Skessuhorn


Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 16.09.2015, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 201516 Við vorum miklu betri í fyrri heimaleiknum, áttum allan leikinn. En í þeim seinni voru mjög erfiðar aðstæður og það var erfitt að spila á móti vindinum í fyrri hálfleik,“ sagði Unnur Ýr Haraldsdóttir, fyr- irliði ÍA. Liðið tryggði sér sem kunnugt er sæti í úrvalsdeild næsta sumar með samanlögðum 4-2 sigri á Grindavík í tveimur leikj- um. Liðið vann fyrri leikinn 3-0 á heimavelli en tapaði þeim síðari í Grindavík með tveimur mörkum gegn einu eftir að heimaliðið skor- aði tvö mörk á fyrstu tuttugu mín- útum leiksins. „Við gerðum þetta kannski óþarflega spennandi fyrir áhorfendur,“ segir Unnur og bros- ir. „En við spiluðum miklu betur í seinni hálfleik. Þær fengu engin færi og við áttum leikinn.“ En til að leika í úrslitakeppni um laust sæti í úrvalsdeild þarf fyrst að komast þangað. Liðið tryggði sér í raun ekki sæti í úrslitakeppn- inni fyrr en í síðustu leikjum rið- ilsins og Unnur kveðst ekki nógu ánægð með spilamennskuna fram- an af sumri, segir liðið hafa far- ið illa af stað og fyrri umferðina hreinlega ekki hafa verið nógu góða. „En við sýndum hvað býr í liðinu í seinni umferðinni,“ segir hún en bætir því við að varnarleik- ur liðsins hafi verið góður allt frá fyrsta leik. Liðið fékk aðeins á sig fimm mörk í allt sumar, að mörk- unum tveimur á móti Grindavík meðtöldum. Á köflum gekk erfið- lega að skora, framan af sumri, en í síðustu leikjum liðsins fór mörk- unum heldur betur að rigna. Skor- aði liðið hvorki meira né minna en 23 mörk í síðustu þremur leikjum riðilsins og 41 í 15 leikjum þegar úrslitakeppnin er talin með. Var það fyrirliðinn sjálfur sem var iðn- astur við kolann, en Unnur skor- aði 11 mörk í þessum 15 leikjum. „Það var persónulegt markmið hjá mér fyrir sumarið að skora meira. Mér líkar það vel, það er gaman að skora,“ segir Unnur og brosir. „En ég er líka búin að leggja upp slatta af mörkum fyrir liðsfélagana.“ En fyrirliðinn vill leggja pers- ónulegan þátt sinn í afreki sum- arsins til hliðar og segir að helsti styrkleiki liðsins sé sterk liðsheild. „Margir leikmenn í liðinu spiluðu saman upp alla yngri flokkanna og við erum farnar að þekkja mjög vel inn á hvora aðra. Þetta er ótrúlega samheldinn hópur og það er geggj- að að vera hluti af honum.“ Reynslunni ríkari að hafa farið upp áður Unnur var hluti ÍA liðsins sem vann sér sæti í úrvalsdeild fyrir tveimur árum síðan, þá eftir sigur á KR í tveimur leikjum. Hún segir upplif- unina nú ólíka þeirri þegar liðið fór síðast upp. „Það hefur orðið mikil endurnýjun og liðið gengið í gegn- um margar mannabreytingar. Þetta er öðruvísi en síðast en samt alveg jafn gaman,“ segir Unnur. Ein breyting sem gerð var innan hópsins frá því í fyrra fólst í því að Unnur var skipaður fyrirliði liðsins og kveðst hún kunna vel við hlut- verkið. „Það eru forréttindi að fá að leiða þennan flotta hóp. Ég finn mig vel sem fyrirliði og þetta gaf mér aukið sjálfstraust fyrir sum- arið. Maður þarf að passa upp á að öllum líði vel. Ég held að allir upplifi að þeir geti talað við mig og leitað til mín,“ segir hún. Hvort Unnur verður fyrirliði næsta sumar og hvort félagið á eft- ir að fá til sín fleiri leikmenn á enn eftir að koma í ljós. Leikmenn liðs- ins séu hins vegar staðráðnir í því að halda liðinu uppi og njóta þess að spila í deild þeirra bestu. „Það var ógeðslega gaman í úrvalsdeild- inni síðast þó það hafi ekki geng- ið nógu vel. Við erum reynslunni ríkari að hafa farið upp áður. Þurf- um að vinna vel á undirbúnings- tímabilinu og ætlum klárlega að halda okkur uppi og sýna að við erum alvöru lið. Ég held við höf- um kannski haft gott af því að fara aftur niður í 1. deild, það þjapp- aði liðinu saman og við erum betri núna en síðast þegar við fórum upp.