Skessuhorn - 30.09.2015, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2015 21
prjónasambandinu. Svo er sitt lítið
af hverju í Landnámssetrinu, Þjóð-
minjasafninu og Álafossversluninni.
Mest seljum við samt í Ullarselinu
á Hvanneyri,“ segir Ríta. Hún seg-
ir mikið af heimafólki kaupi hlutina.
Mest selst þó á sumrin. „Það er mest
að gera þegar ferðafólk er á ferðinni.
En svo verslar fólk úr sumarbústöð-
um líka mikið.“
Álaveisla á hverju hausti
Hjónin eru þakklát fyrir að halda
góðri heilsu. Heilsuna vilja þau
þakka vinnunni. Yfir sumartímann
hafa þau mikið að gera við rækt-
unina og þegar hausta fer þarf að
huga að uppskerunni og þá gengur
sláturtíminn í garð. „Við förum vel
með dýrin í slátrun. Þau mega ekki
kveljast, það er mikilvægt,“ segir
hann. En á haustin er einnig ann-
ars konar uppskerutími hjá þeim
hjónum. Þegar haustlægðirnar fara
að skella á fara álar á ferð í síkj-
um og ám. Páll er með álagildrur í
síkinu við Ferjukot og í þær veiðir
hann ála þegar haustið bankar að
dyrum. Svo er slegið upp veislu.
Álaveislan er árlegur viðburður
sem haldinn er í Ferjukoti. „Þor-
kell í Ferjukoti átti hugmyndina að
þessu. Við veiddum álana í gildr-
ur og svo var haldin stórveisla hjá
Kela og Hebu í Ferjukoti á hverju
hausti. Þetta höfum við gert í um
tuttugu ár í samvinnu við fleiri,“
segir Páll. Hann segir að allt að 20
ála þurfi í slíka veislu, ef ekki fleiri.
„Það hefur oft gengið en það hef-
ur komið fyrir að við höfum haft
fáa og jafnvel enga. Veislan hefur
þó aldrei fallið niður enda er Heba
alltaf með margt fleira á boðstól-
um.“ Vel hefur gengið að safna
álum þetta árið og stefnt er að því
að halda hinu árlegu veislu í næsta
mánuði, nú í minningu Þorkels
sem lést í nóvember í fyrra.
Góð heilsa og gleði
Gestkvæmt er í Grenigerði, þó sér-
staklega yfir sumartímann. Þá get-
ur fólk keypt þar ýmsar plöntuteg-
undir, svo sem birki, rósarunna, sír-
enur og reynivið. Hjónin hafa gam-
an af heimsóknum og eru gestris-
in. Margir hafa gaman af því að
koma við og fara í göngutúr um
landið, enda er fallegt um að lit-
ast þar. „Það er sérstaklega gaman
fyrir börnin, þau hafa gaman af því
að kíkja á endurnar. Við fengum til
dæmis börn úr leikskóla í heimsókn
um daginn,“ segir Páll. Þau hafa
mikla ánægju af því að fá fjölskyld-
una í heimsókn. „Börnin okkar og
barnabörnin koma mikið til okkar.
Þau koma sjálf, óumbeðin og það
þykir okkur vænt um,“ segja þau.
Á hverjum degi eldar Ríta heitan
mat í hádeginu og ef gesti ber að
garði á þeim tíma, fá þeir einnig að
borða. Hjónin eru lífsglöð og sátt
með sitt. Þau segja það besta við
líf þeirra í dag sé frjálslyndið. „Við
vitum aldrei hvað við gerum dag-
inn eftir, það getur alltaf breyst. Í
dag höfum við einnig tíma til að
ferðast sem við gátum ekki áður
þegar við vorum með kýrnar,“ seg-
ir Ríta. „Okkur skortir ekkert. Það
eina sem maður vill þegar maður
er kominn á þennan aldur er góð
heilsa og gleði og við eigum tölu-
vert af því,“ segja hjónin í Greni-
gerði að endingu.
grþ
Álar komnir á land.
Vitjað um álagildru.
Landnámssetur Íslands / The Settlement Center
Brákarbraut 13-15 • Borgarnesi • Sími 437-1600 • www.landnam.is
MR. SKALLAGRÍMSSON
SNÝR AFTUR
Miðapantanir í síma 437-1600
landnam@landnam.is - midi.is
Leikhústilboð í veitingahúsi fyrir
kvöldsýningar og eftir síðdegissýningar
Kvöldverðarhlaðborð 5.200 kr.
eða matarmikil fiskisúpa 2.500 kr.
Sýningar:
30. október kl. 20.00
31. október kl. 20.00
1. nóvember kl. 16.00
Ekki missa af ógleymanlegri túlkun
Benedikts Erlingssonar á
Egils- sögu Skallagrímssonar
Miðaverð 3.900 kr.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Lýsing vegna breytingar
á aðalskipulagi -
Jaðri 9, 16, 17 og 24 á Mýrum
Sveitarstjórn samþykkti 13. ágúst 2015 að
auglýsa lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi
Borgarbyggðar 2010 – 2022.
Breytingin felst í að landnotkun á lóðunum
Jaðri á Mýrum 9, 16, 17 og 24 verði breytt úr
landbúnaðarsvæði í frístundasvæði. Skipulagið nær
yfir um 64,2 ha land, Jaðar 9 (5,5 ha), Jaðar 16 (5,6
ha), Jaðar 17 (40 ha) og Jaðar 24 (13,1 ha). Gert er
ráð fyrir allt að 146 lóðum á svæðinu.
Lýsingin verður auglýst frá 23. september til og
með 2. október 2015 skv. 36. gr. skipulagslaga
123/2010.
Kynningarfundur fimmtudaginn 1. október í
Ráðhúsi Borgarbyggðar kl. 19.00 til 20.00
Skoða má gögnin á heimasíðu Borgarbyggðar
www.borgarbyggd.is og í Ráðhúsi Borgarbyggðar,
Borgarbraut 14, Borgarnesi frá og með 23.
september 2015.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila fyrir 2.
október 2015 annað hvort í Ráðhús Borgarbyggðar
eða á netfangið lulu@borgarbyggd.is og skulu þær
vera skriflegar.