Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2015, Page 35

Skessuhorn - 30.09.2015, Page 35
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2015 35 Um nokkurra ára skeið hefur á laugardagsmorgnum komið saman á Jaðarsbökkum á Akranesi hópur manna og spáð í fótbolta en einn- ig heimsmálin hverju sinni. Drukk- ið er kaffi og borðað bakkelsi frá Brauða- og kökugerðinni. Tilgang- urinn er að „tippa“ á enska seðilinn og styrkja um leið Íþróttabanda- lag Akraness. Hópurinn sem mæt- ir telur að jafnaði 10-20 áhugasama fótboltakappa. Auk þess er í gangi hópur manna, bæði þeir sem mæta auk fleiri utan sem innan Akraness, sem eru þátttakendur í því sem þeir kalla „Stóra hópnum.“ Með- limir hans greiða þátttökugjald yfir fimm vikna tímabil og er tipp- að fyrir þátttökugjaldið. Ýmist eru það umsjónarmenn tippsins sem fylla þann seðlil eða gestatipparar sem sjá um það. „Það er gaman að segja frá því að í leikviku 37 gerð- ist það að við fengum „þann stóra“ og var vinningurinn sem Stóri hóp- urinn fékk rétt rúmlega 1,2 miljón- ir króna. Mér er bæði ljúft og skylt að geta þess að gestatipparar þá vik- una voru bræður mínir þeir Magn- ús Daníel og Kristleifur Skarphéð- inn,“ segir Einar Brandsson for- svarsmaður tipparanna í samtali við Skessuhorn. Einar segir að öðru hverju, þeg- ar svokallaðir risapottar eru í gangi, þá séu seldir hlutir og fyrir ágóð- ann af sölunni sé tippað. Umsjón- armenn þessa starfs voru í upphafi Guðlaugur Gunnarsson, Sigmund- ur Ámundason auk Einars. Í dag sjá Sigmundur og Einar um að halda utan um starfið með góðri aðstoð fastra meðlima. „Þegar menn koma og tippa hjá okkur rennur ákveð- in hluti af söluverði seðils til knatt- spyrnufélagsins okkar,“ segir Einar. Hann bætir því við að í þessari viku byrji nýtt fimm vikna tímabil. „Þeir sem hafa áhuga á að vera með geta haft samband við mig (einarb@ skaginn.is) eða Sigmund (sigmund- ur.amundason@akranes.is).“ mm Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði hjá ellefu verslunarkeðjum af tólf frá því í byrjun júní og fram í sept- ember. Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Krónunni, Bónus og Kaupfélagi Skagfirðinga, en karfan lækkaði aðeins í verði hjá Víði. Á tímabilinu má sjá hækkanir í öllum vöruflokkum en áberandi eru hækk- anir á mjólkurvörum sem hækka um 3-5% í flestum verslunum. Mesta verðhækkunin á körfunni var 3,2% hjá Krónunni, um 2,4% hjá Bónus og Kaupfélagi Skagfirðinga, 1,9% hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetn- inga, 1,3-1,7% hjá Nettó, Iceland, Hagkaupum, Samkaupum-Úrvali, Samkaupum-Strax og Kjarval og um 0,9% hjá 10/11. Verð körfunn- ar hefur á sama tímabili lækkað um 2,4% hjá Víði og er mesta lækkun- in hjá þeirri verslun í vöruflokkn- um grænmeti og ávextir sem hefur lækkað í verði um 11,3%. Miklar hækkanir eru annars í öllum vöruflokkum. Mest hækka mjólkurvörur, ostar og egg í öllum verslununum. Mesta hækkunin er um 6,6% hjá Iceland, um 4,6-5,4% hjá Bónus, Krónunni, Samkaupum- Úrval og Kaupfélagi Vestur-Hún- vetninga, um 2,7-4,1% hjá Nettó, Hagkaupum, Samkaupum-Strax og Víði. Hjá Kjarval og Kaupfélagi Skagfirðinga var hækkunin 1,4% og 0,4% hjá 10/11. Kjötvörur hækka í flestum verslunum, mesta hækk- unin er um 8,3% hjá Krónunni og um 4,4% hjá Kaupfélagi Skagfirð- inga, aðrar verslanir hækka minna eða á bilinu 0,2-2,9%. En hjá Hag- kaupum stendur verðið í stað og hjá Samkaupum-Úrvali lækkaði verð- ið. Sætindi eru að hækka í verði eft- ir að hafa lækkað í kringum ára- mótin vegna afnáms sykurskatts- ins. Er hækkunin á bilinu 1,1-2,8% hjá Bónus, Krónunni, Iceland, Hagkaupum, Samkaupum-Úr- vali, 10/11 og Kjarval. Hækkunin er minni hjá Kaupfélagi Skagfirð- inga, Samkaupum-Strax og Kaup- félagi Vestur-Húnvetninga eða um 0,2-0,6%. Í Nettó er lækkun um 0,9% og hjá Víði um 1,8%. Brauð og kornvörur hækka um 4,7% hjá Iceland og um 2,8% hjá Samkaupum-Strax en minna hjá Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Samkaupum-Úrval, 10/11, Kaup- félagi Skagfirðinga og Kjarval. Á sama tíma er lækkun um 1,4% hjá Bónus og um 0,4-0,5% hjá Víði og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga. Grænmeti og ávextir hækka í verði hjá 9 verslunum af 12. Mesta hækkunin er um 6,2% hjá Kaup- félagi Skagfirðinga og um 5% hjá Samkaupum-Úrvali, aðrar verslan- ir hækka minna eða um 0,1-3,9%. Grænmeti og ávextir lækka um 11,3% hjá Víði, um 7% hjá Iceland og um 0,5% hjá Samkaupum-Strax. mm/Ljósm. eo. Vörukarfan hefur hækkað í verði í nær öllum verslunum Magnús Daníel og Kristleifur Skarphéðinn Brandssynir voru getspakir með eindæmum í viku 37. Getspakir tipparar nældu í þann stóra Spáð í spilin síðastliðinn laugardagsmorgun um hvernig skuli tippa. Íslenska skútan Hugur á siglingu í Albany-sundi við Jórvíkurskaga í Ástralíu, skammt frá nyrsta odda álfunnar, en íslenska skútan og sú sænska hafa gjarnan samflot. Rústirnar af gamla ráðhúsinu í Darwin eru varðveittar til minningar um fellibylinn Tracy sem lagði borgina í rúst á jóladag 1974. Krókódíll í Adelaide-ánni fyrir sunnan Darwin leikur listir sínar fyrir ferðamenn. Sólarlagið á Mindil-ströndinni í Darwin, einstaklega fallegri strönd þar sem fáir þora að synda af hræðslu við krókódíla.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.