Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Page 20

Skessuhorn - 26.08.2015, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 201520 mjög vel. Í Uglukletti eru börn tekin inn við 18 mánaða aldur og er ekki einungis tekið inn að hausti heldur geta börn kom- ist inn allt árið, þegar þau eru orðin 18 mánaða. Leikskólinn er fullmannaður fyrir veturinn en svolítið var um mannabreyting- ar en þær hafa gengið vel. Við leikskólann eru 16 stöðugildi og þar af eru sex fagmenntaðir leikskólakennarar. Í Uglukletti er unnið út frá hugmyndafræði um jákvæða sál- fræði og stuðst við hugmyndina um flæði. Í leikskólanum er einnig notast við hugmyndafræðina „Leiðtoginn í mér“ sem gengur út á að byggja upp sterka einstaklinga með góða leið- togafærni. Ætlunin er að hjálpa hverju barni að blómstra og gefa öllum tækifæri til að vinna út frá eigin styrkleikum svo hvert barn geti orðið besta útgáfan af sjálfu sér. Leikskólinn er einnig partur af tilraunaverkefni á vegum Landlæknisembætt- isins sem snýst um að skapa heilsueflandi leikskóla. Þennan vet- urinn verður einbeitingin sett á næringu. Það er næringarfræð- ingur sem tekur út næringargildi þeirrar fæðu sem leikskólinn býður upp á og fræðir starfsmenn um næringu barna. Tilgang- urinn er að sjá til þess að börnin séu að fá eins góða næringu og hægt er. Næsta vor stendur til að taka þetta skrefinu lengra og rækta enn meira grænmeti í leikskólanum. Leikskólinn í Stykkishólmi Leikskólinn í Stykkishólmi er þriggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1-6 ára. Fyrir þetta skólaár eru 69 börn skráð í leik- skólann og þar af eru 13 að hefja nám, flest eins árs gömul. Tíu börn luku leikskólagöngu sinni í vor og eru að byrja í fyrsta bekk núna. „Leikskólinn opnaði aftur eftir sumarfrí 10. ágúst og síðustu börnin eru að tínast inn þessa dagana. Aðlögun var að ljúka og hefur gengið mjög vel. Við vorum að taka upp svo- kallaða þátttökuaðlögun núna í haust. Þá erum við að aðlaga sjö börn í einu í staðinn fyrir eitt og þetta hefur verið að koma mjög vel út og foreldrar eru ánægðir. Hugmyndafræðin á bak við þetta er að gera foreldrana örugga gagnvart leikskólanum og þá verða börnin einnig örugg,“ segir Sigrún Þórsteinsdótt- ir leikskólastjóri. „Það hafa verið dálitlar mannabreytingar fyr- ir þetta skólaár en það voru nokkrir starfsmenn sem voru að skipta um vinnu og flytja úr bænum. Það er þó fullmannað hjá okkur núna með 24 starfsmenn, sumir í hlutastarfi. Hér eru fjórir menntaðir leikskólakennarar og tveir með grunnskóla- kennaramenntun.“ „Við erum að vinna í skólanámskránni þessa dagana og reyna að klára hana. Við erum með einstaklingsskráningar fyrir hvert barn. Það þýðir að við erum nokkurn vegin með sér námskrá fyrir hvert barn og reynum þannig að mæta þörfum hvers og eins, mætti kalla þetta einstaklingsmiðað nám,“ segir Sigrún. Í leikskólanum er nokkuð um tvítyngd börn en fimm mismun- andi þjóðerni er að finna í barnahópnum. Að sögn Sigrúnar hefur það þó ekki valdið neinum vandræðum og er reynt að mæta þörfum hvers barns. Tvítyngd börn fá til að mynda meiri málörvun og það hefur að sögn Sigrúnar reynst vel. „Í skóla- starfinu leggjum við áherslu á skapandi starf og sjálfbærni. Við erum í grænu samfélagi og kennum því börnum að nýta allt eins vel og kostur er og að virða umhverfi sitt. Hér er lögð mik- il áhersla á skapandi starf og við lítum svo á að börnin séu skap- andi einstaklingur sem eigi að fá að ráða sem mestu um sitt líf í leikskólanum,“ segir Sigrún. Sólvellir í Grundarfirði Leikskólinn Sólvellir í Grundarfirði var fyrst opnaður 1977. Þetta skólaár verða 62 börn í leikskólanum og þar af 18 að hefja nám en 11 börn hættu í vor til að hefja grunnskólagöngu sína. Við leikskólann eru 22 starfsmenn og þar af eru fimm fag- menntaðir. „Það hefur ekki mikið verið um mannabreytingar hjá okkur og það er fullmannað fyrir þetta skólaár. Hér tökum við börn inn allt árið um leið og þau hafa náð eins árs aldri og laust pláss er á deildinni,“ segir Björg Karlsdóttir leikskólastjóri á Sólvöllum. „Við stefnum á að fá Grænfánann og höfum verið að vinna að því markmiði. Annars leggjum við helst upp úr því að rækta börnin svo þau verði fallegt og gott fólk sem getur hugsað sjálf- stætt og takist á við þá erfiðleika sem upp geta komið. Við vilj- um að börnin hjá okkur sjái heiminn sem vinsamlegan. Hér er mikið talað um dyggðir eins og hreinskilni, heiðarleika og slíkt,“ segir Björg. „Við höfum verið að vinna að nýrri stefnu en hún verður þó ekki tekin upp þetta árið en