Skessuhorn - 16.09.2015, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 20152
Nú þegar skammdegið fer að hellast yfir
minnum við á notkun endurskinsmerkja,
bæði fyrir börn og fullorðna. Fólk á gangi án
endurskinsmerkja sést fyrst í um það bil 20
- 30 metra fjarlægð frá bíl sem ekur með lág
ljós en í um 125 metra fjarlægð ef notuð eru
endurskinsmerki.
Það verður norðan 3-8 m/s og lítilshátt-
ar væta norðan til en bjart sunnan heiða á
fimmtudag. Hæg breytileg átt síðdegis og
víða skýjað á landinu en yfirleitt úrkomu-
laust. Hiti verður á bilinu 7 til 15 stig, hlýjast
á Suðurlandi. Á föstudag verður hæg suð-
læg átt og skýjað en rofar til á Norður- og
Austurlandi. Suðaustan strekkingur og rign-
ing sunnan- og vestanlands um kvöldið.
Hiti víða 8 til 13 stig. Á laugardag spáir suð-
austan 13-20 m/s og rigningu en 8-15 og
úrkomulitlu á Norður- og Austurlandi. Hiti 9
til 17 stig, hlýjast norðanlands. Á sunnudag
verður ákveðin sunnanátt og rigning eða
skúrir en þurrt norðanlands. Hiti 8 til 15 stig,
hlýjast fyrir norðan. Á mánudag er útlit fyrir
suðlæga átt með vætusömu veðri, síst þó á
norðanverðu landinu. Kólnar heldur.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hefur áramótaheitið þitt haldið það sem
af er ári?“ Langflestir, eða 83,17% svarenda
strengdu alls ekki áramótaheit. Heldur færri,
eða 8,17% aðspurðra svöruðu „Já og það
heldur enn“. 6,25% sögðu áramótaheitið
ekki hafa haldið lengi. 1,92% sögðu „Já, en
stendur tæpt“ og einungis 0,48% svöruðu
„Nei, hélt þar til nýlega“.
Í næstu viku er spurt:
Ætlar þú að taka slátur í haust?
ÍA konur eru Vestlendingar vikunnar að
þessu sinni. Þær tryggðu sér í vikunni Ís-
landsmeistaratitil 1. deildar og sæti í úrvals-
deild á nýjan leik næsta sumar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Mr. Skalla-
grímsson snýr
aftur
BORGARNES: „Í tilefni
af 10. starfsári Landnáms-
setursins í Borgarnesi mun
Benedikt Erlingsson flytja
hinn óborganlega einleik
sinn um Egil Skallagríms-
son. Benedikt frumsýndi
einleikinn við opnun Land-
námssetursins 13. maí 2006
og sló sýningin algjörlega í
gegn. Árið eftir hlaut Bene-
dikt þrjár Grímu tilnefning-
ar fyrir sýninguna og vann
2 Grímur fyrir besta hand-
rit og besta leik í aðalhlut-
verki. Það er okkur því mik-
ið gleðiefni að Benedikt skuli
vera tilbúin að koma til okk-
ar aftur á þessum tímamót-
um og gefa þeim sem misstu
af sýningunni kost á að sjá
hana og þeim sem endilega
vilja koma aftur tækifæri til
þess,“ segir í tilkynningu.
„Sýningar hefjast 30. októ-
ber og við hvetjum fólk til
að bóka tímanlega því sýn-
ingafjöldi er takmarkaður.
Miðapantanir eru í síma 437
1600, á landnam@landnam.
is og á midi.is“
-mm
Sérfæðingur í
þvagfæraskurð-
lækningum
AKRANES: Sigurður Guð-
jónsson, sérfæðingur í þvag-
færaskurðlækningum, hef-
ur tekið til starfa á Heil-
brigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi. Hann verður jafn-
framt í hlutastarfi á Land-
spítala og rekur eigin lækna-
stofu í Læknamiðstöðinni
í Glæsibæ. Sigurður lauk
kandidatsprófi við HÍ 1998,
öðlaðist almennt lækninga-
leyfi 1999 og 2005 varð hann
sérfræðingur í þvagfæra-
skurðlækningum. Sigurður
verður með stofumóttöku
fyrir sjúklinga á HVE Akra-
nesi auk þess að framkvæma
þar ýmsar aðgerðir í sérgrein
sinni. Móttökudagar verða á
fimmtudögum. Upplýsingar
og tímapantanir eru hjá af-
greiðsludeild, s. 432-1000.
–mm
Nýverið gerði Stjörnuskoðun-
arfélagið á Bifröst samkomulag
við Grunnskóla Borgarfjarðar á
Varmalandi um samvinnu í kennslu
í stjörnufræði. Snýr sú samvinna
að því að stjörnuskoðunarfélagið
veitir grunnskólanum aðgang að
tækjabúnaði sem til þarf til stjörnu-
skoðunar. Hér er um að ræða 10
tommu sjónauka af gerðinni Dob-
sonian synscan, ásamt aukabúnaði.
Aukabúnaður líkt og sólsía gerir
það kleift að hægt er að skoða sól-
ina. „Er það einlæg von félagsins
að þessi samvinna verði til þess að
aukin áhugi skapist hjá grunnskóla-
börnum í Borgarfirði á stjörnu-
fræði,“ segir í tilkynningu frá fé-
laginu.
