Skessuhorn - 16.09.2015, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 201510
Fasteignasala LIT í Borgarnesi
er nú komin með í sölu húseignir
gamla Húsmæðraskólans á Varma-
landi í Stafholtstungum. Það er
sveitarfélagið Borgarbyggð sem er
eigandi hússins en það ákvað eins
og kunnugt er fyrr á þessu ári að
bjóða það til sölu ásamt fleiri fast-
eignum í eigu sveitarsjóðs. Síðast
þjónaði húsið sem kennslurými
fyrir elstu nemendur Varmalands-
deildar Grunnskóla Borgarfjarðar
sem hafa nú allir verið færðir und-
ir eitt þak í upprunalegt barna-
skólahús á staðnum. Húsmæðra-
skóli var rekinn á Varmalandi frá
1946 og til ársins 1986 að dreg-
ið hafði verulega úr aðsókn. Eft-
ir það var um tíma rekin kennslu-
miðstöð frá Kennarasambandi Ís-
lands, heilsuhótel um hríð sem og
sumarhótel.
Húsmæðraskólahúsið var byggt
árin 1944-1946 og það stækkað
árið 1960. Það er á þremur hæð-
um og samkvæmt auglýsingu frá
Fasteignasölu Inga Tryggvasonar í
Borgarnesi er það 1.825 fermetrar
og ásett verð 210 milljónir króna.
Húsið er sagt í góðu ásigkomu-
lagi að utan og hluti þess hefur
verið gerður upp að innan. Húsið
er á hálfs hektara leigulóð og þar
er hitaveita. Húsið gæti nýst vel í
ferðaþjónustu eða annan rekstur.
mm
Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur
samþykkt ýmsar tillögur að skipu-
lagsbreytingum í menningarmálum
ásamt nýju skipuriti og hefur vís-
að þeim til endanlegrar samþykkt-
ar í bæjarstjórn. Mikil undirbún-
ingsvinna liggur að baki tillögun-
um, meðal annars ítarleg úttekt sem
gerð var í janúar á þessu ári á rekstri
menningarmála hjá Akraneskaup-
stað. Í þeirri úttekt var meðal ann-
ars lagt til að stofnað yrði starf yf-
irmanns safna á Akranesi og stöður
yfirmanna bókasafns, héraðsskjala-
safns, ljósmyndasafns og byggða-
safns yrðu lagðar niður í núverandi
mynd. Á hverju safni yrði settur
safnvörður sem bæri ábyrgð á við-
komandi safni en heyri undir áður-
nefndan yfirmann safna. Einnig
var lagt til að ljósmyndasafnið yrði
hluti af héraðsskjalasafni og að opn-
unartíma bókasafnsins yrði breytt.
Markmiðið með úttektinni var að fá
yfirsýn yfir kostnað vegna menning-
armála á Akranesi.
Stofnaður nýr
málaflokkur
Í undirbúningi að tillögum bæjar-
ráðs var stefnt að því að setja á lagg-
irnar eitt safn á Akranesi. Ekki gekk
það eftir enda hamla lög um rekst-
ur bókasafna því að sameina starf-
semi bókasafna við önnur söfn. Bæj-
arráð taldi að markmiðum um sam-
eiginlega sýn í menningarmálum og
samvinnu sérfræðinga yrði ekki náð
nema öll söfnin heyrðu undir sama
yfirmann. Niðurstaða ráðsins er því
að stofna málaflokk með einum yf-
irmanni, forstöðumanni menning-
ar- og safnamála. Bókasafnið mun
áfram halda ákveðnu sjálfstæði sam-
kvæmt lögum og gerir tillaga bæjar-
ráðs ráð fyrir því að yfirmaður bóka-
safns beri starfsheitið bæjarbókar-
vörður og heyri undir forstöðumann
menningar- og safnamála.
Deildarstjórum boðin
breytt störf
Á fundi bæjarráðs 10. september síð-
astliðinn var samþykkt að fela bæjar-
stjóra að undirbúa ráðningu áður-
nefnds forstöðumanns. Undir verk-
svið hans heyrir Bókasafn Akraness,
Byggðasafnið í Görðum, héraðs-
skjalasafn og ljósmyndasafn. Þá mun
forstöðumaðurinn einnig hafa yf-
irumsjón með listaverkasafni Akra-
ness, undirbúning og eftirlit með
samningum við einstaklinga og fyrir-
tæki á sviði menningar- og lista. For-
stöðumanni byggðasafns og deildar-
stjórum í héraðsskjalasafni og ljós-
myndasafni verða boðin breytt störf
og verkefni í samræmi við markmið
um stofnun málaflokksins en bæj-
arráð telur að með samstarfi sér-
fræðinga á sviði safnvörslu, skjala-
mála, ljósmynda og viðburða und-
ir stjórn öflugs leiðtoga verði hægt
að ná fram verðmætara starfi fyrir
íbúa Akraness og gesti. Tillögurnar
ganga jafnframt út á að efla starfsemi
og ímynd safnasvæðisins í Görðum
með það að markmiði að ná fram
fjölgun gesta og auknum sértekjum
í menningarmálum. Þó er talið mik-
ilvægt að halda áfram með mark-
visst samstarf við Þjóðminjasafnið
og Minjastofnun með það í huga að
finna lausn á málefnum Kútters Sig-
urfara.