“ Gallað keppnis- fyrirkomulag Samtals sendu 19 félög lið til keppni í 1. deild kvenna síðastliðið sumar og var leikið í þremur riðl- um. Fyrirkomulagið hefur verið knattspyrnuáhugamönnum umtals- efni og vakið athygli en ekki vegna góðs. „Það á að vera löngu búið að setja upp 1. og 2. deild, það myndi bara efla knattspyrnuna. Þá yrðu hörkuleikir allt sumarið en ekki bara þrír eða fjórir hörkuleikir. Ég veit að einhver félög hættu við að senda lið því þau hefðu aldrei átt séns því það er svo mikill munur á liðunum,“ segir Unnur. „Ef það væri önnur deild fyrir neðan fengju liðin sem spiluðu þar líka hörku- leiki allt sumarið,“ segir hún. Enn fremur nefnir hún að fyr- irkomulagið sé ósanngjarnt gagn- vart liðum sem spila vel allt sum- arið, fari jafnvel í gegnum riðil- inn án taps, en þurfi svo að leika í úrslitakeppni til að tryggja sér sæti í úrvalsdeild. „Bæði liðin sem kom- ust upp, við og FH, lentu í öðru sæti í sínum riðlum. HK/Víking- ur var sjö stigum á undan okkur í riðlinum og þær töpuðu ekki leik fyrr en í úrslitakeppninni og kom- ust þess vegna ekki upp. Þær eru auðvitað brjálaðar og ég skil það mjög vel,“ segir hún og veltir fyr- ir sér hvort ef til vill væri hægt að taka á getumun liða í 1. deild með því að fjölga í úrvalsdeildinni. „Síð- ustu ár hafa bara verið þrjú lið sem fara upp og niður. Öll liðin þar fyrir ofan eru nokkuð örugg með sætið í deildinni. Ef liðunum yrði fjölg- að yrði meiri samkeppni alls stað- ar. Þá fengjum við líka fleiri leiki,“ segir Unnur og segir fáránlegt að spila sjaldnar en einu sinni í viku að meðaltali allt sumarið og svo allt í einu tvisvar í viku í úrslitakeppn- inni. „Við viljum fleiri leiki og ætl- umst hreinlega til þess að mótið sé sett betur upp. Ef við hefðum til dæmis ekki komist í úrslitakeppn- ina núna þá hefðum við bara spilað 10 leiki í allt sumar.“ Mikið af góðu fólki í kringum liðið Þegar blaðamaður hitti Unni var úrslitaleikurinn um Íslandsmeist- aratitil 1. deildar á döfinni. Unn- ur hafði orð á því að þrátt fyrir að bæði liðin hefðu þegar tryggt sér sæti í úrvalsdeild hefði liðið engu að síður mikinn hug á að vinna leikinn. „Eftir að kom í ljós að við fengjum heimaleik urðum við strax staðráðnar í að vinna leikinn og klára sumarið á að vinna bikarinn á heimavelli,“ sagði hún og vonaðist eftir góðri stemningu á vellinum. „Ég er ótrúlega ánægð með mæt- inguna á síðustu leiki. Það er allt- af ákveðinn kjarni sem mætir á alla leiki og við erum ótrúlega þakklátar öllum sem standa við bakið á liðinu. Það eiga allir þátt í þessu með okk- ur. Þjálfarar, sjúkraþjálfarar, nudd- arar, liðstjórar, áhorfendur og fleiri. Ég er ótrúlega þakklát fyrir hvað það er mikið af góðu fólki í kring- um okkur. Liðsheildin teygir sig langt út fyrir liðið.“ Svo fór að ÍA sigraði FH 1-0 í úr- slitaleik 1. deildarinnar og lyfti Ís- landsmeistarabikarnum á heima- velli laugardaginn 12. ágúst síðast- liðinn. kgk „Liðsheildin teygir sig langt út fyrir liðið“ Unnur Ýr Haraldsdóttir fyrirliði ÍA Unnur tekur við bikarnum eftir 1-0 sigur gegn FH í úrslitaleiknum á laugardaginn. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson. Unnur Ýr Haraldsdóttir, fyrirliði ÍA, með Íslandsmeistarabikarinn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.