Skessuhorn - 02.12.2015, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 201530
Hvaða bók langar þig
helst í sem jólagjöf?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Stykkishólmi)
Eydís Bergmann Eyþórsdóttir
„Sogið eftir Yrsu Sigurðardótt-
ur“
Sigmar Logi Hinriksson
„Stórhvalaveiðar við Ísland til
1915 eftir Smára Geirsson“
Heiðrún Höskuldsdóttir
„Dimmu eftir Ragnar Jónasson“
Sumarliði Ásgeirsson
„Mörk – saga mömmu eftir Þóru
Karítas Árnadóttur“
Guðrún Birna Eggertsdóttir
„Sogið eftir Yrsu“
Það var heldur betur fjör í íþrótta-
húsi Grundarfjarðar síðasta laugar-
dag þegar nokkrir krakkar úr Skátafé-
laginu Erninum mættu þangað al-
vopnaðir. Þá var bryddað upp á því
að halda svokallað „Nerf-mót“ en
Nerf eru leikfangabyssur sem skjóta
mjúkum pílum. Aðalsteinn Þorvalds-
son var með yfirumsjón með mótinu
og gerði skemmtilega braut í salnum
þar sem krakkarnir gátu farið í hefð-
bundna leiki eins og að ná flaggi and-
stæðingsins og fleira. Þetta heppnað-
ist með eindæmum vel og reiknaði
Aðalsteinn með að þetta yrði endur-
tekið síðar. tfk
Fóru í byssuleik í íþróttahúsinu
Árlegur aðventudagur kvenfélags-
ins Gleym mér ei var haldinn í
Samkomuhúsinu í Grundarfirði
síðastliðinn laugardag. Að vanda
voru þar sölubásar með handverki,
kökum og fleiru auk þess sem kven-
félagið seldi vöfflur og kakó. Á
dagskrá voru söng- og tónlistar-
atriði frá tónlistarskólanum og úr-
slit voru kunngjörð í ljósmynda-
samkeppni Grundarfjarðar 2015,
þar sem Sverrir Karlsson hreppti
fyrsta sætið. Þá var einnig tilkynnt
um val á íþróttamanni Grundar-
fjarðar. Í ár voru fjórir íþróttamenn
tilnefndir og bar Svana Björk Stein-
arsdóttir, sextán ára blakkona, sig-
ur úr býtum og nafnbótina íþrótta-
maður Grundarfjarðar 2015. Það
var blakráð UMFG sem tilnefndi
Svönu Björk sem er lykilleikmaður
í liði UMFG og keppir nú í fyrsta
sinn í MIZUNO úrvalsdeildinni í
blaki. Hún var nýverið valin ann-
að árið í röð í U-17 unglingalands-
liðið og fór með liðinu til Ketter-
ing í Englandi þar sem stúlkurn-
ar höfnuðu í öðru sæti og náðu
þar með besta árangri sem íslenskt
U-17 landslið hefur náð á alþjóð-
legu móti. Svana Björk þykir prúð-
ur og agaður leikmaður sem er öðr-
um fyrirmynd jafnt innan vallar
sem utan. grþ / Ljósm. tfk
Íþróttamaður Grundarfjarðar heiðraður
á aðventudegi kvenfélagsins
Þau sem tilnefnd voru sem íþróttamenn Grundarfjarðar 2015. Frá vinstri: Sandra
Rut Steinarsdóttir í fjarveru Svönu Bjarkar sem var í keppnisferð í blaki, Heimir
Þór Ásgeirsson sem tilnefndur var fyrir golf, Guðlaug Halldóra Guðmundsdóttir í
fjarveru ömmu barnsins Berglindar Óskar Kristmundsdóttur knattspyrnukonu og
Birgir Guðmundsson sem tilnefndur var fyrir skotfimi.
Elísabet Árnadóttir kynnti handverk á aðventudeginum.
Dagný Rut Kjartansdóttir með verðlaun fyrir að lenda í öðru sæti í ljósmyndasam-
keppni Grundarfjarðar en Sverrir Karlsson, sem var fjarverandi, átti myndirnar í
þriðja og fyrsta sæti. Amelía og Kristbjörg tóku nokkur vel valin jólalög á aðventudeginum.
Hin 16 ára gamla Svana
Björk Steinarsdóttir stolt með
verðlaunin.