Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2015, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 30.09.2015, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 201516 Skotveiði er órjúfanlegur hluti af haustverkum fjölda Íslendinga. Veiðimenn pússa byssurnar á með- an þeir bíða haustsins og leita hátt og lágt að góða staðnum í bílskúrn- um eða geymslunni þar sem þeir komu felulitaða veiðigallanum fyr- ir síðast þegar þeir notuðu hann. Nú er gæsa- og andaveiðitímabil- ið hafið og styttist í að rjúpnaveið- in hefjist. Einn þeirra fjölmörgu Íslendinga sem sveipar sig felulit- um á hverju hausti og heldur til veiði er Pétur Ottesen frá Ytra- Hólmi. Blaðamaður heimsótti Pét- ur á heimili hans á Akranesi um helgina, þáði hjá honum kaffi og ræddi við hann um skotveiðina. „Ég er eiginlega nýbyrjaður að veiða aftur. Ég skaut mikið þeg- ar ég var í kringum tvítugt, en svo tók ég pásu frá 1986 og þangað til 2010. Ég hætti á sínum tíma af því ég var ekki með byssuleyfi og vildi ekki skjóta leyfislaus,“ segir Pétur og bætir við að utan þess að hafa verið kræfur að skjóta réttinda- laus sem unglingur hafi bæði eft- irlit og hugsunarháttur verið öðru- vísi á þeim tíma. „Þetta er sem bet- ur fer strangara í dag. Þegar ég var 16 ára gat ég farið út á Skaga og keypt skot. Afgreiðslumaðurinn seldi mér þau bara af því hann vissi að ég væri úr sveit.“ Veiðihaustið er hafið hjá Pétri þetta árið. Morguninn áður en blaðamaður hitti hann að máli hafði hann farið á andaveiðar og komið heim með þrjá fugla sem fjölskyldan borðaði í kvöldmat- inn sama dag. „Það er ekki ónýtt að skjóta önd snemma morguns og borða andasalat um kvöldið,“ segir Pétur en hann hefur þó orð á því að hann þyki ekkert sérstaklega góð- ur veiðimaður. „Ég er fínn ef ég næ svona sex gæsum og 10-15 önd- um. Rétt til að eiga í matinn nokkr- um sinnum. Og ég fer miklu oft- ar en veiðitölurnar segja til um,“ segir hann og brosir. „Það stend- ur þó til bóta eftir að ég fékk nýju augun,“ bætir hann við, en Pétur er nýkominn úr leiseraðgerð sem hann segir ekki aðeins hjálpa sér í veiðinni, hún hafi aukið lífsgæði hans almennt til muna. „Ég fékk þrjár endur í gær og skaut þær all- ar á flugi, sem er eitthvað sem ég hef alls ekki gert mikið af í gegn- um tíðina. Svo það er vonandi að skotnýtingin verði betri í framtíð- inni. En ég er eiginlega ánægðastur að sjá að konan mín er bara dálítið sæt. Ég hafði aldrei séð hana áður,“ segir Pétur og hlær. Skemmtilegast á rjúpunni Þrátt fyrir að veiðin hafi gengið upp og ofan í áranna rás hefur hún alltaf veitt Pétri ómælda ánægju í gegnum tíðina. „Skemmtilegast við að liggja fyrir gæs er að fara út fyrir birtingu og vera viðstaddur þegar náttúran vaknar. Maður rennur ein- hvern veginn saman við náttúruna og myndar með henni eina heild. Það er alveg æðislegt,“ segir hann og bætir því við að þessi útivistar- hluti gæsaveiðinnar skipti sig ekki minna máli en að skjóta fuglinn. „Fyrir mér er þetta allavega 50/50 á við veiðina sjálfa, að minnsta kosti það,“ segir Pétur en bætir því við að þó anda- og gæsaveiði sé góð þyki honum rjúpan skemmtilegust af öllu. „Ég fer á hverju ári með tveimur félögum mínum í Vestur- Húnavatnssýsluna. Við erum þar eina helgi, gerum vel við okkur í mat og drykk. Förum í heita pott- inn eftir heilan dag á göngu, eld- um