það er Montes- sori stefna sem kennd er við Mariu Montessori. Það er þó eitt- hvað sem við erum einungis að vinna að á þessu stigi málsins,“ bætir Björg við. Leikskóli Snæfellsbæjar Síðastliðin vetur voru leikskólar í Snæfellsbæ sameinaðir í einn en með tvö útibú, Krílakot í Ólafsvík og Kríuból á Hellissandi. Samtals er pláss fyrir 105 börn í leikskólanum og eru skólinn fullsetin en átta ný börn voru að koma inn núna. Börn komast venjulega inn við tveggja ára aldur en ef pláss er á leikskólan- um hafa þau verið tekin inn yngri. Við leikskólann eru 32 starfs- menn sem fylla 28,33 stöðugildi en enn vantar einn starfsmann í 100% stöðu. „Það er alltaf eitthvað um mannabreytingar á hverju hausti. Steinunn D. Ingibjörnsdóttir aðstoðar- og sérkennslu- stjóri Kríubóls hætti eftir 17 ára starf,“ segir Ingigerður Stefáns- dóttir leikskólastjóri. Stefna leikskóla Snæfellsbæjar er Virðing vinátta og gleði og allt í gegnum leikinn. „Við vinnum mikið með markvissa málörv- un og Numicon á báðum útibúum leikskólans,“ segir Ingigerð- ur og bætir við að nú sé verið að vinna betur að sameiningu leik- skólanna. „Við vorum byrjaðar að vinna að sitt hvorri skólanám- skránni en verðum núna að sameinast um eina og öll sú vinna er framundan hjá okkur. Við erum með sömu markmið að leik- skólastarfinu hér hjá Snæfellsbæ en leiðirnar eru ólíkar. Leikskól- arnir beita ólíkum aðferðum að markvissu leikskólastarfi,“ seg- ir Ingigerður. Fjórir sameinaðir leik-og grunnskólar á Vesturlandi Eins og fram kom í Skólablaði Skessuhorns í síðustu viku eru fjórir sameinaðir leik- og grunnskólar á Vesturlandi. Þetta eru Auðarskóli í Búðardal, Laugargerðisskóli á Snæfellsnesi, Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar og Reykhólaskóli í Reyk- hólasveit. Starfi þessara skóla voru gerð skil í blaðinu í síðustu viku. Auðarskóli í Dölum Leikskóli Auðarskóla var opnaður eftir sumarfrí 4. ágúst og fóru þá börn skólans að tínast inn en á þessu skólaári eru tæplega 40 börn í leikskólanum. Heildarfjöldi starfmanna í báðum skólum er um 40. „Helsta breyting vetrarins verður tvímælalaust sú að 1. október byrjar Auðarskóli á því að taka inn nemendur frá 12 mánaða aldri. Leikskólinn verður þó áfram tveggja deilda en bú- ast má við breytingum á starfi deildanna tveggja vegna þessa,“ segir Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri Auðarskóla. Laugargerðisskóli á Snæfellsnesi Í leikskóladeild Laugargerðisskóla eru sex börn og eru þau tekin inn við eins árs aldur. „Leikskóladeildin er í nánum tengslum við skólann og grunnskólakennararnir kenna líka í leikskóladeildinni,“ segir Kristín Björk Guðmundsdóttir skólastjóri Laugargerðisskóla og bætir því við einn starfsmað- ur er ráðinn í leikskóladeildina. Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar Leikskóladeild leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar heitir Skýjaborg. Skýjaborg opnaði á ný eftir sumarleyfi 5. ágúst síð- astliðinn og eru tæplega 40 börn skráð í leikskólann. Á Skýja- borg hefur undanfarið verið tekið þátt í verkefninu Birtu- skólar. „Verkefnið er samstarf leikskóla sem vinna með yoga í lífsleikninámi barna. Þá er leiksólinn þátttakandi í Nordplus verkefni þar sem unnið er í útinámi og hreyfingu barna með lífsgildi og hugmyndafræði Bangsímon að leiðarljósi. Verk- efnið er samstarfsverkefni í fimm löndum og það hófst í sept- ember í fyrra og lýkur næsta sumar,“ segir Sigríður Lára Guð- mundsdóttir, deildarstjóri grunnskóladeildar Heiðarskóla. Reykhólaskóli Þann 12. ágúst opnaði leikskóladeild Reykhólaskóla aftur eft- ir sumarfrí. Við upphaf þessa skólaárs eru að sögn Ástu Sjafn- ar Kristjánsdóttur, skólastjóra Reykhólaskóla, 16 börn á leik- skóladeildinni. „Við skólann starfa sex grunnskólakennarar, sérkennarar, leikskólakennarar, þroskaþjálfi og iðjuþjálfi. Það má segja að í hverri stöðu í skólanum sé starfsmaður sem er hokinn af reynslu,“ segir Ásta Sjöfn. arg Börnin á Uglukletti í útikennslu uppi í Einkunnum. Börnin í leikskólanum í Stykkishólmi máluðu kassa sem svo var hafður sem hús á sumarhátíðinni nú í sumar. Yngstu börnin á Stubbadeild í göngutúr. Börnin í leikskóla Snæfellsbæjar fá sér ís í góða veðrinu í sumar. Börnin í Auðarskóla að skoða geit. Ljósm. Steinunn Matthíasdóttir Börnin í Laugargerðisskóla með tónleika. LEIKSKÓLAR Tveir drengir í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar hjóla úti á leikvelli leikskólans. Börnin í leikskóladeild Reykhólaskóla njóta útiverunnar í sumar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.