Skessuhorn - 16.09.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 38. tbl. 18. árg. 16. september 2015 - kr. 750 í lausasölu
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Lúsina burt!
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 898 1779
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
OPIÐ
15.00 – 21.00
Hópapantanir í
síma 898-1779
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Bæjarráð Akraneskaupstaðar hef-
ur samþykkt tillögur að skipulags-
breytingum í menningarmálum
ásamt nýju skipuriti málaflokksins.
Meðal annars liggur að baki ákvörð-
uninni ítarleg úttekt sem gerð var í
janúar á þessu ári á rekstri menning-
armála hjá Akraneskaupstað. Í þeirri
úttekt var meðal annars lagt til að
koma á fót starfi yfirmanns safna á
Akranesi og stöður yfirmanna bóka-
safns, héraðsskjalasafns, ljósmynda-
safns og byggðasafns yrðu lagð-
ar niður í núverandi mynd. Lög
koma þó í veg fyrir að leggja megi
af starf bæjarbókavarðar og verður
slíkur því áfram við Bókasafn Akra-
ness. Forstöðumanni byggðasafns
og deildarstjórum í héraðsskjala- og
ljósmyndasafni verða boðin breytt
störf og heyra undir áðurnefnd-
an yfirmann safna. Einnig var lagt
til að ljósmyndasafnið verði hluti af
héraðsskjalasafni og að opnunartíma
bókasafnsins verði breytt. Þá liggur
fyrir að gera breytingar á sýningum
á Byggðasafninu í Görðum og verð-
ur safnið lokað frá 1. október næst-
komandi og til vors. Þetta og margt
fleira í frétt á bls. 10. grþ
Leikmenn ÍA eru hér í þann mund að hefja Íslandsmeistarabikarinn á loft eftir 1-0 sigur á FH í úrslitaleik 1. deildar kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli síðastliðinn
laugardag. Liðið hafði þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeild næsta sumar. Í tilefni þess fylgir Skessuhorni í dag sérblað þar sem rætt er við fyrirliða liðsins, leikmenn,
þjálfara og formann knattspyrnufélagsins. kgk/ Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
„Það er ókostur við réttir að það
er svo mikið af ókunnugu...“ Þessi
ummæli voru til gamans sögð í
Þverárrétt í Borgarfirði síðasta
mánudag, en eðli rétta er jú ein-
mitt að þar er fé dregið í sundur og
sett í dilka sem tilheyra hverjum bæ
í sveitinni. Þessi mynd var tekin inn
í einn dilkinn þar sem fullorðið fé
frá Lundum í Stafholtstungum er í
þann mund að verða hleypt út og
rekið í heimahagana.
Sjá svipmyndir úr göngum og
réttum á bls. 14. mm
Göngur og réttir
Breytingar í safnamálum