Skessuhorn


Skessuhorn - 30.09.2015, Qupperneq 39

Skessuhorn - 30.09.2015, Qupperneq 39
MIÐVIKUDAGUR 30. SEPTEMBER 2015 39 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA F ÍT O N / S ÍA Skallagrímur tók á móti úrvals- deildarliði FSu í Lengjubikar karla í körfuknattleik föstudaginn 25. sept- ember. Borgnesingar biðu leiks- ins með nokkurri eftirvæntingu, því hann var sá fyrsti sem bahameyski framherjinn J.R. Cadot lék með lið- inu, en hann gekk til liðs við félagið fyrr í sumar. Leikurinn á föstudag var jafn framan af, liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrri hálfleik en gestirn- ir leiddu með tveimur stigum þegar flautað var til leikhlés. Forystu sína létu leikmenn FSu aldrei af hendi en alltaf tókst Skalla- grímsmönnum að hanga í þeim. Leiknum lauk með naumum fimm stiga sigri gestanna og getur ungt lið Skallagríms vel við unað á móti úr- valsdeildarliðinu. J.R. Cadot átti stórleik í sínum fyrsta leik fyrir Skallagrím, skilaði tvöfaldri tvennu með 37 stig og 15 fráköst. Næstur honum kom bak- vörðurinn Davíð Ásgeirsson með 20 stig. kgk Ungt lið Skallagríms stóð í FSu J.R. Cadot skoraði 37 stig og tók 15 fráköst í sínum fyrsta leik fyrir Skallagrím. Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson. ÍA tók á móti Val í 21. og næstsíðustu umferð úrvalsdeildar karla í knatt- spyrnu á Akranesvelli á laugardag- inn. Hvorugt liðið hafði að nokkru að keppa fyrir leik, Skagamenn þeg- ar búnir að tryggja sæti sitt í deildinni og Valsmenn í fínum málum í fjórða sæti deildarinnar. Þar að auki var híf- andi suðaustan rok sem setti veru- lega svip sinn á leikinn. Leikurinn fór hægt af stað. Skagamenn höfðu undirtökin undan vindinum, beittu löngum sendingum og Valsmönn- um gekk á köflum illa að komast upp völlinn. Arnar Már Guðjónsson kom ÍA yfir upp úr þurru á 25. mínútu. Hann fékk boltann við miðlínuna. Arn- ar leit upp og sá að markmaður Vals stóð heldur framalega. Hann lét því vaða á markið frá miðjuboganum og boltinn sveif með vindinum alla leið í netið. Fátt fleira markvert gerðist í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi 1-0, ÍA í vil. Valsmenn voru heldur frískari í upphafi síðari hálfleiks, með vind- inn í bakið. Kristinn Freyr Sigurðs- son var nálægt því að jafna þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleiks en skot hans af um 30 m færi skopp- aði af þverslánni og yfir. Á 83. mínútu átti Tryggvi Haralds- son góðan sprett fyrir ÍA, geystist upp vinstri kantinn en skot hans hafnaði í stönginni. Þegar næsta gula treyja kom aðvífandi og hugðist ná frákast- inu var hún toguð niður í vítateign- um. Atferli þetta fór ekki framhjá vökulum augum Gunnars Jarls dóm- ara sem blés í flautu sína og dæmdi vítaspyrnu. Garðar Gunnlaugsson steig á punktinn en þrumaði boltan- um í þverslánna og yfir. Lokatölur á Akranesvelli því 1-0, ÍA í vil. Úrslitin þýða að Skagamenn lyfta sér upp í sjöunda sæti deildarinn- ar með 26 stig, jafn mörg og Fylkir í sætinu fyrir neðan en betri markatölu. Þess ber að geta að FH varð þennan sama dag Íslandsmeistari karla í sjö- unda sinn eftir sigur liðsins á Fjölni. Þá töpuðu nýliðar Leiknis fyrir KR og eru því fallnir niður í 1. deildina ásamt Keflvíkingum. kgk ÍA lagði Val í hífandi roki á Skaganum Arnar Már Guðjónsson tryggði Skagamönnum sigur á Val í dag með glæsilegu skoti frá miðjuboganum. Ljósm. Guðmundur Bjarki. Meistarakeppni ungmenna var hald- in í Egilshöll í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Sendi Keilufélag Akraness 14 þátttakendur til keppni og sneru fjórir þeirra heim með verðlaun. Jó- hanna Guðjónsdóttir vann til gull- verðlauna í 2. flokki stúlkna, Gunn- ar Ingi Guðjónsson hlaut brons í 2. flokki pilta. Í 3. flokki pilta vann Jó- hann Ársæll Atlason til silfurverð- launa og Ólafur Sveinn Ólafsson hreppti bronsið. Á sunnudaginn var keppt í fyrstu umferð