Skessuhorn - 16.09.2015, Side 33
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2015 33
Fjórar sýningar að eigin vali
á besta verðinu.
Áskriftarkort
Borgarleikhússins
Vertu með
í vetur!
Miðasala
568 8000 | borgarleikhus.is
Fermingarsystkin úr árgangi 1944 á
Akranesi fara árlega í ferðalag sam-
an. Þrátt fyrir að 57 ár séu frá ferm-
ingunni sjálfri er hópurinn sam-
heldinn og njóta ferðalögin vaxandi
vinsælda eftir því sem tíminn líð-
ur. Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum var það fjölmennur hóp-
ur sem mætti í hina árlegu ferð í
ágúst síðastliðnum, þegar farið var
í ferðalag um Reykjanesið. Glatt
var á hjalla í ferðinni og skemmtu
Skagamenn - og konur, sér ljóm-
andi vel.
grþ / Ljósm. Þráinn Þorvaldsson.
Við Íslendingar eru flestir stolt-
ir af fallegri náttúru landsins enda
búum við á landi sem skartar mik-
illi fegurð. Þrátt fyrir að sjálfsagt
flestir hugsi mjög vel um náttúruna
þá mætti því miður margt betur
fara. Rusl í vegköntum og runnum
er t.d. alltof algeng sjón, sérstak-
lega þegar snjór fer að bráðna að
vori. En jákvæðir hlutir hafa einn-
ig verið að gerast og má þar nefna
sem dæmi að nú stendur viðskipta-
vinum í fjölda verslana kostur á að
velja aðrar leiðir en burðarplast-
poka þegar keypt er inn. Þar má til
dæmis nefna mismunandi tegund-
ir margnota poka sem nú eru seld-
ir ódýrt samhliða plastpokaum, sem
og maíspoka sem sagðir eru mun
umhverfisvænni en plastið.
Dagur íslenskrar
náttúru
Þrátt fyrir að margt mætti bet-
ur fara þegar kemur að framkomu
okkar við náttúruna þá höfum við
þó tileinkað henni einn dag á ári.
Dagur íslenskrar náttúru er ein-
mitt í dag, 16. september. Í til-
efni þess ákvað Skessuhorn að slá
á þráðinn til Theódóru Matthías-
dóttur, umhverfisfulltrúa sveitar-
félaganna fimm á Snæfellsnesi, en
hún hefur aðsetur á Náttúrustofu
Vesturlands í Stykkishólmi. Theó-
dóra sagði sveitarfélögin ekki hafa
haft tök á því að skipuleggja neitt
sérstakt þennan dag þótt dagurinn
sé sannarlega mikilvægur. Sveit-
arfélögin á Snæfellsnesi vinni á
hverjum degi í átt að því að standa
vörð um íslenska náttúru og hvetja
að sjálfsögðu íbúa til þess að hafa
náttúruna og umhverfið sérstak-
lega í huga á þessum stóra degi.
„Við erum ekki með neitt ákveð-
ið planað á þessum degi sérstak-
lega, við höldum náttúrulega alltaf
okkar striki og reynum að vera um-
hverfisvæn þennan dag eins og alla
hina,“ segir Theódóra.
Vilja að fólk noti helst
margnota poka
Aðspurð hvað sé efst á baugi hjá
sveitarfélögum Snæfellsness í um-
hverfismálum um þessar mundir
segir Theódóra verkefnið „burð-
arplastpokalaust Snæfellsnes“ vera
stærsta verkefnið þessar vikurn-
ar. Umhverfis- og auðlindaráðu-
neytið styrkti verkefnið og stefnt
er að því að það verði unnið í sam-
starfi við Svæðisgarð Snæfellinga
og markaðsfulltrúa á Snæfellsnesi.
„Við stefnum að því að draga veru-
lega úr notkun burðarplastpoka
hér á Snæfellsnesi og skemmtileg-
ast væri að ná að útrýma þeim al-
gjörlega. Í tengslum við verkefnið
munu sveitarfélögin á Snæfellsnesi
sjálf taka sig á og vinna í að minnka
plastpokanotkun hjá sínum stofn-
unum,“ segir hún. Svona verkefni
krefst mikillar samvinnu, bæði við
íbúa og fyrirtæki. Það skiptir mestu
máli að íbúar og verslanarekendur
vilji taka þátt í þessu átaki með okk-
ur og við vonum að allir verði já-
kvæðir. Í fyrra stóð Umhverfishóp-
ur Stykkishólms fyri tilraunaverk-
efni til að minnka burðarplastpoka í
Stykkishólmi og gekk það mjög vel,
þó auðvitað megi alltaf gera betur.
Við mælum alltaf með því við fólk
noti helst fjölnota poka eða kassa
en þegar því er ekki komið við að
velja þá maíspoka fram yfir plast-
pokana. Þá er líka hægt að nota
sem ruslapoka undir almennt og
lífrænt sorp.“ Aðspurð hvort leggja
eigi til við kaupmenn að taka alveg
út plastpokana segir Theódóra það
vera draumastöðuna.
Hefur staðið í
rúman áratug
Í tilefni þess að nú er meira en ára-
tugur síðan sveitarfélögin á Snæ-
fellsnesi skráðu sig í vottunarferli á
starfsemi sinni er um þessar mund-
ir unnið að eins konar áratugs-
skýrslu. Þar verður fjallað í stuttu
máli um reynslu sveitarfélaganna
af umhverfisvottun. „Við erum að
taka saman skýrslu yfir starfsem-
ina síðustu tíu ár og verður skýrsl-
an vonandi tilbúin á næstu vikum.
Þegar skýrslan er klár verður henni
dreift á öll heimili á Snæfellsnesi
og til allra sveitarstjórna á land-
inu. Henni er þannig ætlað að upp-
lýsa íbúa betur um það hvað felst í
vottun og hverju sveitarfélögin hafa
nú þegar áorkað í umhverfismálum
en hún er einnig hugsuð sem eins
konar leiðbeiningarrit til annarra
sveitarfélaga sem hafa hug á því
að finna leiðir til að draga úr nei-
kvæðum umhverfisáhrifum sínum“
segir Theódóra. „Ég mæli með
að fólk fari á sinn uppáhaldsstað í
náttúrunni og njóti hennar á þess-
um degi íslenskrar náttúru,“ segir
Theódóra að endingu.
arg
Fermingarsystkin á árlegu ferðalagi
Það var líf og fjör
á Reykjanesinu.
Mynd af hópnum við eldri Garðaskagavitann.
Sveitarfélögin á Snæfellsnesi vilja
draga úr notkun burðarplastpoka
Theódóra Matthíasdóttir um-
hverfisfulltrúi á Snæfellsnesi.