Skessuhorn - 16.09.2015, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2015 13
Ísbrjóturinn Arctic Sunrise, sem er
í eigu Greenpeace-samtakanna, er á
ferð við Íslandsstrendur þessa dag-
ana. Sást til skipsins á mánudag-
inn þar sem það lá fyrir ankerum
skammt utan við Arnarstapa á Snæ-
fellsnesi. Skipverjar lyftu ankerum
og lögðu af stað frá Arnarstapa til
Reykjavíkur skömmu fyrir hádegi
í gær, þriðjudaginn 15. september.
Samkvæmt upplýsingum frá áhöfn
Arctic Sunrise leitaði skipið vars
vegna hvassviðris á Grænlandssundi
og var statt við Arnarstapa vegna
áætlaðrar hafnarkomu í Reykjavík.
Þar er stefnt að því að senda þyrlu
í land og skipta um áhöfn. Þetta
kemur fram á vef Fiskifrétta.
Í frétt á vísir.is er haft eftir Sune
Scheller, leiðangursstjóra Norður-
skautsverndar grænfriðunga, að við
Grænland hafi skipverjar „skráð og
flett ofan af framferði olíuleitarfyr-
irtækis sem notist við hljóðbylgj-
ur sem framkallaðar eru með gríð-
aröflugum loftbyssum til að leita að
olíu og gasi djúpt undir sjávarbotn-
inum.“
Þar kemur einnig fram að skip-
ið verði í höfn í Reykjavík fram á
sunnudag þegar haldið verður til
Amsterdam. Fólki verði boðið að
koma og skoða sig um í skipinu
hluta úr degi á meðan það liggur við
bryggju í Reykjavík en enn hafi ekki
verið ákveðið hvaða dag það verði.
Arctic Sunrise hefur komið við
sögu í fjölmörgum herferðum græn-
friðunga víða um heim. Nafn þess
komst þó í heimsfréttirnar þegar
skipverjar gerðu tilraun til að klifra
upp á rússneskan borpall í Barents-
hafi í september 2013. Var það liður
í mótmælaaðgerðum grænfriðunga
gegn olíuleit og -vinnslu á norður-
slóðum. Rússnesk yfirvöld hand-
tóku skipverja og kyrrsettu skipið
í Múrmansk. Áhöfninni var sleppt
hundrað dögum síðar en skipinu
var ekki skilað fyrr en átta mánuð-
um síðar.
kgk
Ísbrjótur Greenpeace
við Íslandsstrendur
Arctic Sunrise lá við ankeri út af Arnarstapa á sunnudaginn. Ljósm. þa.
Hjá Pacta Lögmönnum starfa á þriðja tug reyndra
lögmanna á 14 starfsstöðvum víða um land.
Lögmenn Pacta búa yfir víðtækri reynslu og þekk-
ingu á flestum sviðum lagaumhverfis sveitarfélaga,
fyrirtækja, stofnana og einstaklinga.
Markmið Pacta er að veita viðskiptavinum um land
allt gæða lögmannsþjónustu og ráðgjöf, byggða
á þekkingu, trausti og áreiðanleika sem skilar
faglegum og heiðarlegum vinnubrögðum. Með
samræmdu upplýsingakerfi og samskiptalausnum
hafa lögmenn Pacta einstakan aðgang að reynslu
og sérþekkingu annarra lögmanna stofunnar, hvar
sem þeir starfa á landinu.
Nánari upplýsingar veitir Benjamín Axel Árnason, verkefnastjóri Pacta, í síma 440 7900
og á netfang benjamin@pacta.is. Umsóknarfrestur er til 21. september 2015.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarupplýsingar.
Ráðið verður í starfið samkvæmt nánara samkomulagi.
Pacta lögmenn ı Laugavegi 99 ı 101 Reykjavík ı Sími 440 7900
Akranes og Vesturland
Við leitum að lögfræðingi til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu Pacta á Vesturlandi,
með starfsstöð á Akranesi.
Meðal verkefna eru fjölbreytt viðfangsefni á sviði lögfræðilegrar ráðgjafar og samningagerðar,
málflutningur, ábyrgð á mætingum í héraðsdóma og hjá Sýslumannsembættum. Við leitum
eftir ákveðnum og drífandi einstaklingi sem er metnaðarfullur og sjálfstæður í starfi og býr yfir
mikilli samskiptafærni. Æskilegt að viðkomandi hafi málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi.
