Skessuhorn - 26.08.2015, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2015 27
erum með tvö fullbúin eldhús í hús-
inu. Þar fyrir utan erum við með tvö
auka herbergi sem ekki eru leigð út
og litla stúdíóíbúð í risinu.“
Farfuglaheimilið til sölu
Magnús segir reksturinn hafa farið
rólega af stað árið 2009. „Enda tekur
það alltaf smá tíma að ná augum og
eyrum ferðamanna. Á þessum tíma
var Akranes hreinlega ekki á kortinu
en það er að breytast og ferðamönn-
um er alltaf að fjölga hérna,“ heldur
hann áfram. Hann segir aðsóknina
á gistiheimilið að jafnaði hafa auk-
ist, þrátt fyrir að samkeppni í gisti-
geiranum hafi á sama tíma aukist á
Akranesi. „En engu að síður sjáum
við vöxt á milli ára og 2015 er lang-
samlega best hvað varðar rekstrar-
tekjur og fjölda gistinátta. Það er
engin ástæða til að ætla að það verði
samdráttur í ferðamannastraumi til
Íslands og ferðaþjónusta sem slík er
vaxandi atvinnuvegur og starfsemi,“
segir hann.
En þrátt fyrir að reksturinn gangi
vel hefur Magnús nú ákveðið að
minnka umsvif sín. „Ég áttaði mig á
því að ég er kominn með of margt á
mínar hendur, húsbyggingin reynd-
ist dágóð viðbót ofan á allt annað.
Ég hef til að mynda ekkert komist
frá í sumar og hef að jafnaði verið
í tólf tíma á dag á Akranesi, nánast
alla daga. Ég hef því tekið ákvörðun
um að selja farfuglaheimilið og ein-
beita mér að uppbyggingu á sjóst-
angveiðinni og rekstri húsnæðis fyr-
ir þá hópa.“ Hann telur að rekstur-
inn á farfuglaheimilinu myndi lík-
lega henta betur aðila sem búsett-
ur er á Akranesi eða getur gefið
sig betur að honum. „Þessi rekst-
ur myndi til dæmis henta einstak-
lingi gríðarlega vel eða samrýmdum
hjónum þar sem annar aðilinn get-
ur gefið sig að þessu.“
Leigir út íbúðirnar
Magnús hefur ekki hug á því að
draga saman seglin í frístundaveið-
inni. Akranes Adventure Tours er
nú með tvo báta til útleigu og ger-
ir hann fastlega ráð fyrir að bæta við
einum báti fyrir næsta ár. Þá verð-
ur húsið nýja fljótlega fullbúið. „Það
eru tvær íbúðir tilbúnar núna og
hinar tvær klárast í næsta mánuði.
Í lok september er frístundaveiði-
tímabilið búið og þá er ég með fjór-
ar íbúðir tilbúnar til útleigu í vet-
ur,“ útskýrir Magnús. Hann segir að
hugmyndin sé sú að hægt verði að
leigja þær til dæmis út til verktaka,
eða annarra aðila sem þurfa tíma-
bundið húsnæði. „Þær verða því ekki
leigðar út með sama hætti og er gert
á farfuglaheimilinu. Hugmyndin er
að hægt sé að leigja þær fullbúnar í
lengri tíma en nótt og nótt. Það er
svo möguleiki á að ein eða tvær fari í
einhvers konar langtímaleigu.“
Þarf mann með sér
Þrátt fyrir að hafa nóg að gera í
ferðaþjónustunni hefur Magnús
fleiri hnöppum að hneppa. Hann
er búsettur í Mosfellsbæ með sam-
býliskonu sinni og tveimur son-
um og starfar einnig sem verkefn-
isstjóri fyrir umhverfisvöktun iðn-
aðarsvæðisins á Grundartanga. Þar
er hans hlutverk að tryggja að um-
hverfisvöktunaráætlun sé framfylgt
í samræmi við kröfur Umhverfis-
stofnunar. „Starfið er í verktöku en
álagið þar er mest yfir vetrartím-
ann, þannig að þetta fer vel saman
með hinu. Þetta er samt auðvitað
ákveðið flækjustig líka, þegar mað-
ur er kominn í svona mikla vinnu
hérna á Akranesi en býr svo annars
staðar.“ Hann segir því ljóst að hann
þurfi mann með sér í frístundaveið-
inni næsta sumar. „Ég hef gert ráð
fyrir fjölgun báta og því fylgja meiri
umsvif. Því er ég nú að leita að sam-
starfsaðila til að taka þátt í uppbygg-
ingunni með mér, sigla og þjónusta
sjóstangveiðihópana næsta sumar,“
segir Magnús Freyr að endingu.
grþ
Umsóknarfrestur á haustönn 2015 er til 15. október n.k.
Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt
um styrk til jöfnunar á námskostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er
fyrir þá sem stunda nám fjarri heimili sínu.
Dvalarstyrkur
(fyrir þá sem að dvelja fjarri lögheimili og
fjölskyldu sinni vegna náms).