Byggðasafnið lokað
í vetur
Þá hefur bæjarráð samþykkt breytt-
an opnunartíma byggðasafnsins og
bókasafnsins. Opnunartími bóka-
safnsins verður takmarkaður og
verður opið frá kl. 12 - 18 virka daga
ásamt tveimur morgnum í viku frá
klukkan 10 - 12 vegna sögustunda
fyrir börn annars vegar og átthag-
astunda fyrir almenning hins vegar.
Á laugardögum verður opnunartími
yfir vetrartímann óbreyttur. Breyting
á opnunartíma tekur gildi 1. janúar
2016. Þá er lagt til að Byggðasafn-
ið verði lokað frá og með 1. október
næstkomandi til 1. maí 2016 vegna
endurnýjunar á sýningum. Safna-
skálinn verður þó opinn til 31. des-
ember vegna sýningar í Guðnýjar-
stofu. Þrátt fyrir lokun verður tekið
á móti hópum á tímabilinu.
Ástand Kúttersins
afar lélegt
Einnig var á fundi bæjarráðs farið yfir
stöðu mála Kútters Sigurfara. Full-
trúar Þjóðminjasafns Íslands ásamt
menningar- og safnanefnd Akraness
komu á fundinn til að ræða málefni
skipsins. Kynnt var skýrsla danska
skipasmiðsins Mortens Müller sem
kannaði ástand skipsins í vor og hug-
myndir um framtíðarsýn ræddar. Í
skýrslu Mortens kemur skýrt fram
að ástand skipsins er afar lélegt enda
hafi það staðið á landi í langan tíma.
Hann greinir frá að viðgerð dönsku
skonnortunnar Bonavista, í eigu Na-
tionalmuseet í Danmörku, hafi kost-
að 24 milljónir danskra króna eða um
465 milljónir íslenskra króna. Mor-
ten benti jafnframt á að framtíðar-
hlutverk Sigurfara verði að ráða för
varðandi meðferð hans. Unnt væri
til dæmis að nota hann til kennslu og
miðlunar þekkingar með minni til-
kostnaði.
grþ
Á næstu dögum mun fólk yfir 25 ára
verða boðið sérstaklega velkomið í
Björgunarfélag Akraness. Stofnaður
hefur verið nýr hópur innan félags-
ins sem ætlaður er fullorðnu fólki
sem hefur áhuga á að starfa með
björgunarfélaginu. „Þetta er ný-
liðahópur fyrir fullorðna og gamla
félaga sem gerir fólki kleift að starfa
í sveitinni og taka nýliða prógramm
í rólegheitum, á lengri tíma,“ seg-
ir Jón Gunnar Ingibergsson hjá
björgunarfélaginu. Hann segir fyr-
irkomulagið sniðið fyrir fjölskyldu-
fólk. „Við munum spila þetta eftir
hópnum og í raun reikna með því
að fólk starfi með okkur í sveitinni
þó það fari ekki beint á útkallslista.
Þeir sem hafa áhuga á bílum geta
farið strax í bílaflokk og svo fram-
vegis. Við erum ekki að fara að
senda fólk sem hefur áhuga á sjó-
björgun upp á Skarðsheiði að sofa
í snjóhúsi, við leyfum fólki að sinna
sínu sviði.“ Hann bætir því við að
tekið sé inn í myndina að um sé að
ræða lífsreyndara fólk sem mögu-
lega þurfi ekki jafn mikla þjálfun
og utanum hald eins og yngstu ný-
liðarnir. „Við sláum samt sem áður
ekki af kröfunum, heldur er þetta
tekið á lengri tíma og er fjölskyldu-
vænna.“
Vantar alltaf fleira fólk
Jón Gunnar segir deildina henta
vel fyrir byrjendur en einnig fyrir
þá sem hafa áður verið í björgun-
arsveit og vilji byrja að starfa aft-
ur. Nýir félagar geti tekið þetta
alveg á sínum hraða og að ekki
sé skilyrði að fara á útkallslista.
„Þetta er bara fyrir alla frá 25
ára aldri, bæði þá sem aldrei hafa
verið í björgunarsveit og þá sem
hafa verið einhvern tímann áður.
Það veitir ekki af fleiri félögum
og fjölbreytnin er alltaf kostur.
Okkur vantar bæði reynslu og
breiðara svið af einstaklingum og
svo vantar alltaf fólk í ýmis verk-
efni, svo sem fjáraflanir.“ útskýr-
ir hann. Fyrsti fundur deildar-
innar verður miðvikudaginn 23.
september kl 20:00 í húsi Björg-
unarfélagsins að Kalmansvöllum
2. Frekari upplýsingar veitir Bel-
inda í síma 617-6697, Jón Gunnar
í síma 663-7720 eða á ba@bjorg-
unarfelag.is.