Við viljum ráða
lögmann til starfa
Reykjavík ı Hafnarfjörður ı Akranes ı Ísafjörður ı Blönduós
Sauðárkrókur ı Siglufjörður ı Dalvík ı Akureyri ı Húsavík
Egilsstaðir ı Reyðarfjörður ı Selfoss ı Vestmannaeyjar
Selfoss
Fjallabyggð
Reykjavík
Akranes
Reyðarfjörður
Egilsstaðir
Akureyri
Húsavík
Ísafjörður
Blönduós
Dalvík
Sauðárkrókur
Vestmannaeyjar
Hafnarfjörður
LÖGMENN
ALLRA
LANDSMANNA
Tillaga að deiliskipulagi fyrir
olíubirgðastöð á Litlasandi í
Hvalfjarðarsveit
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 25. ágúst 2015
að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir olíubirgðastöð á
Litlasandi í Hvalfjarðarsveit samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulags-
laga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið tekur til 83 ha svæðis á Litlasandi við norðurströnd
Hvalfjarðar.
Svæðið hefur verið byggt upp og rekið sem olíubirgðastöð í áratugi.
Deiliskipulag þetta er unnið til að Umhverfisstofnun geti framlengt starfsleyfi
fyrir olíubirgðastöðina.
Unnin var lýsing fyrir deiliskipulagið og var hún kynnt hagsmunaaðilum í
samræmi við skipulagslög.
Tillaga liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3.
Tillöguna má einni sjá á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hvalfjardarsveit.is,
frá 11. september til og með 28. október 2015.
Athugasemdir við tillögu breytingar deiliskipulags skulu vera skriflegar og
berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 28. október 2015 á skrifstofu Hvalfjarðar-
sveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur
samþykkt að afnema hámarksregl-
ur um hlutfall fagfólks í leikskól-
um bæjarfélagsins. Þetta var sam-
þykkt á fundi bæjarráðs 10. sept-
ember síðastliðinn þar sem leik-
skólastjórar og fulltrúar skóla- og
frístundaráðs ræddu við bæjarráð
um breytingar á reglum um 75%
takmörkun á ráðningum fagfólks í
leikskólum bæjarins.
Frá árinu 2011 hefur ákvörðun
fjölskylduráðs haldist óbreytt þess
efnis að hlutfall fagfólks af heildar-
starfsmannafjölda leikskóla skyldi
vera 75% að undanskildum leik-
skólastjóra, aðstoðarleikskólastjóra
og starfsfólki í eldhúsi. Sú ákvörð-
un var tekin í kjölfar lagasetning-
ar um starfsheiti leikskólakennara,
þar sem kveðið er á um að lágmarki
2/3 hlutar stöðugilda við kennslu,
umönnun og uppeldi barna í hverj-
um leikskóla skulu teljast til stöðu-
gilda leikskólakennara. Í apríl síð-
astliðnum skoruðu leikskólakenn-
arar á Akranesi á bæjarstjórn og
bæjarráð Akraness að afnema
þessa 75% takmörkun á ráðning-
um fagfólks í leikskólum bæjarins
og ráða í allar lausar stöður ein-
staklinga með leyfisbréf leikskóla-
kennara. Vísa leikskólakennararn-
ir í svar menntamálaráðuneytis-
ins vegna fyrirspurnar sem þeir
sendu ráðuneytinu. Í svarinu kem-
ur fram að það sé á hendi rekstr-
araðila að ákveða það þjónustu-
stig, fjölbreytni starfsmannahóps
og þau gæði náms sem hann vill
að leikskólinn hafi upp á að bjóða,
að teknu tilliti til lágmarksviðmiða
í lögum og reglugerðum um leik-
skólastigið. Einnig segir í svarinu
að ráðuneytið líti þannig á að það
hafi ekki verið markmið löggjafans
að túlka beri 2/3 hlutfalls viðmið-
ið sem hámark. Leikskólakenn-
arar á Akranesi bentu á það í er-
indi sínu að á engu öðru skólastigi
væri takmörkun á fagmenntun
og að síðastliðin ár hafi þetta há-
mark leitt til þess að stjórnendur
leikskólanna hafi ekki auglýst eftir
leikskólakennurum í lausar stöður
umfram það.
grþ
Ekki lengur takmarkanir á fagmenntun
í leikskólum á Akranesi