Skessuhorn - 30.09.2015, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2015 23
Það er ýmislegt sem þarf að huga að
í garðinum þegar tími haustlægð-
anna er genginn í garð og laufin far-
in að falla af trjánum. Líkt og flest-
ir vita þarf að festa niður lauslega
muni og ganga frá öllu því sem get-
ur fokið. En það þarf líka að huga
að gróðrinum, þrátt fyrir að sum-
arið sé á enda. Skessuhorn leitaði
til Sædísar Guðlaugsdóttur garð-
yrkjufræðings hjá gróðrarstöðinni
Gleym-mér-ei í Borgarnesi og fékk
hana til að segja frá helstu haust-
verkum garðeigenda.
Aldrei of seint að byrja
„Besta ráðið sem ég get gefið þeim
sem eru með garð er að taka illgresi
og arfa að hausti. Arfinn er nefni-
lega ekki að drepast þótt það hausti.
Allar plöntur eiga það eina mark-
mið að setja niður fræ og það gerir
arfinn alveg fram að jólum ef hann
fær að vera óáreittur,“ segir Sædís.
Hún segir að best sé að reita arfann
reglulega, fyrst þegar fyrsta blóm-
ið á arfanum sést. „Svo reglulega
og síðasta yfirferð um garðinn ætti
að vera í byrjun ágúst og svo aftur í
byrjun september. Ef fólk venur sig
á þetta, þá getur það á þremur árum
eignast arfalausan og hreinan garð.“
Hún bætir því við að ekki sé of seint
að hreinsa illgresið úr garðinum þó
næstum sé komið fram í október.
„Það er aldrei of seint að byrja þessar
hringrás. Arfinn fellir mikið af fræj-
um á haustin og ef hann er hreinsað-
ur núna, þá auðveldar það vorverk-
in til muna. Svo verður það þannig
að ósjálfrátt passar fólk að arfinn nái
ekki að mynda blóm.“ Þá má huga
að því að fjölærar plöntur geta sáð
sér mikið á haustin og þá getur ver-
ið gott að klippa blómstöngla af, vilji
maður ekki hafa mikið af plöntunni
þar sem hún á ekki að vera næsta
sumar.
Ekki klippa á haustin
En það þarf að huga að öðru en ill-
gresinu. Á haustin þarf að vinna
fleiri árstíðabundin garðverk. Þá er
þó ekki rétti tíminn til að klippa tré
og runna. „Það er mesti misskiln-
ingur. Plantan er á leið í vetrardvala
og með því að klippa hana núna get-
ur vetrarforði hennar minnkað,“
segir hún. Plöntunni er einnig hætt-
ara við ýmsum sýkingum sé hún
klippt að hausti. „Þannig að nú á
ekki að klippa, nema trén eða runn-
arnir þínir nái langt út á gangstétt.
Fólk á að geta gengið fram hjá garð-
inum þínum og ég er þeirrar skoð-
unar að það eigi alltaf að taka tillit
til nágrannans, óháð því hvaða árs-
tími er. En besta klippingin er aft-
ur á móti að vori, eða réttara sagt
síðla vetrar, á meðan plönturnar
eru enn lauflausar,“ segir Sædís. Að-
spurð um hvort haustið sé rétti tím-
inn til að flytja tré segir hún að það
geti verið. „Það þarf að meðhöndla
gróður á meðan hann er í dvala og
hvíld. Annað hvort á vorin áður en
lauf kemur, því um leið og laufið er
komið á plöntuna þá er komið sum-
ar hjá henni. Eða þegar laufin hafa
fallið af. Hvort sem það er vor eða
haust, þá er svokallaður flutnings-
tími. Eðlilegast er að færa plöntur til
þegar frost fer úr jörðu svo plantan
hafi allt sumarið til að ræta sig á nýj-
um stað.“
Eitt af haustverkunum í garðinum
er að setja niður haustlauka. Sædís
segir að enn sé tími til að setja niður
lauka, til dæmis túlípana og páska-
liljur. Þær síðarnefndu er jafnvel
hægt að setja niður í grasflatir, ásamt
fleiri laukategundum. Hún segir að
þörf sé á að vökva yfir vetrartím-
ann. „Sérstaklega uppbyggð ker og
sígrænan gróður þarf að skola til að
salt og veður skemmi síður plönt-
urnar. Blóm og gróður í kerjum er
einmitt hætt við að þorna þar sem
fólk vökvar ekki.“
Óráðlegt að
færa plöntur inn
En ætli það sé hægt að lengja líf-
tíma þeirra blóma og jurta sem enn
standa, til dæmis með því að færa
þær inn? „Ef plöntur eða kryddjurtir
eru fluttar inn í hús til að lengja líf-
tíma þeirra getur vaknað upp óæsli-
legt lífríki. Fluga, lús og annað sem
er á flugi alla daga úti við. En ef fólk
hefur kalt eða upphitað gróðurhús,
þá er hægt að nýta plönturnar langt
fram á vetur. Eins má alveg kippa
blómakerjum inn yfir nóttina þegar
það er farið að hausta, þá er hægt að
njóta blómanna mun lengur. En þá
er fólk að taka sénsinn á því að það
kvikni líf inni, það er ekki hægt að
útiloka það,“ segir Sædís garðyrkju-
fræðingur að endingu.
grþ
Best er að reita arfa á haustin
Rætt við Sædísi Guðlaugsdóttur garðyrkjufræðing um haustverkin í garðinum
Sædís Guðlaugsdóttir er garðyrkjufræðingur hjá gróðrarstöðinni Gleym-mér-ei í Borgarnesi.
Slátur tíð
Egilsholti 1
Verslun, sími: 430 5500
Opið virka daga 8-18
Laugardaga 10-14
www.kb.is, verslun@kb.is
Gervivambir, bjúgnaplast,
pylsuplast
Sláturgarn og sláturnælur
Kjötnet og kjötkrókar
Gott úrval hnífa
Vakúmpökkunarvélar og
vakúmpokar
Kjötfarsblanda, rúllupylsu-
krydd og nítrítsalt
Vakúmpökkunarvélar
kr. 24.990.-
Pinnabyssur og skot í pinnabyssur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4