Skessuhorn - 30.09.2015, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2015 33
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið:
krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudög-
um. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja
með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti
sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athug-
ið að póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi).
Dregið verður úr réttum innsendum lausnum og fær
vinningshafinn bókagjöf frá Skessuhorni.
82 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Veldur hver á heldur.“ Vinningshafi
er: Anna Ágústsdóttir, Vallarbraut 1, Akranesi. mm
Túlkun
Hávaði
Kurr
Suddi
Hjóm
Tölur
Hörð
Korn
Púka
Fjör
Vensl-
aður
Kurt
Elfur
Áhald
Nöldur
Sk.st.
1
Sam-
þykki
Klaki
8
Utan
Stafur
Flagg
Gálaus
Opin
Næði
Málmur
Fix
Faldi
Ískur
Samtök
Efni
Píla
Blóð-
suga
Sklól
Múli
Spyr
Tæki
Eldur
6 Nota
Félagi
Tvíhlj.
Hlaup
Kögur
Braska
Öldur
Ókunn
7
Röst
Tangi
Bungu
Haf
Tildur-
rófa
Brakaði
Söngl
Auðugt
Lykkja
Ofan-
ferð
Montin
5
And-
varp
4 Sam-
hljóðar
Stríðin
Krydd
Snið
Tvíhlj.
Falleg
Hindra
Háð
Blóð-
suga
Þrep
2 Urg
Svar
Að
Áburð-
ur
Eðli
Fótur
Fæða
Bjartur
Sædýr
Pot
Átt
Gripur Sár Dvelja
Slá
Planta
Ein
Neyttu
Ókunn
Spara
Vissa
Kl..3
3 Vöðla
saman
1 2 3 4 5 6 7 8
Golfklúbburinn Vestarr í Grund-
arfirði fagnaði 20 ára afmæli sínu
laugardaginn 26. september. Þá var
blásið til matarveislu og skemmtun-
ar í Samkomuhúsi Grundarfjarðar.
Félagsmenn sáu um skemmtiatriði
undir dyggri veislustjórn Sigurðar
Hlöðverssonar. Það voru svo þeir
Sigurður Hlöðversson og Rögnvald-
ur Þ. Rögnvaldsson, einnig þekktur
sem DJ Fox, sem héldu uppi stuði
langt fram eftir nóttu.
Daginn eftir var svo afmælisgolf-
mót en vegna veðurs var það hald-
ið á sunnudeginum þar sem sunn-
anáttin var golfurum ekki hliðstæð
á laugardeginum. Ræst var á öll-
um teigum stundvíslega klukkan
eitt og voru menn þónokkuð brattir
þrátt fyrir skemmtun kvöldsins áður.
Rúmlega fjörutíu keppendur hófu
leik en að lokum var það Steinar Þór
Alfreðsson sem að varð í fyrsta sæti í
karlaflokki. Guðni Hallgrímsson og
Rúnar Örn Jónsson urðu svo í öðru
og þriðja sæti. Hjá konunum var það
Bryndís Theódórsdóttir sem varð í
fyrsta sæti en Unnur Birna Þórhalls-
dóttir og Kristín Pétursdóttir urðu í
öðru og þriðja. Margeir Ingi Rúnars-
son vann höggleikinn en hann vann
einnig verðlaun fyrir að vera næst-
ur holu í öðru höggi á 1/10 braut.
Einnig hlutu Unnur Birna Þórhalls-
dóttir nándarverðlaun á 4/13 braut
og Jófríður Friðgeirsdóttir á 8/17
braut.
tfk
Vestarrfólk fagnaði tuttugu ára afmæli klúbbsins
Ásgeir Ragnarsson slær upphafshöggið. Ljósm. tfk.
Frá vinstri: Ásgeir Ragnarsson, Sigurður Hlöðversson, Rögn-
valdur Þ. Rögnvaldsson og Heimir Þór Ásgeirsson en þeir voru
brattir þegar þeir gerði sig klára á fyrstu braut. Ljósm. tfk.