Styrkur vegna skólaaksturs
(fyrir þá sem sækja nám frá
lögheimili og fjarri skóla).
Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér
reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is).
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Jöfnunarstyrkur til náms
Við Suðurgötu 33 á Akranesi hefur
nú risið nýtt fjölbýlishús með fjórum
íbúðum. Líkt og greint hefur ver-
ið frá í Skessuhorni er það Magnús
Freyr Ólafsson, frumkvöðull í ferða-
þjónustu tengdri sjóstangveiði á
Akranesi, sem lét byggja húsið. Nýja
húsið er nú nánast tilbúið og von
bráðar verða allar íbúðirnar komn-
ar í notkun. Húsið er ætlað áhöfnum
sjóstangveiðibáta en Magnús Freyr
rekur fyrirtækið Akranes Adventure
Tours, sem leigir hópum sjóstang-
veiðibáta yfir sumartímann.
Hóparnir komu
allir aftur
Það er ekki nema rúmt ár síðan
Magnús byrjaði með reksturinn á
sjóstangveiðibátunum og fyrirtæk-
ið er í stöðugum vexti. „Þetta fór
rólega af stað, sem var gott því ég
þurfti mikið að læra. En þetta fór
samt það vel af stað að hóparnir sem
komu í fyrra komu allir aftur í ár,“
segir Magnús í samtali við Skessu-
horn. Hann segir sumarið í ár hafa
gengið mjög vel. „Allar aðstæður,
aflabrögð og veiði standa fullkom-
lega undir væntingum ferðamanna.
Hér er mikil fjölbreytni í tegund-
um, það eru að koma á land tíu til
tólf tegundir yfir vikuna.“ Hóp-
arnir sem Magnús tekur á móti eru
þýskumælandi, enda er hann í sam-
starfi við þrjár ferðaskrifstofur í
þýskumælandi löndum. Hóparnir
bóka fyrirfram, leigja bátinn í viku í
senn og fá íbúð leigða með.
Akranes vel staðsett
Þjónustan sem Magnús býður upp
á er svokölluð frístundaveiði, sem
mætti helst líkja við eins konar báta-
leigu. Þeir sem leigja bátinn þurfa að
hafa viðeigandi skírteini eða að taka
próf á Íslandi, þegar hingað er kom-
ið. Frístundaveiðin er tiltölulega ný
atvinnugrein á Íslandi. Magnús seg-
ir Norðmenn vera með 20 til 30 ára
sögu í þessum bransa og að Vest-
firðingar hafi fyrstir byrjað hérlend-
is fyrir nokkrum árum. „Við búum
svo vel að staðsetningunni hérna.
Við höfum þessa nálægð við höf-
uðborgarsvæðið og aðra þekkta
ferðamannastaði. Ef veiðimennirn-
ir eru lúnir eða ef það er vont í sjó-
inn þannig að hóparnir komist ekki
út, þá getur fólk gert eitthvað ann-
að. Hér er hægt að leigja bílaleigubíl
og ekki þarf að aka lengi að mörg-
um helstu og þekkustu ferðamanna-
stöðum Íslands. Við stöndum betur
hér hvað þetta varðar en til dæmis
sjóstangveiðifyrirtækin á Vestfjörð-
um.“
Mörg gistipláss
Eitt af fallegum eldri húsunum við
Suðurgötu er einnig í eigu Magnús-
ar Freys. Það er „Gamla apótekið“
sem kallað er og er númer 32, beint
á móti nýja fjölbýlishúsinu. Þar rek-
ur Magnús farfuglaheimili, ótengt
rekstrinum við Suðurgötu 33. „Ég
keypti húsið 2007 og sá það alltaf
fyrir mér sem gististað. En það dróst
aðeins, ég var til að byrja með með
herbergja- og íbúðaútleigu þar,“ út-
skýrir Magnús. Það var svo eftir
hrun sem hann breytti rekstrinum
í farfuglaheimili, líkt og hann hafði
lagt upp með. Í húsinu eru fjölmörg
gistipláss. Fjögur tveggja manna
herbergi, þar af tvö með sér baðher-
bergi, tvö þriggja manna herbergi,
tvö fjögurra manna og eitt fimm
manna sem einnig hefur sér bað.
„Grunnurinn er að þarna er hægt að
fá svefnpokapláss eða uppábúin rúm.
Hitt lykilatriðið er að ferðamaður-
inn hefur aðgang að eldhúsi, en við
Hyggur á aukin umsvif í frístundaveiðinni
Rætt við Magnús Frey Ólafsson hjá Akranes Adventure Tours
Magnús Freyr hefur breytt Gamla apótekinu við Suðurgötu 32 í gistiheimili sem
nú er til sölu. Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness.
Magnús Freyr, staðsettur í nýju eldhúsi einnar íbúðarinnar við Suðurgötu 33.
Ánægður frístundaveiðimaður á sjó, með Akrafjallið í baksýn.
Ljósm. Magnús Freyr Ólafsson.
Magnús Freyr í steypuvinnu við nýja
húsið í vor. Ljósm. mþh.