Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2015, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 30.09.2015, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 20158 Leiðrétt staðsetning BORGARBYGGÐ: Í Skessu- horni sem kom út í síðustu viku er skipulagsauglýsing frá Borgar- byggð; „Lýsing vegna breyting- ar á aðalskipulagi.“ Samkvæmt auglýsingunni á að breyta land- notkun úr landbúnaðarnotkun í frístundasvæði. Umtöluð skipu- lagsbreyting er á Jaðri á Mýrum en ekki á Jaðri í Bæjarsveit eins og misritaðist í auglýsingunni. Auglýsingin er birt að nýju með þessari breytingu í blaðinu í dag. –mm Lengd gæsla grunnskólabarna DALIR: Sveitarstjórn Dala- byggðar samþykkti á fundi þann 15. september síðastliðinn að starfrækja lengda gæslu fyr- ir grunnskólabörn í 1.-4. bekk. Gjaldskrá verði í samræmi við það sem tíðkast í nágrannasveit- arfélögunum. Stafseminni verði komið á fót eins fljótt og mögu- legt er og húsnæði Dalabúðar og Auðarskóla verði nýtt til gæsl- unnar. Forsaga málsins er sú að síðastliðið vor gerði foreldrafé- lag Auðarskóla könnun meðal foreldra um áhuga á gæslu fyrir börn á yngsta stigi að skólatíma loknum. Auk þess segir í fundar- gerðinni að margir foreldrar hafi komið að máli við sveitarstjórn- armenn vegna þessa og ljóst þyki að sums staðar sé brýn þörf fyr- ir gæslu sem þessa. Niðurstöður könnunarinnar voru þær að ell- efu foreldrar samtals 14 barna í 1.-4. bekk gerðu ráð fyrir því að nýta þjónustuna yrði boðið upp á hana. Gerir sveitarstjórn ráð fyr- ir tveimur starfsmönnum í tvær klukkustundir á dag, milli klukk- an 15:15 og 17:15 og áætlar að launakostnaður vegna gæslunnar verði um 200 þús. kr. á mánuði. Vistgjöld geti verið um 100 þús. kr. á mánuði en systkinaafslættir gætu lækkað þau gjöld eitthvað. –kgk Aðalfundur í Landsbyggðin lifi LANDIÐ: Landsbyggðin lifi - LBL, er hreyfing fólks á Íslandi sem vill örva og efla byggð um land allt. Samtökin eru regn- hlífarsamtök félaga og einstak- linga sem áhuga hafa á lands- byggðarmálum. Nú er kom- ið að aðalfundi LBL, en hann verður á Kópaskeri laugardag- inn 10. október í húsi Skjálfta- seturs. Í tilkynningu segir að á dagskrá verði hefðbundin aðal- fundarstörf og önnur mál. „Ef einhverjir utan stjórnar hafa áhuga á að komast í aðalstjórn eða varastjórn samtakana er því tekið fagnandi. Mörg spennandi verkefni eru í farvatninu og sum þeirra komin af stað. Vinsam- legast hafið samband við Sigríði Svavarsdóttur, gjaldkera ef þig langar að ganga til liðs með okk- ur. Þeim félögum sem hafa hug á að nýta ferð með stjórnarmönn- um er bent á að hafa samband við Siggu Svavars. Netfangið er: landlif@landlif.is, eða melateig- ur@gmail.com Sími 772-9632,“ segir í fréttatilkynningu. Nán- ari upplýsingar má finna á land- lif.is þar sem einnig er sagt frá byggðaþingi sem haldið verður samhliða aðalfundinum. –mm Stofnþing Hnefaleika- sambands LANDIÐ: Stofnþing Hnefaleikasambands Ís- lands (HNÍ) verður haldið miðvikudaginn 30. septem- ber kl. 18 í Íþróttamiðstöð- inni í Laugardal í Reykja- vík. Á þinginu verður fyrsta stjórn sambandsins kosin. Á vormánuðum 2002 setti ÍSÍ á stofn nefnd um ólympíska hnefaleika og hefur mark- mið nefndarinnar verið að hafa umsjón með útbreiðslu og uppbyggingu greinar- innar undir leiðsögn og eft- irliti Íþrótta- og Ólymp- íusambands Íslands og að undirbúa stofnun sérsam- bands um ólympíska hnefa- leika. Ólympískir hnefaleik- ar eru starfandi í eftirtöldum héraðssamböndum/íþrótta- bandalögum innan ÍSÍ: Íþróttabandalagi Reykjavík- ur, Íþróttabandalagi Hafn- arfjarðar, Íþróttabandalagi Reykjaness, Íþróttabandalagi Akraness og Ungmennasam- bandi Kjalarnessþings. Með stofnun Hnefaleikasam- bands Íslands verða sérsam- bönd ÍSÍ orðin 31 talsins. –fréttatilk. Aflatölur fyrir Vesturland 19. - 26. september Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 11 bátar. Heildarlöndun: 45.513 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 22.415 kg í fjórum löndun- um. Arnarstapi 4 bátar. Heildarlöndun: 22.136 kg. Mestur afli: Tryggvi Eð- varðs SH: 10.981 kg í tveim- ur löndunum. Grundarfjörður 7 bátar. Heildarlöndun: 171.392 kg. Mestur afli: Hringur SH: 60.137 kg í einni löndun. Ólafsvík 9 bátar. Heildarlöndun: 66.333 kg. Mestur afli: Brynja SH: 20.273 kg í fimm löndunum. Rif 11 bátar. Heildarlöndun: 170.743 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 54.607 kg í einni löndun. Stykkishólmur 5 bátar. Heildarlöndun: 26.338 kg. Mestur afli: Fjóla SH: 11.764 kg í sex löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH - GRU: 60.137 kg. 23. september. 2. Steinunn SF - GRU: 59.377 kg. 21. september. 3. Rifsnes SH - RIF: 54.607 kg. 23. september. 4. Helgi SH - GRU: 46.925 kg. 21. september. 5. Saxhamar SH - RIF: 36.812 kg. 25. september. grþ Í síðustu viku undirrituðu Illugi Gunnarsson mennta- og menningar- málaráðherra og fulltrúar sveitarfé- laga á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum, þjóðarsáttmála um læsi. Undirritunin fór fram í íþróttahúsinu í Stykkishólmi að viðstöddum nem- endum, kennurum og sveitarstjórn- arfólki. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar, Ásthildur Sturlu- dóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar, Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitar- stjóri Reykhólahrepps, Kristinn Jón- asson bæjarstjóri Snæfellbæjar, Þor- steinn Steinsson bæjarstjóri í Grund- arfirði, Eggert Kjartansson oddviti Eyja- og Miklaholthrepps og Hilmar Hallvarðsson varaoddviti Helgafells- sveitar undirrituðu sáttmálann fyrir hönd sinna sveitarfélaga, ásamt Ásdísi Árnadóttur fulltrúa Heimilis og skóla. Athöfnin í Stykkishólmi hófst á því að Sigurður Guðmundsson nemandi í Grunnskólanum í Stykkishólmi lék á saxafón. Síðan hélt Illugi erindi og þar á eftir fór undirritunin fram. Að lokum söng Ingó veðurguð „Það er gott að lesa,“ lag Bubba Morthens við nýjan texta og boðið var upp á kaffi og meðlæti. Skessuhorn sagði frá sambæri- legri undirskrift á Akranesi þen- nan dag, en með þessum undirritu- num í síðustu viku lauk mennta- og menningarmálaráðherra hringferð sinni um landið þar sem hann hefur kynnt skólafólki og sveitarstjór- narmönnum þjóðarsáttmálann um læsi og hvatt til samstarfs um verkef- nið. grþ /Ljósm. Grunnskólinn í Stykk- ishólmi. Skrifað var undir þjóðarsáttmála um læsi á Snæfellsnesi Sturla Böðvarsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar setur sáttmála í Íslandskortið. Hilmar Hallvarðsson varaoddviti Helgafellssveitar setti síðasta sáttmálann í kortið og lokaði þar með hringnum. Sveitarfélög á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum undirrituðu þjóðar- sáttmála um læsi síðastliðinn þriðjudag. Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt að fela Kolfinnu Jóhann- esdóttur sveitarstjóra að semja við LEX lögmannsstofu um að undir- búa málssókn á grundvelli hefða- réttar vegna afréttarlands við Krók í Norðurárdal, sem sveitarfélagið tapaði umráðarétti yfir með dómi Hæstaréttar vorið 2014. Hæstiréttur felldi úr gildi níutíu ára kaupsamn- ing Upprekstrarfélags Þverárréttar á afréttarlandinu sem notað hafði ver- ið til upprekstrar allt frá 1924. Rétt- urinn dæmdi svo á grundvelli þess að kaupsamningi hafi aldrei verið þing- lýst og skráðum eiganda ekki tekist að færa sönnur á eignarhefð. Hæsti- réttur dæmdi samninginn frá 1924 þar með ógildan og sneri við niður- stöðu Héraðsdóms Vesturlands sem dæmdi Borgarbyggð í vil í málinu. Í dómsniðurstöðu Hæstaréttar frá því vorið 2014 segir m.a: „Við- urkennt er að sá hluti jarðarinnar Króks í Borgarbyggð, landnúmer 134817, sem óþinglýstur samningur Brynjólfs Bjarnasonar og Upprekstr- arfélags Þverárréttar 26. maí 1924 tekur til, sé eign áfrýjanda, Gunn- ars Jónssonar.“ Gunnar Jónsson nú- verandi eigandi Króks keypti jörðina 1990. Umrætt þrætuland var þeg- ar fyrir 90 árum, þegar samningar voru gerðir, afmarkað ofan afréttar- girðingar Norðdælinga eins og segir í dómsskjölum.“ þá Borgarbyggð tekur upp mál um upprekstrarland Horft til suðurs yfir þjóðveginn, Norðurá og bæinn Krók. Ljósm. Mats Wibe Lund. Sigurður Ingi Jóhannsson land- búnaðarráðherra hefur undirrit- að reglugerð sem heimilar inn- flutning á erfðaefni holdanauta en samkvæmt henni er nú heimilt að flytja inn sæði og fósturvísa. „Til- gangurinn er að efla innlenda fram- leiðslu á nautakjöti, en Landssam- band kúabænda hefur þrýst mjög á að innflutningurinn verði heimilað- ur. Innflutningur erfðaefnis og eldi á nautgripum verður háð ströngum skilyrðum og mun Matvælastofnun fylgjast með því að þeim verði fram- fylgt. Eingöngu má nota erfðaefnið á sérstökum einangrunarstöðvum sem uppfylla skilyrði reglugerðar- innar,“ segir í tilkynningu frá ráðu- neytinu. Gangi áætlanir Landssambands kúabænda eftir má gera ráð fyrir að fyrstu gripirnir sem vaxa af inn- fluttu erfðaefni muni fæðast næsta vor. Eftir það verða að líða níu mán- uðir áður en heimilt verður að flytja gripina af einangrunarstöð. Fram- leiðsla á nautakjöti innanlands hef- ur undanfarin ár ekki náð að anna eftirspurn og nam innflutningur á nautakjöti rúmum þúsund tonnum í fyrra. Stefnir í að meira þurfi að flytja inn til að mæta sífellt aukinni eftirspurn. Ekki síst vegna fjölgunar erlendra ferðamanna. mm Ráðherra heimilar innflutning á erfðaefni holdanautgripa Nautgripir af gallowaykyni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.