Skessuhorn - 02.12.2015, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 20156
Dregið í 16 liða
úrslitum
Útsvars
LANDIÐ: Eins og Skessu-
horn hefur áður greint frá á
Vesturland tvo fulltrúa sem
báðir komust áfram úr fyrstu
umferð Útsvars, spurninga-
keppni sveitarfélaganna á
RÚV. Lið Reykhólahrepps
tryggði sér sæti í 16 liða úr-
slitum sem stigahæsta taplið-
ið eftir tveggja stiga tap gegn
Fjallabyggð, 78-76. Snæfells-
bær setti svo stigamet í vik-
unni á eftir með stórsigri á
Rangárþingi eystra, 103-32.
Síðastliðinn föstudag var
dregið í 16 liða úrslitum og
þar kom í ljós að Reykhóla-
hreppur mætir Reykjavík en
Snæfellsbær etur kappi við
Rangárþing ytra. Enn hafa
þættirnir ekki verið dagsettir
en miðað við röð viðureigna
sem gefin er upp á heimasíðu
þáttarins má gera ráð fyrir því
að hvorugt lið keppi fyrr en á
því herrans ári 2016.
-kgk
Bæjarráð hafnar
styrkbeiðni
AKRANES: Fjölbrautaskóli
Vesturlands á Akranesi ósk-
aði í nóvembermánuði eft-
ir því að Akraneskaupstað-
ur styrkti skólann um tvær
milljónir króna til kaupa á
tækjum fyrir skólann. Erind-
ið var tekið fyrir á fundi bæj-
arráðs 26. nóvember þar sem
því var hafnað. Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar tók svipað
erindi frá skólanum til um-
fjöllunar á fundi sínum 24.
nóvember og samþykkti að
veita skólanum 100 þúsund
krónur til tækjakaupa.
-mþh
Staða aðstoðar-
skólameistara
auglýst
AKRANES: Fjölbrautaskóli
Vesturlands á Akranesi hefur
auglýst stöðu aðstoðarskóla-
meistara lausa til umsókn-
ar. Hafliða Páli Guðjónssyni
fyrrum aðstoðarskólameist-
ara skólans var sagt upp störf-
um af Ágústu Elínu Ingþórs-
dóttur skólameistara í byrjun
október eftir aðeins tveggja
mánaða veru í stöðunni. Að-
stoðarskólameistari er stað-
gengill skólameistara og hon-
um til aðstoðar við daglega
stjórn skólans og rekstur.
Loft hefur verið lævi blandið
í Fjölbrautaskóla Vesturlands
í haust og spenna milli hluta
starfsfólks og skólameistara.
Utanaðkomandi stjórnunar-
ráðgjafi var fenginn að skól-
anum fyrir tilstilli mennta-
málaráðuneytisins svo stuðla
mætti að því að koma sam-
skiptum í eðlilegt horf. Það er
Þorsteinn Þorsteinsson fyrr-
um skólameistari Fjölbrauta-
skóla Garðabæjar.
–mþh
Samstaða hjá
starfsmönnum
AKRANES: Á fundi Verka-
lýðsfélags Akraness og starfs-
manna Akraneskaupstaðar
síðastliðinn föstudag var sam-
þykkt ályktun þar sem með-
al annars kom fram að félags-
fundur starfsmanna sem til-
heyra VLFA harmi það of-
beldi sem Samband íslenskra
sveitarfélaga reynir að beita
samninganefnd VLFA með
því að gera skýlausa kröfu um
að SALEK samkomulagið
verði hluti af kjarasamningi
starfsmanna, ellegar verði
enginn kjarasamningur gerð-
ur. Í ályktunninni er einnig
kveðið á um að starfsmenn
telji sig hvorki hafa laga-
lega heimild né umboð til að
skerða samningsrétt annarra
launamanna í sínum kjara-
samningum með því að sam-
þykkja umrætt SALEK sam-
komulag aðila vinnumark-
aðarins. Það var mat fund-
armanna að fjölmörg atriði í
umræddu samkomulagi muni
leiða til takmarkana og skerð-
ingar á samningafrelsi launa-
fólks til framtíðar. Þá lýsti
fundurinn fullum stuðningi
við baráttu VLFA í kjara-
deilu félagsins við Samband
íslenskra sveitarfélaga og
skorar á íslenskt launafólk að
kynna sér margumrætt SA-
LEK samkomulag.