Anna María Reynisdóttir og Guðni Hallgrímsson. Anna María
hlaut silfurmerki GSÍ en Guðni var sæmdur gullmerki GSÍ en
hann er einn af stofnendum golfklúbbsins. Ljósm. sk.
Þeir fimm sem hafa gegnt formennsku í Vestarr á þessum
20 árum. Frá vinstri eru Garðar Svansson, Pétur Vilbergur
Georgsson, Ásgeir Ragnarsson, Dagbjartur Harðarson og Páll
Guðfinnur Guðmundsson en hann var fyrsti formaðurinn.
Ljósm. sk.
Skemmtilegur upptaktur verður að
Sauðamessu á fimmtudagskvöld-
ið klukkan 20 þegar Trio DaNoIs
flytur tónlist frá Íslandi, Noregi og
Danmörku í Borgarneskirkju. Tríó-
ið skipa Pernilla Kaarslev, Morten
Fagerli og Jónína Erna Arnardóttir.
Flutt verður meðal annars „Brennið
þið vitar“ eftir Pál Ísólfsson á nýstár-
legan hátt, en einnig verk eftir Edv-
ard Grieg, Carl Nielsen og Christi-
an Sinding. Trio DaNoIs flytur á
tónleikunum nýtt verk sem heit-
ir „Hommage á Carl Nielsen“ eft-
ir norska tónskáldið Morten Gaat-
haug, en það er skrifað sérstaklega
fyrir tónlistarfólkið í tilefni af því að
á þessu ári eru 150 ár frá fæðingu
Nielsen. Miðaverð er 2500 krón-
ur og renna 500 krónur af hverjum
miða til Krabbameinsfélagsins.
Hornleikarinn Pernille
Kaarslev, frá Fensmark í Dan-
mörku, píanóleikarinn Jónína Erna
Arnardóttir úr Borgarnesi og
píanóleikarinn Morten Fagerli, fra
Rælingen i Noregi, hittust þegar
þau voru öll nemendur við Grie-
gakademiet í Bergen á 10. áratug-
num. Pernille og Morten hafa spilað
saman í Danmörku, Noregi, Þýska-
landi og Sviss síðan 1998 og Jónína
og Morten hófu að spila fjórhent á
Isnord tónlistarhátíðinni í Borgar-
firði árið 2012. Árið 2014 ákváðu
listamennirnir síðan að stofna tríó
og var markmiðið að draga fram
norrænan tónlistararf og menningu.
Kom tríóið fram á alls 14 tónleikum
í fyrra þar sem minnst var t.d. 70 ára
sjálfstæðis Íslands og 200 ára stjór-
narskrárafmælis Noregs. Í ár hefur
tríóið komið fram á nokkrum tón-
leikum í Noregi, Riga í Lettlandi og
Danmörku á tvennum tónleikum.
mm
Tríótónleikar í Borgarnes-
kirkju á fimmtudagskvöldið
H j á l p a r s t a r f
kirkjunnar hef-
ur byrjað sölu á
gjafabréfum að
upphæð 2.500
krónur sem
heita „Heit
máltíð fyrir
fólk á flótta.“
Í norðurhluta
Líbanon vinna
heimamenn og
flóttafólk frá
Sýrlandi hlið
við hlið við að
matreiða fyrir
börn, barns-
hafandi kon-
ur, fatlaða og
þá sem verst
eru settir og
ekki hafa að-
gang að eldunaraðstöðu. Næring-
arrík máltíðin inniheldur 17% fitu,
12% prótein og næga orku fyrir
daginn. Kon-
urnar frá Sýr-
landi sem mat-
búa fá greitt
fyrir vinnu
sína og þar
með tækifæri
til að aðlagast
nýju samfélagi
betur. Hægt er
að lesa betur
um söfnunina
á help.is og
smella á „gjafa-
bréf.“
Ef fólk vill
frekar nýta
sér söfnunar-
reikning fyrir
neyðaraðstoð
í Sýrlandi og
nágrannalön-
dum: 0334-26-886 Kt. 450670-
0499 Söfnunarsími 907 2003 (2.500
kr.) -fréttatilkynning
Safna fyrir heitri máltíð
fyrir fólk á flótta