Þess má geta að daginn áður,
22. september verður almenn-
ur nýliðafundur fyrir 16-25 ára.
Sá fundur verður á sama stað og
hefst kl. 20:00.
grþ
Sigurður Ingi Leifsson er fædd-
ur og uppalinn sveitadrengur úr
Andakílnum. Úr sveitinni lá leið-
in til Reykjavíkur þar sem hann
lærði vélvirkjun. Eftir námið
starfaði hann sem skipasmiður
og blikksmiður. Um þrítugt fór
hann á Bifröst þar sem hann lauk
námi í rekstrarfræði vorið 1997.
Síðustu ár hefur hann starfað
sem fyrirtækjaráðgjafi hjá fjár-
málastofnunum og nú er hann að
opna ráðgjafarfyrirtæki í Borgar-
nesi. „Ég hætti í síðasta starfi nú
í upphafi þessa árs og ákvað að
taka mér mjög gott og langt frí.
Ég fór svo að huga að því hvað ég
ætti að gera í framtíðinni en mig
langaði ekki að binda mig aftur
eins og áður. Mig langaði að vera
aðeins frjálsari og þá lá bein-
ast við að vera með eigin rekst-
ur. Ég fékk þessa hugmynd um
að fara af stað með ráðgjafarfyr-
irtæki og lét spyrjast út að þetta
væri möguleiki. Fólk fór svo að
hafa samband við mig og spyrja
hvenær ég myndi byrja. Ég var
því kominn með nokkur verkefni
til nokkurra mánaða áður en ég
byrjaði. Það kom mér af stað og
ég byrjaði því í raun fyrr en ætl-
unin var upphaflega,“ segir Sig-
urður Ingi.
Hjálpar fyrirtækjum að
bæta sín kjör
Ráðgjafarfyrirtæki Sigurðar Inga
hefur nú verið opnað á skrifstofu
hjá Hugheimum, við Bjarnarbraut
8 í Borgarnesi. „Hugmyndin var
að þetta yrði fyrirtæki sem veitti
ráðgjöf varðandi fjármálaskipun
fyrirtækja. Þrátt fyrir að fyrirtæki
standi mjög vel geta þau verið með
óhagstæðan fjármálastrúktúr. Lán
geta t.d. verið til of langs tíma eða
of skamms. Jafnvel getur verið að
kjör fyrirtækja séu ekki eins og þau
ættu að geta verið með miðað við
styrk þeirra. Það er þá mitt hlut-
verk að taka þetta út og sjá hvort
möguleiki er til að auka hagræð-
ingu og bæta kjör fyrirtækja. En
eins og ég segi þá var þetta upphaf-
lega hugmyndin en svo gæti þetta í
rauninni þróast í hvaða átt sem er.
Minn styrkur liggur í greiningum
og ég er að leita leiða til að nýta
þá þekkingu sem ég bý yfir á því
sviði,“ segir Sigurður. Hann mun
eingöngu taka að sér ráðgjöf fyr-
irtækja og einyrkja og segir næg
verkefni vera í sveitafélaginu. „Það
er mikið um landbúnað í Borgar-
byggð og það eru auðvitað öðru-
vísi fyrirtæki líka. Ég hef mikla
þekkingu úr bændaumhverfinu,
bæði hef ég unnið við landbúnað
og einnig vann ég hjá Hagþjón-
ustu landbúnaðarins á sínum tíma.
Það er þó ekkert lokað fyrir það
að taka fyrirtæki úr öðrum lands-
hlutum,“ segir Sigurður Ingi. Um
framhaldið segir hann ekki úti-
lokað að fyrirtækið muni þróast,
þó svo að það sé ekkert skipulagt.
„Þróunin má koma á óvart, ég er
ekki með neina stefnu þannig séð
hvað það varðar. Ef verkefni kem-
ur í mína átt og ég tel mig ráða við
það þá skiptir engu máli hvort það
sé eitthvað sem ég hef skilgreint
fyrir fram eða ekki,“ segir Sigurð-
ur að lokum. arg
Húsmæðraskólahúsið til hægri en fjær er grunnskólinn, félagsheimilið Þinghamar
og sundlaugin. Lengst til vinstri er garðyrkjustöðin Laugaland.
Ljósm. Mats Wibe Lund.
Húsmæðraskólahúsið
boðið til sölu
Sífellt er þörf fyrir endurnýjun í hópi björgunarsveitafólks. Björgunarfélag Akra-
ness auglýsir bæði eftir almennum nýliðum og fólki í nýjan hóp eldri en 25 ára.
Nýr hópur hjá Björgunar-
félagi Akraness
Opnar ráðgjafarfyrirtæki í Borgarnesi
Miklar breytingar eru framundan í menningar- og safnamálum á Akranesi miðað
við fundargerð bæjarráðs.
Miklar breytingar framundan í
menningar- og safnamálum á Akranesi