Skessuhorn - 16.09.2015, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2015 31
orð í leigubílum og á götuhornum
og verið dregin inn í dansandi jarð-
arfarir. „Í Ghana er lífi þeirra sem
falla frá fagnað, í fimm daga er glaðst
yfir manneskjunni. Í gær þegar ég
labbaði heim af matarmarkaðnum
var verið að grilla kött til matar í
næstu götu. Hænur og ungar trítla
við vegkanta og geitur ganga frjáls-
ar. Það er alltaf eitthvað að brenna,
sérstaklega í lok dags þegar rusli er
safnað saman og kveikt eru lítil bál.
Ég hef til dæmis aldrei séð ruslabíl
hérna,“ útskýrir Steinunn Eik. Hún
segir stjórnmálamenn spillta og lög-
regluna á svæðinu gagnslausa. „Hún
er í því að gefa vestrænum kon-
um undir fótinn og þykjast vera að
vinna vinnuna sína með því að lýsa
með vasaljósi inn í bíla á kvöldin.
Þá skiptir ekki máli hvort bílstjór-
inn er allsgáður eða ekki og það er
hægt að borga sig út úr alls kyns
aðstæðum. Hér er mikil skipulags-
óreiða og engin yfirsýn í þeim mál-
um. En samt er Ghana mun þróaðra
en mörg afrísk ríki. Það er því verk
að vinna.“ Hún segir fólkið í Ghana
þó almennt vera mjög vinalegt og
hvergi hafi hún séð jafn brosmild og
glöð börn. „Þau leika sér með göm-
ul bíldekk og finna gleði í einfald-
leikanum. Þegar ég kem heim úr
vinnunni bíða mín stundum börn úr
hverfinu og koma hlaupandi á móti
mér með bros á vör.“
Rafmagnsleysi vandamál
Í Ghana er rafmagnsleysi viðvarandi
vandamál og rafmagn fer af borg-
arhverfum nánast daglega, að sögn
Steinunnar Eikar. Í nóvember byrj-
ar þriggja mánaða sandfok frá Sahara
eyðimörkinni, sem leggst yfir Vest-
ur-Afríku. „Náttúrleg loftræsting í
húsum sem er ákjósanlegur kostur
vegna orkusparnaðar er því vanda-
söm.“ Aðspurð að því hvað sé fram-
undan segist hún vilja kynnast Ghana
betur, reyna að skilja betur forsend-
ur fyrir góðri hönnun og hvað virk-
ar best í landinu. „Það hefur mikið
verið byggt af dýrum lúxus íbúðum
sem enginn hefur efni á, nema erlend
olíufyrirtæki. Hér þarf að byggja fyr-
ir almenning á umhverfisvænan hátt
og það er áskorun sem ég hlakka til
að takast á við,“ segir hún spennt.
Hún segist leggja áherslu á notkun
sólarrafhlaðna og innlends efnivið-
ar í sinni hönnun, enda er allt inn-
flutt mjög dýrt. „Það er einnig mik-
il þörf fyrir að þjálfa og auka færni
innfæddra í húsbyggingum og með-
höndlun á byggingarefnum sem eru
til staðar hér og við leitumst við að
gera það í okkar verkefnum.“
Framtíðin kemur í ljós
Steinunn Eik er búin að dvelja í tæp-
an mánuð í Ghana í þetta skiptið en
stefnir á að vera í Afríku í nokkurn
tíma. „Ég er með vegabréfsáritun til
eins árs, með möguleika á framleng-
ingu. Móður minni ekki til mikill-
ar lukku, henni finnst komið nóg af
ævintýramennsku Steinunnar,“ seg-
ir hún og hlær. „En mér líður vel.
Ég er að blómstra sem ungur arki-
tekt og þroskast sem persóna. Hér
fæ ég tækifæri og frelsi til að vinna
spennandi verkefni og framtíðin - já
hún kemur bara í ljós,“ bætir Stein-
unn Eik við að endingu.
grþ/ Ljósm. Steinunn Eik Egils-
dóttir.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Skógahverfis 2. áfanga
Bæjarstjórn Akraness auglýsir hér með tillögu að breytingu á
deiliskipulagi Skógahverfis 2. áfanga samkvæmt 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Um er að ræða breytingu á skipulagsskilmálum á þá leið að
nýtingarhlutfall einbýlishúsalóða á deiliskipulagssvæðinu
verður 0,35 í stað 0,50.
Breytingartillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins
1. hæð að Stillholti 16-18, Akranesi frá og með 16. sept. til og
með 30. okt. 2015. Tillagan er einnig til kynningar á heimasíðu
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að
gera athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn
athugasemdum rennur út föstudaginn 30. okt. 2015. Skila þarf
inn skriflegum athugasemdum í þjónustuver Akraneskaupstaðar
að Stillholti 16-18 eða á póstfangið akranes@akranes.is Þeir sem
ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest
teljast samþykkir henni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Akraneskaupstaðar
stætt að hönnun heimilis og lítillar
dansmiðstöðvar í Gíneu. „Ég stefni
á að fara þangað fljótlega og kynna
mér aðstæður betur, ræða við verk-
fræðinga og skoða efnivið. Svo það
er ýmislegt spennandi í kortunum.“
Stéttaskiptingin
kemur á óvart
Steinunn Eik býr nú í miðborg Accra
þar sem hún deilir húsnæði með
franskri stelpu. „Við búum í mikl-
um suðupotti, hér er mikil umferð
vörubíla sem koma með birgðir á
stærsta markað landsins sem er hér í
næsta hverfi. Svo spilar fólk og dans-
ar á götum úti hvenær sem er sólar-
hringsins.“ Hún hefur því ákveðið að
flytja í rólegra hverfi í lok september.
Þar mun hún búa í stóru húsi, hálf-
gerðri alþjóðlegri kommúnu að eigin
sögn. „Ég mun búa þar með níu öðr-
um ungmennum frá Kanada, Úganda
og Þýskalandi. Allt er þetta fólk hér í
starfsnámi eða hjálparstarfi af ýmsum
toga.“ Hún segir að sú mikla stétta-
skipting sem er í Ghana hafi komið
henni mest á óvart við lífið þar. „Ég
vissi auðvitað að lífið væri mjög ólíkt
því sem ég væri vön. En stéttaskipt-
ingin kom mest á óvart. Hér á ég vini
sem hafa aldrei farið í skóla. Þetta eru
jafnaldrar mínir sem í dag eru að læra
að lesa, fólk sem er með um tíu þús-
und krónur í mánaðartekjur. En hér
þekki ég líka fólk sem á miklar eign-
ir og ekur um á rándýrum bílum og
hefur ferðast víða og lifir í allt öðrum
heimi en þeir lægra settu. Það sem
er sláandi er bilið á milli ríkra og fá-
tækra, millistéttin er lítil, þú ert ann-
að hvort ríkur eða fátækur.“
Kynþáttur skiptir máli
Það er annað en stéttaskipting-
in sem kom Steinunni Eik á óvart.
Hún segir að það hafi verið sláandi
og sorglegt að sjá hvernig kynþáttur
fólks hefur enn þann dag í dag af-
gerandi áhrif. „Ég sem hvít kona get
gengið inn í banka og fengið banka-
lán. En nágrannar mínir sem eru
fæddir hér og hafa alltaf staðið skil
á sínu eiga mun erfiðara með að fá
slíka þjónustu.“ Hún segir Vestrænt
fólk og fólk frá Arabalöndunum
hafa komist í háar stöður, grætt mik-
ið á ódýru vinnuafli og notið hlunn-
inda vegna litarháttar síns. „Þetta er
sorgleg staðreynd, en unga fólkið
hér í Ghana sem er að mennta sig
í enn ríkara mæli gefur mér von um
að hlutirnir séu að þróast til batn-
aðar og hér er kraftur í fólki um að
byggja upp betra samfélag,“ bætir
Steinunn Eik við.
Hvergi glaðlegri börn
Lífið í Afríku er oft og tíðum skraut-
legt. Steinunn Eik hefur lent í ýms-
um fyndnum aðstæðum eftir að hún
flutti til Afríku. Hún hefur vaknað
með eðlu á koddanum, fengið bón-
Þessa mynd tók Steinunn Eik í Palestínu og vann ljósmyndakeppni Oxarch 2014, félag arkitektúrnema í Oxford Brookes há-
skóla. Í baksýn er moska þorpsins og að baki hennar útsýni til Jerúsalem en þangað hafa fáir Palestínumenn leyfi til að fara.
Þessi börn í miðborg Accra æfa afro dans nokkrum sinnum í viku. Þau eru öll frá efnalitlum heimilum og danskennarinn, sem kennir frítt, segir dansinn hjálpa þeim að
halda sér á beinu brautinni.
Víða má finna fallegar strendur og náttúru í Ghana. Hér er ströndin Cape Coast
sem á sér þó myrka sögu. Þaðan voru þrælar frá allri Vestur - Afríku settir á skip
fyrr á tímum og fluttir til Vesturheims.