-
banka Íslands í síðustu viku að
hækka stýrivexti bankans um 10
prósent, úr 5,0% í 5,5%. „Það er
sorglegt að sjá þegar forsvarsmenn
Seðlabankans koma tiplandi á tán-
um með kassann úti á vaxtaákvörð-
unardegi og tilkynna alþýðunni og
fyrirtækjum að framundan sé hugs-
anlega umtalsverð hækkun stýri-
vaxta og það jafnvel næstu misserin
og ástæðan jú, vegna þess að alþýð-
an fékk „of miklar launahækkan-
ir“. Að kenna síðan kjarasamning-
um um að verðbólgan sé hugsan-
lega að fara á skrið er grátbroslegt,
nær væri fyrir Seðlabankastjórann
að draga úr peningamagni í umferð
í stað þess að auka það með upp-
kaupum á gjaldeyri.“
Vilhjálmur segir að ef verðbólg-
an fari á skarið þá verði það seðla-
bankastjóranum og Samtökum at-
vinnulífsins um að kenna vegna
þess að þessir aðilar eru búnir að
standa með gjallarhorn á hverju
götuhorni og öskra að launahækk-
anir kjarasamninga munu leiða
til aukinnar verðbólgu, þótt eng-
ar forsendur séu fyrir slíku eins
og framkvæmdastjóri IKEA hefur
réttilega bent á í fréttum. Eins og
kunnugt er gaf IKEA verslanakeðj-
an hérlendum yfirvöldum peninga-
mála langt nef sama dag og ákvörð-
un um hækkun stýrivaxta var tekin
og kynnti lækkun vöruverðs hér á
landi, einmitt vegna þess að launa-
hækkun í samningunum reyndist
minni en gert hafði verið ráð fyrir.
„Mikilvægt er að almenning-
ur átti sig á því hvaða afleiðingar
það hefur fyrir heimilin og fyrir-
tæki þegar stýrivextir eru hækkað-
ir með þeim hætti sem Seðlabank-
inn hefur gert tvisvar í röð,“ skrif-
ar Vilhjálmur. „Sem dæmi þá ligg-
ur fyrir að hjón sem eru með 25
milljóna króna óverðtryggt hús-
næðislán þurfi að greiða 250.000
kr. meira í vexti á ári bara við það
eitt að vextirnir skuli hækka um
1%. Þetta þýðir að öll launahækk-
unin eins og hún lagði sig í síðustu
kjarasamningum hefur verið tekin
í burtu á einu bretti,“ skrifar Vil-
hjálmur. Hann bregður á orðaleik
í lok greinar sinnar og segir: „Ég
ítreka það sem ég hef sagt áður,
það þarf að afmá Má úr Seðla-
bankanum enda er peningastefn-
an sem hann stendur fyrir að stór-
skaða íslensk heimili og atvinnulíf
með okurvaxtastigi sem ekki þekk-
ist í neinu landi sem við viljum bera
okkur saman við.“
mm
Vaxtahækkun Seðlabankans mun kosta meira en viðskiptabann Rússa
Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA í kröfugöngu á 1. maí.
Síðastliðinn miðvikudag undirrit-
aði Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs,
samkomulag við Minjavernd um
viðtöku eigna og lands í Ólafsdal í
Gilsfirði. Þar stofnaði Torfi Bjarna-
son árið 1880 fyrsta búnaðarskóla
landsins og starfrækti til 1907. Þar
námu 154 skólapiltar víða af land-
inu flest það sem til framfara stefndi
í búskaparháttum.
Frá árinu 2007 hefur Ólafsdals-
félagið unnið að uppbyggingu stað-
arins en forsvarsmenn þess leit-
uðu á síðasta ári til Minjaverndar
um þátttöku í verkefninu. Minja-
vernd er hlutafélag í eigu ríkissjóðs,
Reykjavíkurborgar og sjálfseign-
arstofnunarinnar Minja. Félagið
er ekki á föstu framfæri hins opin-
bera, hvorki ríkis né borgar. Tekjur
félagsins koma af rekstri þeirra húsa
sem það hefur látið endurbyggja og
á, eða af jákvæðum afrakstri verk-
efna þar sem hús hafa verið endur-
gerð og síðar seld.