–grþ
Hjartastuðtæki
á öllum
starfsstöðvum
HB GRANDI: Búið er að
koma fyrir hjartastuðtækj-
um á öllum starfsstöðv-
um HB Granda. Hópstjórar
hafa fengið kennslu í notk-
un þeirra. Sömuleiðis er lögð
áhersla á að starfsmenn sæki
námskeið í skyndihjálp. Um
25 starfsmenn fiskþurrkun-
ar HB Granda á Akranesi
sóttu slíkt námskeið nýverið
sem RKÍ deildin á Akranesi
sá um.
-mþh
Á Degi upplýsingatækninnar síð-
astliðinn fimmtudag, sem Skýrslu-
tæknifélagið stóð fyrir, veitti fulltrúi
innanríkisráðuneytisins verðlaun
fyrir bestu upplýsingavefina hjá hinu
opinbera. Veitt var viðurkenning fyr-
ir besta opinbera vefinn og fékk Þjóð-
skrá Íslands þá viðurkenningu fyrir
vefinn island.is. Viðurkenningu fyr-
ir besta vef sveitarfélaga hlaut Akra-
neskaupstaðar fyrir akranes.is. Fimm
sveitarfélög voru tilnefnd en auk
Akraness voru það Seltjarnarnesbær,
Fjarðabyggð, Skagafjörður og Kópa-
vogsbær sem þykja hafa góða upp-
lýsingavefi. Viðurkenningin þessi er
veitt annað hvert ár og hlaut Reykja-
víkurborg hana árið 2013.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á
Akranesi tók á móti viðurkenning-
unni. Sagðist hún í ávarpi sínu vilja
þakka starfsfólki bæjarskrifstofunnar
undir forystu Sædísar Sigurmunds-
dóttur verkefnisstjóra fyrir vinnu
við endurbætur á vef bæjarins. Einn-
ig lýsti Regína yfir ánægju með sam-
starfið við Stefnu en fyrirtækið hann-
aði vefinn í samstarfi við starfsfólk
Akraneskaupstaðar. mm
Akraneskaupstaður og Þjóðskrá
með bestu opinberu vefina
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir aðstoðarkona innanríkisráðherra og
ráðstefnustjóri á Degi upplýsingatækninnar, afhenti Regínu Ásvaldsdóttur bæjar-
stjóra viðurkenninguna fyrir besta sveitarfélagavefinn.
„Þessir yndislegu nemendur í
Grunnskóla Borgarness voru til
hreinnar fyrirmyndar þegar ég hélt
fyrirlestur minn í skólanum í vik-
unni. Þótt mig langi yfirleitt að
taka myndir af öllum bekkjum sem
ég hitti kann ég ekki við það en
stundum skapast rétta augnablik-
ið,“ skrifar Þorgrímur Þráinsson á
síðuna „Verum ástfangin af lífinu.“
Eins og kunnugt er ferðast Þor-
grímur milli skóla í landinu og ræðir
við ungt fólk um lífið og tilveruna.
Eins og alþjóð veit barst í síðustu
viku óvænt yfirlýsing um forseta-
framboð Þorgríms, en yfirlýsingin
var ekki send út af frumkvæði Þor-
gríms sjálfs, heldur ónefnds „vin-
ar“. Engu að síður gaf Þorgrímur
það út í kjölfarið að yfirgnæfandi
líkur væru á að hann biði sig fram
til Forseta Íslands næsta vor.
En Þorgrímur vill taka upp
hanskan fyrir ungu kynslóðina í dag.
Hann segir suma finna ungu fólki
margt til foráttu en hans reynsla
undanfarin ár, af þessu unga fólki
okkar, sé dásamleg. „Þessi kynslóð
er mun flottari en mín kynslóð,
tækifærin blasa við og það stend-
ur ekkert í vegi fyrir þeim - ef þau
eru óttalaus. Sterk sjálfsmynd getur
skipt sköpum til að rata í þá átt sem
hjartað slær í stað þess að ,,elta“
fjöldann í blindni... ,,af því bara“.
Ég trúi því að þessi kynslóð og sú
næsta séu kynslóðirnar sem munu
stuðla að friði í heiminum með því
að hafa samkennd, góðverk, hjarta-
hlýju í forgrunni og svara óvild með
faðmlagi og fyrirgefningu.“
mm
Var ánægður með prúð ungmenni í Borgarnesi
Þorgrímur Þráinsson ræddi við þennan glæsilega hóp í Grunnskóla Borgarness í
vikunni sem leið. Ljósm. þþ.