Á meðfylgjandi mynd eru Haf-
steinn Sverrisson formaður
Stjörnuskoðunarfélagsins, Ýmir
Örn Hafsteinsson formaður nem-
endafélagsins og Ása Erlingsdóttir
kennari á Varmalandi.
mm
Gera nemendum kleift að skoða stjörnurnar
Undanfarið hafur staðið yfir vinna við
nýbyggingu íbúðarhúss við Hellis-
braut á Hellissandi. Húsið verður 180
fermetra KIH límtréshús frá Austur-
ríki og verður þak þess torflagt. Áætl-
að er að húsið verði fokhelt fyrir 1.
október en einungis tók fjóra daga að
reisa einingarnar þrátt fyrir fremur
slæmt veður í síðustu viku. Eigandi
hússins er Harald Ragnar Óskars-
son en verktakinn sem vinnur verk-
ið er Eiður Björnsson ásamt þremur
öðrum smiðum og er stefnan sú að
byggingu hússins verði að fullu lokið
næsta vor. Húsið er vel staðsett með
gott útsýni út á Breiðafjörðinn. þa
Reistu austurrískt einingahús á Hellissandi
Ólöf Nordal innanríkisráðherra og
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri
klipptu síðdegis á föstudaginn á borða
og opnuðu um leið með formlegum
hætti nýjan veg í Múlasveit, vestasta
hluta Reykhólahrepps. Vestfjarða-
vegur (60) er aðalsamgönguæð sunn-
anverðra Vestfjarða. Hinn nýi vegur
sem nú kemst í notkun liggur frá Eiði
í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði.
Nýi vegurinn er 16 km langur og leys-
ir af hólmi 24 km langan malarveg og
styttir því leiðina um átta km. Vegur-
inn þverar Mjóafjörð og Kjálkafjörð.
Kostnaður var í upphafi áætlaður 3,6
milljarðar króna og stefnir í að loka-
kostnaður verði 3,7-3,8 milljarðar á
sambærilegu verðlagi.
„Þetta er einn af stóráföngun-
um í bættum samgöngum á svæð-
inu en önnur helstu verk sem unnin
hafa verið á síðustu árum eru Bratta-
brekka (2003), vegur um Svínadal
(2007), þverun Gilsfjarðar (1999),
vegur um Klettsháls (2004), vegur úr
Kjálkafirði í Vatnsfjörð (2010) og um
Kleifaheiði (2002). Að þessum áfanga
loknum er aðeins einn stór áfangi eft-
ir á sunnanverðum Vestfjörðum, kafl-
inn í Gufudalssveit þar sem ágrein-
ingur hefur verið um vegagerð um
Teigsskóg,“ segir í tilkynningu frá
Vegagerðinni.
Stefna ríkisstjórnarinnar er sú að
framkvæmdir í Gufudalssveit um
Teigsskóg hefjist áður en þetta kjör-
tímabil er úti. Verkefnið er skjalfest í
þingsályktunartillögu um samgöngu-
áætlun til næstu fjögurra ára.
mm
Þverun Mjóafjarðar og Kjálkafjarðar lokið
Hreinn og Ólöf klipptu á borða og opnuðu brúna formlega. Ljósm. gpm.
Þau voru viðstödd athöfnina síðastliðinn föstudag, þar af þrír núverandi og fyrr-
verandi samgönguráðherrar. F.v. Haraldur Benediktsson, Einar K Guðfinnsson,
Ólöf Nordal, Sturla Böðvarsson og Kristján L Möller. Myndin var tekin á hlaðinu í
Flókalundi með hina fögru Barðaströnd í baksýn.
Á leikskólaárunum er lagður mikil-
vægur grunnur að þroska barna sem
undirbýr þau m.a. fyrir lestrarnám
seinna meir. Læsi felur í sér skilning
á læsistengdum hugtökum og tekur
til hefðbundinna læsisþátta; hljóð-
kerfisvitundar, bókstafaþekkingar,
umskráningar, orðaforða, málskiln-
ings, frásagnageta og ritunar. Í læsi
mótast einnig viðhorf barna til lest-
urs og vitund þeirra um tilgang hans
jafnfram leggur málfærni grunn að
fyrstu skrefum barna við að tileinka
sér læsi og síðari lestrarfærni.
Dagur læsis í Klettaborg
Í leikskólanum Klettaborg í Borg-
arnesi fer fram nám sem leggur góð-
an grunn að þróun læsis. Í gegn-
um leikinn er nám barnanna skipu-
lagt þannig að þau njóti þess að efla
mál sitt og læsi í víðu samhengi í
gegnum fjölbreytta reynslu og efni-
við. Smátt og smátt höfum við ver-
ið að þróa okkar vinnu, læsisverk-
efni útbúin, ýmis námskeið sótt, lært
hvert af öðru, mismunandi hæfileik-
ar nýttir o.fv.
Skemmtileg viðbót við læsisvinn-
una var að í tilefni af Degi læsis kom
Sævar Ingi Jónsson héraðsbókavörð-
ur hjá Héraðsbókasafni Borgarfjarð-
ar og afhenti börnunum bókasafns-
skírteini að gjöf. Þau munu einnig fá
bókamerki þegar þau koma á bóka-
safnið til að fá bók að láni. Markmið-
ið með þessu framtaki er að auka að-
gengi barna á leikskólaaldri að bók-
um og hvetja foreldra til að lesa fyr-
ir börnin sín, jafnframt að minna á
bókasafnið og hlutverk þess. Miklu
máli skiptir fyrir börn að búa við ríkt
og gefandi málumhverfi á heimili og
hafa börn sem verða þess aðnjótandi
forskot í málþroska. Vonandi munu
foreldrar nýta bókasafnskírteinin og
njóta þannig gæðastunda með börn-
um sínum sem á að vera skemmtilegt
þar sem bæði foreldri og barn njóta
þess að lesa og spjalla saman um efni
bókarinnar.
-fréttatilkynning
Sævar Ingi Jónsson héraðsbókavörður með hluta hópsins á Klettaborg. Hróðugur eigandi bókasafnsskírteinis.