Skessuhorn - 16.09.2015, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 20154
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smáaug-
lýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.573 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.230. Rafræn áskrift kostar 2.023 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.867
kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Hvatning til sjálfshjálpar
Við lifum á tímum þar sem frelsi einstaklingsins á að vera mikið. Sem dæmi
höfum við frelsi til að ferðast, frelsi til að starfa við það sem við höfum lært
og við höfum frelsi til að tjá skoðanir okkar. Við höfum líka frelsi til að
krefjast viðunandi kjara í þeim tilfellum þegar við um lengri eða skemmri
tíma höfum ekki möguleika til að afla lífsviðurværis án þess að fá til þess að-
stoð. Við lifum í velferðarsamfélagi sem vill gera vel, en kann það ekki allt-
af. Þegar misbrestur verður lifa þeir sem bágust hafa kjörin við skert frelsi.
Frelsissvipting í formi fátæktar er fjandsamleg ógnun við það grunngildi að
allir séu jafnir og að við komum fram við minnstu bræður okkar og systur
sem raunverulega jafninga.
En öllu frelsi fylgir ábyrgð. Ég kýs að rifja það upp hér í kjölfar viðtals
sem tekið var við Björk Vilhelmsdóttir fráfarandi borgarfulltrúa í Reykja-
vík og birtist í Fréttablaðinu í liðinni viku. Björk hefur jú frelsti til að lýsa
skoðunum sínum í fjölmiðlum rétt eins og aðrir. Nú hefur hún ákveðið að
yfirgefa stjórnmálin og hverfa til annarra starfa, fyrst í stað að hjálpa stríðs-
þjáðu Palestínufólki. Í viðtalinu tjáði Björk skoðun sína á þróun velferð-
armála í höfuðborginni. Orðrétt sagði hún: „Það er veikleikavæðing inn-
an velferðarþjónustunnar. Og í samfélaginu yfir höfuð. Fólk er upptekið
af því hvaða greiningar það hefur fengið, hvaða sjúkdóma það hefur feng-
ið, hverjir hafa skilið í stórfjölskyldunni og mögulega valdið áföllum alveg
frá þriggja ára aldri og hverjir hafa orðið fyrir ofbeldi og svona. Þið fjöl-
miðlarnir algjörlega alið á þessu með því að koma engum í viðtal nema
hann hafi orðið fyrir ofbeldi eða áfalli alveg endalaust. Ég segi stundum að
Íslendingar séu bara haldnir algjörri áfallastreituröskun og viðhalda sér í
áfallinu með því að fá alltaf fleiri og fleiri sögur af fleiri og fleiri áföllum hjá
öðrum. Við erum bara föst í þessu.“
Þetta voru nokkuð gildishlaðin orð hjá fráfarandi formanni velferðar-
ráðs í stærsta sveitarfélagi landsins. Margir vilja halda því fram að hún sé
þarna að lýsa uppgjöf við það starf sem hún tók að sér eftir að flokkur henn-
ar myndaði meirihluta í borginni í fyrravor. En hver sem ástæðan er þá eru
þetta orð sem fjölmiðlar, eða þeir sem með mál hins opinbera höndla, geta
ekki látið eins og þau hafi verið ósögð. Ég þekki Björk frá því við vorum
samferða í Reykholtsskóla fyrir margt löngu. Ég veit að hún hefði aldrei
látið þessi orð falla nema að baki búi gild ástæða. Hún fullyrðir þarna að
gengið hafi verið of langt í að veikleikavæða heilbrigðis- og velferðarþjón-
ustuna. Í stað þess að hjálpa fólki til sjálfshjálpar, er í einhverjum tilfellum
ýtt undir meinta eymingjagæsku sem ekki boðar annað en áframhald doð-
ans sem heltekið getur þá sem ekki fá næga hvatningu. Auðvitað er það
grundvallaratriði að hver einstaklingur hafi grunnlaun til framfærslu og þá
aðstoð sem velferðarkerfi á að veita. Atvinnuleysi, sjúkdómar eða örorka
geta valdið því að fólk er í skemmri eða lengri tíma utan vinnumarkað-
ar. Því fólki ber að sjálfsögðu að hjálpa. Sú hjálp er engu að síður best veitt
með því að hvetja fólk til sjálfshjálpar á nýjan leik. Það hafa mörg dæmi
sannað og sem betur fer hafa fjölmörg úrræði sveitarfélaga hjálpað fólki til
betra lífs. Við þekkjum allskyns úrræði sem fólki er beint í með störf við
hæfi, nám og aðlögun að kerfinu með hvatningu og leiðsögn.
En Björk Vilhelmsdóttir er þarna að benda á að til þess að við eigum að
hafa efni á að veita öldruðum, sjúkum og öryrkjum mannsæmandi lífskjör,
þá verðum við að fækka í þeim hópi sem þiggur bætur en gæti framfleytt sér
án aðkomu hins opinbera. Þá er hún einnig að gefa fjölmiðlum inn með því
að segja að það þurfi að beina auknum sjónum að þeim sem eru að spjara
sig í lífinu en vera ekki sífellt að draga upp það neikvæða og „hvað kerfið
sé gallað.“ Við þurfum að hvetja fólk áfram og hætta að draga úr því kjark-
inn til sjálfshjálpar.