nautasteik í kvöldmatinn og drekkum rauðvín með. Það er full- komið,“ segir Pétur. „En aðal kikk- ið á rjúpunni er að upplifa þennan rússíbana sem fer í gang í hausn- um á manni þegar maður sér spor eða heyrir í rjúpu en sér hana ekki. Ef maður er í erfiðu færi og veit af fugli þá verður maður ekki þreytt- ur. En ef maður verður einskis var þá verður maður uppgefinn eft- ir fjóra klukkutíma á göngu. Heil- inn gefur manni einhverja endorf- ínbombu sem heldur manni gang- andi,“ segir hann. „Þegar maður hlustar eftir fugli sem maður sér ekki þá finnst manni eins og eyrun stækki,“ bætir hann við, brosir og þreifar ósjálfrátt á hægra eyra. Veiðir helst einsamall „Ég man þegar ég var nýbúinn að fá mér GPS tæki, þá var ég á rjúpu uppi í Veggjum. Það kom blind- hríð og þar sem ég hafði nú ekki mikla trú á tækinu þá ákvað ég að prófa það aðeins og gekk þvert á það sem það sagði mér. Ég tek það fram að ég var ekki í neinni hættu, svo ég gekk þá leið sem ég hélt að væri rétt. Ég var í raun að prófa hvort hefði betur, tækið eða þvermóðskan í mér. Ég þurfti að sjálfsögðu að lúffa,“ segir Pétur og brosir. „Þegar hríðinni slotaði sá ég nú í bílinn en ef ég hefði fylgt slóðinni sem tækið gaf upp þá hefði það skilað mér beint þang- að. Það ætti eiginlega að banna mönnum að fara á rjúpu án þess að vera með GPS tæki.“ Pétur viðurkennið að hafa ver- ið einn á ferð þegar hann háði stríð sitt við GPS tækið og tapaði. Hann segist raunar mest veiða ein- samall. Utan árlegrar ferðar með félögunum á rjúpu í Vestur-Húna- vatnssýsluna fari hann helst einn, það eigi einhvern veginn betur við hann. „Ég er allavega mjög „pikkí“ á veiðifélaga. Byssur eru hættuleg verkfæri og maður verð- ur að þekkja vel og treysta þeim sem maður veiðir með. Ég kæri mig ekki um að veiða með ein- hverjum sem meðhöndlar byssur ekki af virðingu og varkárni. Ég nota alltaf gikklás og þegar ég er ekki að veiða eru skotin og byssan geymd í sitthvorri byggingunni,“ segir hann og leggur áherslu á mikilvægi þess að fara varlega með skotvopnin og gæta varkárni við veiðar. „Ef einhvern tímann þarf að sækja mig til rjúpna vegna vit- lausra ákvarðana eða einhvers bjánaskapar, þá ætla ég að selja byssuna,“ segir Pétur Ottesen að lokum. kgk Nýju augun koma sér vel í veiðinni Pétur Ottesen segist sjá fram á betri skotnýtingu í framtíðinni eftir að hann fékk „nýju“ augun sín. Í maímánuði birtist svartur og hvít- ur fressköttur á tjaldsvæðinu á Pat- reksfirði. Hann kom þangað fyrstur gesta, tveimur dögum eftir að tjald- svæðið var opnað. Michael Wulf- ken umsjónaraðili tjaldsvæðisins hélt fyrst um sinn að um væri að ræða kött úr nágrenninu en fljót- lega kom í ljós að svo var ekki. Kött- urinn fékk þá athvarf á tjaldsvæð- inu og Michael gaf honum reglu- lega að éta. Kettinum var gefið nafnið Tjaldur Palomino og varði hann öllu sumrinu á tjaldsvæðinu á Patreksfirði, fjarri sínum heima- högum. Bergrún Halldórsdóttir var ein þeirra sem hugsaði um hann fyrir vestan. „Hann settist bara að á tjaldsvæðinu og hafði aðstöðu inni. Það veit enginn hvernig hann komst hingað en hann hefur að öll- um líkindum fengið sér far með einhverjum bíl. Það hafði enginn tjaldað á þeim tíma sem hann kom, þannig að hann var ekki laumufar- þegi í ferðavagni,“ segir Bergrún í samtali við Skessuhorn. Fór á Lionsfund „Ferðamenn höfðu mjög