Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2015, Page 22

Skessuhorn - 30.09.2015, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 201522 Nú þegar haustið er gengið í garð eru margir sem reima á sig íþrótta- skóna á ný eftir misjafnlega langt hlé. Auglýsingar um bættan lífsstíl, breytt mataræði og tilboð á líkams- ræktarkortum eru áberandi á þess- um árstíma. Enda fylgja haustinu oft ákveðin tímamót og tilvalið að taka það skrefinu lengra og bæta heilsuna. Blaðamaður hitti Jóhann Pétur Hilmarsson einkaþjálfara á Akranesi og spjallaði stuttlega við hann um líkamsræktina. „Það er örugglega um 20-30% aukning á líkamsræktarstöðvum í september og janúar á hverju ári. Það eru venjulega allir hóptímar fullir á þessum tíma,“ segir Jóhann. Sjálfur sér hann um Boot camp æf- ingar og einkaþjálfun á Akranesi. „Það eru margir sem slaka á yfir sumartímann og eru ekki mikið að gera í einkaþjálfuninni á þeim tíma en svo er allt fullt hjá manni strax í september.“ Aðspurður hverjir kostirnir eru við einkaþjálfun seg- ir hann þá vera marga. „Það eru margir sem nýta sér einkaþjálf- un til að koma sér af stað. Sem er líka mjög sniðugt, sérstaklega fyr- ir þá sem hafa ekki verið í ræktinni áður. Sumir taka bara einn mán- uð í einkaþjálfun og fara svo sjálf- ir í ræktina eftir það. Aðrir vilja hafa einkaþjálfara lengur, það veit- ir fólki ákveðið aðhald,“ segir Jó- hann og bætir við að það sem skipti mestu máli er að koma sér af stað, byrja að mæta, ekki fara of hratt af stað og setja sér raunhæf markmið. „Fyrir suma er mjög erfitt að fara af stað og þá er einkaþjálfun eða hópatímar sniðugir. Þeir sem eru að byrja í fyrsta skipti eiga oft erf- itt með að komast í gang. Þá er bara að fara hægt af stað og ekki ætla sér of mikið of hratt,“ segir Jóhann að endingu. arg Mestu skiptir að byrja að mæta í líkamsrækt Jóhann Pétur Hilmarsson einkaþjálfari. Matarmikil kjötsúpa og kaffi Tilboð kr. 1350.- Allar kökur á borði Kr. 650.- Sauðadiskur: Flatkaka m/hangikjöti Skonsa m/osti Rúgbrauð m/kæfu Kleina Kaffi Tilboð kr. 950.- SK ES SU H O R N 2 01 5 Digranesgötu 6 - Borgarnesi - Sími: 437 1920 TILBOÐ UM SAUÐAHELGI Föstudag og laugardag Elísa Margrét Hafsteinsdóttir, tæplega þriggja ára stúlka ættuð af Snæfellsnesi, fæddist með alvar- legan og sjaldgæfan heilasjúkdóm sem kallast Lissencephaly. Sjúk- dómurinn gerir það að verkum að Elísa Margrét er fjölfötluð, þjáist af flogaveiki og lungnasjúkdómum og getur hvorki stjórnað hreyfing- um né talað. Hún þarf því stöð- uga umönnun allan sólarhring- inn. Einungis eru innan við þús- und börn í heiminum með þenn- an sjúkdóm. Elísa Margrét og for- eldrar hennar barist hetjulega við afleiðingar sjúkdómsins allt frá fæðingu hennar. En kostnaður við umönnun fjölfatlaðs barns er gríð- arlegur og hafa nú vinir þessarar litlu fjölskyldu tekið höndum sam- an og efna til styrktartónleika sem verða um næstu helgi. Foreldrar Elísu Margrétar eru Gyða Kristinsdóttir og Hafsteinn Vilhelmsson. Þau þarfnast nú til- finnanlega sérútbúins bíls til að geta farið með dóttur þeirra út af heimilinu án teljandi vandkvæða. Vinir þeirra hafa nú boðað til styrktartónleika sem haldnir verða í Austurbæ í Reykjavík sunnudag- inn 6. október næstkomandi og hefjast klukkan 20. Á tónleikun- um koma m.a. fram Skítamórall, Áttan, Hreimur og Vignir, MC Gauti, Gunnar Birgisson, Friðrik Dór auk leynigests. Aðgangseyr- ir að tónleikunum rennur óskipt- ur til fjölskyldu Elísu Margrétar. Miðasala á tónleikana í Austurbæ er í gangi á Miði.is. Auk þess getur fólk lagt inn frjáls framlög til styrktar fjölskyld- unni á reikning: 0326-22-953 og kt: 510714-0670. mm Styrktartónleikar vina Elísu Margrétar Elísa Margrét með foreldrunum Gyðu Kristjánsdóttur og Hafsteini Vilhelmssyni. Ljósm. mbl/Golli.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.