Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2015, Page 25

Skessuhorn - 30.09.2015, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2015 25 Bio-tex þvottaefni og blettaeyðir Leikum okkur! Snorrastofa í Reykholti 20 ára 1995–2015 Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur í Reykholti Sími 433 8000 www.snorrastofa.is snorrastofa@snorrastofa.is Laugardagurinn 3. okt. 2015 kl. 15:00 Opið hús – veitingar Verið öll velkomin Afmælisfagnaður í Reykholtskirkju – Snorrastofu Dagskrá Litið yfir farinn veg Björn Bjarna- son formaður stjórnar Snorrastofu Snorrastofa í dagsins önn Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Ljóðaþáttur úr landsuðri Ólafur Pálmason mag. art. ræðir um og fer með nokkur ljóð Jóns Helgasonar Söngur Snorri Hjálmarsson við undirleik Ingibjargar Þorsteinsdóttur Snorres venner Sagt frá stofnun hollvinafélags í Björgvin í Noregi á dánardægri Snorra Sturlusonar 2015 Frá stofnun Snorrastofu 23. september 1995 SK ES SU H O R N 2 01 5 Námskeið um uppeldi barna með ADHD Þriðjudaginn 13. október næstkomandi hefst hér á Akranesi námskeið um uppeldi barna með einkenni athyglisbrest og/eða ofvirkni (ADHD). Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna og kynna uppeldisaðferðir sem hafa reynst gagnlegar. Mælt er með því að foreldrar mæti báðir. Námskeiðið er verkefni á vegum skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar. Námskeiðið er 12 klukkustundir og er kennt í tvo tíma í senn. Fyrstu vikuna á þriðjudegi og fimmtudegi; annars á þriðjudögum. Hver þátttakandi greiðir 2.500 kr. í efnisgjald. Leiðbeinendur eru Sigríður Kr. Gísladóttir iðjuþjálfi og Sigurveig Sigurðardóttir sálfræðingur. Námskeiðið verður haldið í fundarsal Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (fyrstu hæð), Merkigerði 9 og hefst þriðjudaginn 13. október kl. 19:30. Skráning fer fram í tölvupósti: sigurveig.sigurdar@akranes.is og sigridur.gisladottir@hve.is. Vinsamlegast skráið ykkur í síðasta lagi föstudaginn 9. október. Skrá þarf nafn þátttakenda, símanúmer og aldur barns. Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Heyrnarhlífar í vinnuna Hjá Dynjanda færðu heyrnarhlífar og samskipta- búnað sem uppfyllir ströngustu kröfur. Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð. Guðmundur Kári Þor- grímsson, sextán ára drengur frá Erpsstöðum í Dölum, hefur heldur bet- ur slegið í gegn á sam- félagsmiðlum upp á síð- kastið. Hann deildi nýver- ið myndbandi á Facebook síðu sinni þar sem hann sagði opinskátt frá sam- kynhneigð sinni á ein- lægan og skemmtilegan hátt. Þegar þetta var skrif- að hafði myndbandið ver- ið skoðað 87.574 sinnum, rúmlega 3.500 höfðu lík- að við það og því hafði verið deilt tæplega 700 sinnum. „Ég hefði al- veg getað sett inn texta og fólk hefði kannski les- ið hann en ég vildi frek- ar gera þetta svona, mér fannst það meira frá mér. Ég vildi bara að allir vissu þetta og vildi ekki þurfa að segja þetta aftur og aftur,“ segir Guðmundur Kári í samtali við Skessu- horn. Allir jákvæðir Guðmundur segir viðbrögðin við myndbandinu hafa komið verulega á óvart. „Ég átti alveg von á því að þetta færi á eitthvað flakk og ein- hverjir myndu deila því en ég bjóst alls ekki við svona miklum við- brögðum.“ Í myndbandinu segir Guðmundur að hann sé í raun tví- kynhneigður, en þó meira hrifinn af strákum en stelpum. „Ímyndaðu þér að það séu tuttugu manneskjur sem ég er hrifinn af, þá er svona ein af þessum manneskjum stelpa.“ Hann segist eingöngu hafa fengið góð við- brögð frá fólki. „Það kom mér líka á óvart, ég bjóst alveg við því að ein- hver myndi segja eitthvað neikvætt. En viðbrögðin hafa bara verið góð og jákvæð, engin skítakomment,“ segir hann kátur. Getur núna verið hann sjálfur Í samtali sínu við blaðamann seg- ir Guðmundur að hann hafi kom- ið út úr skápnum í sumar. „Ég var búinn að segja öllum mínum nán- ustu frá áður en ég gerði mynd- bandið.“ Þegar hann er spurður að því hvort hann hafi lengi vitað að hann væri samkynhneigður segir hann: „Ég hef alltaf einhvern veg- inn fundið það en ég reyndi að bæla það niður. En svo áttaði ég mig á því að ég má alveg vera svona, þetta er alveg eðli- legt.“ Hann finnur mik- inn mun á sjálfum sér eft- ir að sannleikurinn kom í ljós. „Mér líður miklu betur. Ég get núna ver- ið ég sjálfur. Það er eins og það hafi eitthvað verið á mér allan þennan tíma sem ég vissi ekki að væri þar. Ég vissi ekki að ég gæti verið svona glaður,“ segir hann einlægur. Líður vel fyrir norðan Guðmundur Kári lauk 10. bekk í Auðarskóla í Dölum í vor og hóf nám á íþróttabraut við Verk- menntaskólann á Akur- eyri í haust. Hann segist aldrei hafa fylgt straumn- um og varð sá skóli fyrir valinu þar sem honum langaði að prófa eitthvað nýtt. „Ég þekkti eigin- lega engan þegar ég kom hingað en ég er búinn að kynnast mjög mörgum. Þetta var rosalega fljótt að koma. Hér er allt á sama stað og það er svo auðvelt að hitta fólk eftir skóla,“ segir hann og bæt- ir því við að honum líði vel fyrir norðan. Hann æfði fimleika á Akra- nesi þegar hann var yngri og nú er hann farinn að þjálfa yngri flokka hjá Fimleikafélagi Akureyrar. „Ég byrja svo að æfa sjálfur í næstu viku og ég hlakka svo til. Ég hef reynt að æfa mig og halda mér við á tram- pólíninu heima en ég finn að ég er búinn að missa niður liðleika og styrk. Ég verð vonandi fljótur að ná því aftur,“ segir þessi jákvæði og efnilegi drengur að endingu. grþ „Ég vissi ekki að ég gæti verið svona glaður“ -segir Guðmundur Kári Þorgrímsson eftir að hafa komið út úr skápnum Guðmundur Kári Þorgrímsson frá Erpsstöðum í Dölum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.