gaman að honum. Hann hélt til þar sem eld- unaraðstaðan er og svaf þar. Þar var opinn gluggi og hann var því frjáls ferða sinna og heimsótti stund- um fólk í tjöldin. Svo labbaði hann hringinn með staðarhaldara og rukkaði með honum. Þetta er alveg sérstakur köttur,“ segir Bergrún. Kisi hafði það gott á Patreksfirði í sumar. Það kom fyrir að heppn- in var með honum og hann fékk að bragða á góðgæti hjá ferðafólki,svo sem grilluðum laxi. Hann náði líka að skella sér á fund með Lions- klúbbi Patreksfjarðar. „Hann hefur líklega séð gestagang í Félagsheim- ilinu og ákveðið að blanda geði við meðlimi Lions áður en hann fór heim,“ segir Bergrún. Auglýst var eftir eigendum Tjalds Palom- ino reglulega í sumar, en án árang- urs. Þegar sumri tók að halla aug- lýsti Bergrún á ný eftir eigandan- um. „Við settum auglýsingu inn á Kattholt og þar sá eigandinn mynd af honum og hringdi strax í mig.“ Kötturinn reyndist vera frá Hellis- sandi og heitir í raun Þristur. Síð- astliðinn sunnudag fékk Þristur far heim með Baldri og hitti eigendur sína í Stykkishólmi. „Hann þekkti þau strax, reis upp um leið og hann heyrði í þeim,“ segir Bergrún. Hrifinn af tjaldsvæðum Ásdís Þórðardóttir Ben er eigandi Þrists. Hún segir hann mikinn úti- vistarkött, þó hann hafi ekki týnst áður. „Hann á það til að rápa mik- ið og á sumrin kemur það fyrir að hann birtist ekki í nokkra daga í senn. Hann þvælist oft mikið upp í fjárhúsahverfi, í Krossavík og upp á tjaldsvæði á sumrin. Við höfum oft fíflast með að hann sé að vinna þar á sumrin,“ segir Ásdís og hlær. Spurning er hvort ævintýraþráin hafi blundað lengi í Þristi en hon- um tókst að laumast inn í fellihýsi á Hellissandi í fyrra. Eigandinn heyrði svo mjálm, opnaði fellihýsið og út stökk Þristur. „Það kom eng- um á óvart, hann er sjálfboðaliði á tjaldsvæðinu,“ bætir Ásdís við. Var fúll að koma heim Þristur var vel haldinn þegar hann kom heim. Hann hafði bætt að- eins á sig í útilegunni, svona eins og gengur. Það voru miklir fagnaðar- fundir þegar Þristur skilaði sér heim eftir fjögurra mánaða fjarveru. All- ir voru kátir - nema Þristur sjálfur. „Hann var eiginlega skítfúll þegar hann kom heim um síðustu helgi. Það var vel tekið á móti honum en hann fékk sér bara smá rjóma og fór beint út. Hann er nú farinn að jafna sig aðeins, hann fékk sér góð- an morgunverð með rjóma í morg- un og er nú að leggja sig. Hann er búinn að það svo gott á Patreksfirði í sumar, kannski vildi hann ekkert koma heim,“ segir Ásdís hlæjandi. Hún segir Þrist ekki vera félags- lyndan og hann er ekki hrifinn af læðunum á heimilinu. Hann er ein- fari sem er mikið úti, nema þegar veðrið er vont. „Ég hélt að hann væri dáinn en hafði samt einhvern veginn á tilfinningunni að hann hefði kannski bara farið. Við vor- um búin að labba um allt og leita af honum og ég fylgdist reglulega með Kattholtssíðunni. Nú látum við örmerkja hann og ég læt hann vera með ól, þó hann sé ekki hrif- inn af því.“ grþ Gerðist sumarstarfsmaður á tjaldsvæðinu á Patreksfirði Kötturinn Þristur skellti sér á Vestfirðina í vor og hélt þar til í sumar Herra Þristur skellti sér á fund hjá Lionsklúbbi Patreksfjarðar áður en hann var sendur heim. Á fundinum fékk hann ost. Þristur á heimleið. Þarna er hann á leið í Baldur með dóttur Bergrúnar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.