Skessuhorn - 30.09.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 40. tbl. 18. árg. 30. september 2015 - kr. 750 í lausasölu
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Lúsina burt!
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 898 1779
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
OPIÐ
15.00 – 21.00
Hópapantanir í
síma 898-1779
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Haustið kemur við sögu í efnistökum Skessuhorns þessa vikuna. Fjölbreytileiki þess þema á sér fá takmörk. Við ræðum
m.a. um mat, veiði, ræktun og nytjar, skreytingar, líkamsrækt og fleira. En hann Sigurður Magnússon var á ferð í Borgar-
firði í haustblíðunni í liðinni viku. Tók hann þessa mynd við Sílatjörn, sem er í hrauninu neðan við Gilsbakka í Hvítársíðu.
Haustlitirnir skörtuðu sínu fegursta og speglunin í vatninu magnaði upp litbrigðin. Í baksýn glittir í Strútinn en jökullinn kúrir
bak við ský.
Hilmars Malmquist forstöðu-
maður Náttúruminjasafns Ís-
lands fór ásamt hópi annarra
vísindamanna að Ytri-Görð-
um í Staðarsveit á föstudag-
inn til að taka sýni úr haus-
kúpunni sem þar fannst í lok
ágúst. Tekin voru sýni úr haus-
kúpunni og skoðaðar aðstæð-
ur á svæðinu sem er eitt merki-
legasta vé rostunga sem vitað
er um hér við land. Hauskúp-
an sem fannst í sumar er mjög
heilleg og hefur báðar skögul-
tennur. Rannsóknir vísinda-
manna hafa meðal annars leitt í
ljós að nokkrir vel tenntir rost-
ungshausar og stakar rostung-
stennur sem fundust við Barða-
staði í Staðarsveit árið 2008
hafi leitt í ljós að þau bein eru
2100 til 2200 ára gömul, það er
frá því einni til tveimur öldum
fyrir fæðingu Krists. Hauskúp-
unni sem fannst í Garðafjöru
í sumar svipar mjög til þeirra
sem fundust fyrir átta árum síð-
an á Barðastöðum, sem er jörð
nokkru vestar við Löngufjörur.
Þessir beinafundir gefa okkur
sterkar vísbendingar um fast
aðsetur rostunga við Ísland fyrr
á tímum, segir Hilmar.
mm/ Sjá nánar bls. 2.
Rostungavé
síðan fyrir
Kristsburð
Árný Sveinbjörnsdóttir jarðfræð-
ingur frá Jarðsvísindastofnun HÍ
og Jan Heinemeir eðlisfræðingur
frá Árósarháskóla að undirbúa
sýnatöku úr rostungnum sem
fannst í Garðafjöru í ágústlok.
Hvalveiðum á þessari vertíð lauk í
gær þegar Hvalur 9 kom með síð-
ustu langreyðina að landi í Hval-
stöðinni í Hvalfirði. Nóttina áður
hafði Hvalur 8 komið með tvö dýr.
Heildarveiðin var 155 langreyðar.
Að sögn starfsmanna sem Skessu-
horn hefur rætt við var nýliðin ver-
tíð ein sú besta í seinni tíð. Veið-
arnar hafi gengið vel og sömuleið-
is vinnslan.
mm/ Ljósm. mþh
Góðri hvalvertíð lokið
Karl Arthursson flensari er að ljúka sinni 20. hvalvertíð og
stendur hér við síðustu langreyðina, númer 155 á vertíðinni,
en það var Hvalur 9 sem skilaði henni að landi.
Hvalskurður í gangi fyrr í sumar.