félagakeppni Íslandsmeistara- móts félaga og ÍA trónir þar á toppn- um ásamt ÍR með 20 stig eftir þessa fyrstu umferð. Deildarkeppni Íslandsmótsins í keilu hófst svo mánudaginn 27. sept- ember síðastliðinn. Í 2. deild kvenna tók ÍA á móti ÍR/KK og vann 12-2 sigur og lið ÍA B í 3. deild karla tók á móti KRF/Folunum og vann einn- ig 12-2. Í 1. deild karla tók lið ÍA-W á móti ÍRL og vann 13-1. Skemmst er frá því að segja að ÍA-W setti Ís- landsmet í tveimur leikjum og aðeins munaði tíu pinnum að tækist að slá Ís- landsmetið í þremur leikjum. Einar Norðfjörð, sem er nýgenginn til liðs við Keilufélag Akraness frá ÍR, skoraði 700 stig í þremur leikjum, eða 233 að meðaltali í leik og kann greini- lega vel við sig á nýjum heimavelli. Þá náði Skúli Freyr Sigurðsson 645 stig- um í þremur leikjum eða 215 í leik. Keilufélagið teflir fram tveimur liðum í 1. deild karla, sem jafnframt er efsta deildin, í vetur. Lið ÍA lék í gærkvöldi en sá leikur var ekki hafinn þegar Skessuhorn fór í prentun. kgk Lið KFA setti Íslandsmet í keilu ÍA-W setti Íslandsmet í tveimur leikjum þegar liði sigraði ÍRL 13-1 í deildinni síðast- liðinn mánudag. F.v. Einar, Skúli Freyr, Aron Fannar, Gylfi Snær og Arnar Daði. Um næstu helgi fer fram í Kórnum í Kópavogi hæfileikamót KSÍ og N1 fyrir drengi. Þar mæta leikmenn í 4. flokki á aldrinum 13 til 14 ára sem hafa mætt á æfingar og fengið fróð- leik á vegum Hæfileikamótunar KSÍ og N1 og er mótið framhald af því, en stjórnandi mótsins er Hall- dór Björnsson. Á þessu móti tekur þátt ungur og efnilegur leikmaður frá Víkingi Ólafsvík; Bjartur Bjarmi Barkarson. Þess má geta að Bjartur Bjarmi spilaði nokkra leiki með 2. flokki Snæfellsness í sumar. þa Efnilegur knattspyrnu- maður úr Víkingi Íslandsmeistarar Snæfells heimsóttu Grindavík í Lengjubikar kvenna í körfuknattleik mánudaginn 28. sept- ember. Leikurinn var jafn framan af en á síðustu mínútum fyrsta leikhluta náðu leikmenn Snæfells heldur und- irtökunum og leiddu með sjö stigum þegar flautað var til hálfleiks. Grinda- vík saxaði jafnt og þétt á forskot Snæ- fells í þriðja leikhluta og komust yfir undir lok hans. Snæfellskonur náðu aftur forystunni og höfðu átta stiga forskot þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum. Ótrúlegur 15 stiga lokasprettur Grindvíkinga gerði þeim hins vegar kleift að stela sigrinum og vinna tveggja stiga sigur. Lokatöl- ur urðu 67-65, Grindvíkingum í vil. Snæfell hefur því lokið þátttöku sinni í Lengjubikar kvenna þetta haustið. Haiden Palmer skilaði tvöfaldri tvennu í leiknum, skoraði 24 stig og tók 11 fráköst. Auk þess gaf hún fimm stoðsendingar. Stigahæst var hins vegar Berglind Gunnarsdóttir með 25 stig, sjö fráköst og tvær stoðsend- ingar. kgk Tap hjá Íslands- meisturunum í háspennuleik Haiden Palmer náði tvöfaldri tvennu í tapleiknum gegn Grindavík á mánudag. Hún skoraði 24 stig og tók 11 fráköst. Ljósm. sá. Föstudaginn 25. september síðast- liðinn gerðu Snæfellsmenn sér ferð á Suðurnesin og heimsóttu Njarð- vík í Lengjubikar karla í körfu- knattleik. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi, liðin skiptust á að leiða og höfðu gestirnir úr Stykk- ishólmi tveggja stiga forystu þeg- ar flautað var til leikhlés, 42-44. Heimamenn í Njarðvík náðu und- irtökunum í þriðja leikhluta og höfðu sjö stiga forystu fyrir síðustu tíu mínútur leiksins. En leikmenn Snæfells börðust áfram, náðu for- ystunni um miðjan fjórða leikhluta en á lokaandartökum leiksins tókst heimamönnum að klóra fram eins stigs sigur, 85-84. Atkvæðamestur í liði Snæfells var Sherrod Wright, en hann skoraði 37 stig og tók átta fráköst. Næstur honum kom Sigurður Þorvaldsson með 21 stig og sex fráköst. kgk Eins stigs tap Snæfells Sherrod Wright skoraði 37 stig þegar Snæfell tapaði naumlega fyrir Njarðvík síðastliðinn föstudag. Ljósm. sá.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.