Magnús Magnússon.
Hefðbundinn haustfundur Félags-
og skólaþjónustu Snæfellinga með
skólastjórnendum og tengilið-
um stoðþjónustu grunn- og leik-
skólanna á Snæfellsnesi fór fram
í Grunnskóla Snæfellsbæjar mið-
vikudaginn 9. september síðast-
liðinn. „FSS kynnti áherslur og
skipulag í sérfræðiþjónustu við
skólana á nýju skólaári. Sérstök
áhersla í samstarfi þessara aðila er
fagefling og samstarf skólastiganna
tveggja og FSS í verkefninu Göng-
um yfir brúna.“
Sveinn Þór Elinbergsson er for-
stöðumaður Félags- og skólaþjón-
ustu Snæfellinga. Hann segir að
FSS ásamt grunn- og leikskólun-
um á Snæfellsnesi, standi fyrir sér-
stöku Menntaþingi á sameiginleg-
um starfsdegi skólastiganna mánu-
daginn 2. nóvember næstkomandi
í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík.
Yfirskrift menntaþingsins verður
„Málefni innflytjenda; - áskorun
í skólaþjónustu sveitarfélaganna
á Snæfellsnesi“. Framsöguerindi
flytja Rúnar Helgi Haraldsson
frá Fjölmenningarsetrinu, Fríða
Bjarney Jónsdóttir, sérfræðingur
á skóla- og frístundasviði Reykja-
víkur og Hulda Karen Daníels-
dóttir, verkefnastjóri hjá mennta-
sviði Reykjavíkurborgar. „Sveitar-
stjórnar- og skólanefndarfólki sem
og fulltrúum í skóla- og foreldra-
ráðum skólanna á Snæfellsnesi er
sérstaklega boðið til þinghalds-
ins enda varðar málefnið flestar
stjórnsýslustofnanir Snæfellinga,“
segir Sveinn Þór.
mm
Haustfundur og menntaþing
skólafólks á Snæfellsnesi
Skólastjórnendur og starfsfólk skólaþjónustu FSS á haustfundinum síðastliðinn
miðvikudag.
Makrílbáturinn Hreggi AK frá Akra-
nesi slitnaði upp í Njarðvíkurhöfn
aðfararnótt síðasta miðvikudags og
rak upp í grjót í höfninni. Á vef Vík-
urfrétta er sagt frá því að björgun-
arsveitin Suðurnes hafi strax verið
kölluð til ásamt lögreglu og hafn-
sögubátnum Auðunni. „Böndum
var komið á bátinn, sem var kominn
á hliðina í grjótinu þannig að sjór
flæddi inn fyrir borðstokkinn, og
hann dreginn aftur á flot og komið
að bryggju,“ sagði í frétt Víkurfrétta
um atburðinn. Meðfylgjandi mynd
tók Siggeir Pálsson á vettvangi í
Njarðvíkurhöfn snemma á miðviku-
dagsmorgun. mm
Makrílbátur frá Akranesi endaði uppi í grjóti
Blés um
Snæfellinga
þegar fyrstu
haustlægðirnar
gengu yfir
Leiðindaveður var á miðvikudag
og fimmtudag á Snæfellsnesi þeg-
ar fyrstu alvöru haustlægðirnar
gengu yfir vestanvert landið. Um
klukkan sjö á miðvikudagsmorgun
fóru vindhviður í 40 metra á sek-
úndu í Ólafsvík. Engar alvarlegar
skemmdir urðu en lauslegir hlut-
ir færðust úr stað og þá losnaði
klæðning og þakkantur af tveimur
húsum. Aðfararnótt fimmtudags
gerði aftur suðvestan hvassviðri og
féll skólahald niður í Snæfellsbæ
fyrir hádegi af þeim sökum. Ófært
var um tíma á vegum á norðan-
verðu Snæfellsnesi fram að há-
degi á fimmtudeginum. Um tíma
fór vindur í hviðum í 48 m/sek á
Fróðárheiði. Allhvasst var einnig
á Vatnaleið. Ekki voru mörg tjón
skráð en þó fauk húsbíll á hliðina í
Helgafellssveit fyrir hádegi. Þetta
gerðist í svokölluðum Stórholt-
um, milli Gríshóls og Vatnaleiðar.
Ökumann og farþega sakaði ekki,
en lögregla flutti þau til skoðunar í
Stykkishólm. Fólkið þurfti að bíða
í bílnum nokkra stund þar til hjálp
barst frá lögreglu. Bíllinn var sótt-
ur eftir hádegið þegar vind tók að
lægja.
mm/af
Fiskikör fuku úr stæðu og þakkantur losnaði á húsnæði Ægis sjávarfangs í Ólafs-
vík á miðvikudagsmorguninn. Ljósm. af.
Á fimmtudagsmorgun var svona umhorfs við höfnina í Ólafsvík. Ljósm. af.
Í hvassviðrinu fyrir hádegi á fimmtudagsmorgun fauk þessi húsbíll á hliðina í
Helgafellssveitinni. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.