Í samkomulaginu sem undirrit-
að var felst að Minjavernd er fal-
ið að endurreisa byggingar í Ólafs-
dal og hafa umsjón með menning-
arlandslagi á svæðinu. Ríkissjóður
afsalar sér í því skyni 57,5 hektur-
um lands til Minjaverndar sem tek-
ur meðal annars að sér að endur-
byggja gamla skólahúsið og önnur
hús sem enn standa í Ólafsdal, auk
þess að endurgera þau hús sem þar
stóðu áður og tengjast starfi búnað-
arskólans gamla.
„Það er sérlega ánægjulegt að
undirrita þetta samkomulag við
Minjavernd, hér á þessum fallega
stað sem á sér merka sögu. Megin-
markmið með rekstri Minjavernd-
ar er að stuðla að varðveislu gam-
alla húsa hvarvetna á Íslandi og hef-
ur félagið undanfarið staðið vel að
endurreisn gamalla húsa víða um
land og má þar nefna hús í miðbæ
Reykjavíkur, Franska spítalann á Fá-
skrúðsfirði sem og ýmis hús í Flat-
ey. Án efa verður endurreisn húsa-
kosts í Ólafsdal mikil lyftistöng fyr-
ir svæðið,“ sagði Bjarni Benedikts-
son eftir að formlega var gengið frá
samkomulaginu.
Við komandi uppbyggingu í
Ólafsal verður lögð áhersla á að
byggingar haldi upprunalegum
einkennum sínum en um leið að
þær nýtist sem best miðað við kröf-
ur nútímans. Minjavernd áætlar að
heildarkostnaður uppbyggingar-
innar geti numið 400-500 milljón-
um króna.
Sér fyrir sér lifandi
ferðamannastað
„Ég er mjög ánægður með að geng-
ið hafi verið frá þessu samkomu-
lagi um uppbygginguna í Ólafsdal
og trúi því að það geti orðið til þess
að hér verði í framtíðinni vel sótt-
ur ferðamannastaður á sviði sögu-
og menningarferðaþjónustu,“ sagði
Rögnvaldur Guðmundsson, for-
maður Ólafsdalsfélagsins, í samtali
við Skessuhorn að undirritun lok-
inni.
„Að baki er margra ára sjálf-
boðavinna stjórnar og félagsmanna
í Ólafsdalsfélaginu og við hlökk-
um til samstarfsins við Minjavernd.
Ólafsdalshátíðin verður áfram á sín-
um stað og lögð verður áhersla á að
miðla sögu staðarins til gesta. Það
eru spennandi tímar framundan,“
segir Rögnvaldur og bætir því við að
uppbygging í Ólafsdal muni koma
sér vel fyrir nærliggjandi svæði. „Ef
vegurinn inn Ólafsdalshlíðina verð-
ur endurbættur þá er ég sannfærður
um að Ólafsdalur hefur góða mögu-
leika á að verða heilsárs áfangastað-
ur. Ég sé fyrir mér að hér verði lif-
andi og fjölbreytt starfsemi á friðsæl-
um stað. Framkvæmdin mun styrkja
ferðaþjónustu í Dalabyggð og Reyk-
hólasveit og verða svæðinu lyfti-
stöng,“ bætir hann við. „Mig langar
að þakka þeim sem stutt hafa félagið
hingað til. Jafnframt hvet ég alla
áhugasama til að ganga til liðs við
Ólafsdalsfélagið því það mun áfram
sinna mörgum mikilvægum verk-
efnum er snúa að fræðslu, mannlífi
og sögu staðarins,“ segir Rögnvald-
ur Guðmundsson að lokum.
kgk
Fjárfest verður fyrir hálfan milljarð í Ólafsdal
Samkomulagið undirritað í gamla skólahúsinu í Ólafsdal í gær. F.v. Þröstur Ólafsson, formaður stjórnar Minjaverndar, Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra og Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins.
Skólahúsið hefur staðið í Ólafsdal síðan 1896.
Horft inn í Hvarfsdal úr gamla fjósinu í Ólafsdal. Fjósið er eitt þeirra húsa sem
stendur til að endurbyggja á næstu árum.
Steypt var ofan á hlaðna veggi gamla mjólkurhússins í fyrra til að varna hruni.
Horft inn Ólafsdal.