Skessuhorn - 02.12.2015, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 29
Fingurnir renna titrandi í gegnum
þéttliðað og næringarríkt hárið,
vonbrigðin eru mikil. Hann velt-
ir fyrir sér hver næstu skref eigi
eiginlega að vera. Spegillinn sýnir
honum bugað andlit, borgarstjóra,
borgarstjóra sem á að geta kom-
ið hlutunum í framkvæmd; „And-
skotans!” Hnefinn þýtur af stað og
lendir á speglinum sem brotnar í
þúsund mola. Brotin lenda við ljós-
brúna Ecco leðurskóna og mynda
ör sem bendir í átt að Vatnsmýr-
inni og hæðast að honum. Fagur-
myndað andlitið tekur að krump-
ast af gremju og maðurinn brotn-
ar niður og fellur á hnén; „Hvers
vegna getum við ekki fært hann,“
öskrar hann út í loftið en fær ekk-
ert svar.
Ofangreind lýsing á viðbrögð-
um borgarstjóra við ákvörðun
Ólafar Nordal um að taka fyr-
ir lokun neyðarbrautarinnar gæti
verið uppspuni, en ég gæti trúað
að þau fari fljótlega að gera vart
við sig miðað við þrautseigju flug-
vallarvina í Vatnsmýrinni. Málið
er örugglega búið að valda mörg-
um borgarfulltrúanum sálarangist
sem reynir að hvíthnúa sig í gegn-
um þetta þaulrædda mál og jafnvel
hækkuðum blóðþrýstingi. Ég tala
um skipulagslærða Reykvíkinga
sem hafa jafnvel dvalist erlendis
og eiga sér mýrblautan draum sem
samanstendur af þéttriðnu neti af
göngu- og hjólastígum sem liðast í
gegnum mjúklega blandaða byggð
í Vatnsmýrinni. Ég er alls ekki
að agnúast út í þá sem vilja hafa
hjólastíga, sjálfur á ég þetta forláta
þriggja gíra hjól og finnst gaman að
hjóla á því.
En þegar samningurinn var und-
irritaður í ráðherratíð Hönnu Birnu,
sem er Diet kók útgáfa Sjálfstæðis-
flokksins af J.R. Ewing í Dallas, því
sama hvað hún gerir af sér þá snýr
hún alltaf aftur, sáu borgaryfirvöld
sér leik á borði og ætluðu að taka
litla putta með Valsreitnum svokall-
aða og seinna skyldu þau taka alla
hendina. Hver sú leið verður valin
til að losa sig endanlega við lands-
byggðina úr hjarta sínu er ekki gott
að segja til um en ljóst er að þarna
er um að ræða einskonar skipulags-
legan ómöguleika, svo ég snúi að-
eins upp á orð Bjarna Ben. Hvort
sem það er nefnd (það er búið að
skipa fullt af nefndum í gegnum
árin) sem skipuð er til að meta flug-
völlinn í Vatnsmýrinni, sem er ein-
ungis með eitt markmið og það er
að koma honum burt. Eða jafnvel
ennþá betra, smáframkvæmdir hér
og þar til að þrengja að honum og
færa loks í skipulagslegan ruslflokk,
er ekki gott að segja til um. Þetta
hlýtur að hafa kostað borgina of-
fjár í launakostnaði og öllu því sem
fylgir nefndastörfum. Af hverju
borgaryfirvöldum er svona fyrir-
munað og að því virðist refsað fyr-
ir að vilja þétta byggð í Vatnsmýr-
inni er ágætt að rifja upp söguna af
Sisyphus.
Eftir tíma mikillar sjálfsupphafn-
ingar, slægð og prettsemi var hon-
um refsað af guðunum. Refsing-
in fólst í því að hann þurfti að ýta
stórum stein upp mikla brekku og
þegar hann var kominn upp þurfti
hann að horfa á steininn rúlla niður
aftur. Þennan gjörning þurfti hann
að endurtaka til eilífðar, gott á hann
gæti einhver sagt.
Axel Freyr, Borgarfirði.
Óska eftir hlutastarfi
Ég er 27 ára kona og bý á Hvanneyri.
Ég er í námi við LBHÍ og er að leita mér
að hlutastarfi hér í nágrenninu. Ég hef
unnið við þrif og ýmis þjónustustörf
sem rekstrar- og verslunarstjóri. Hef
mjög góða tungumálakunnáttu og
þjónustulund. Vinsamlegast hafðu
samband ef þú ert að leita að mann-
eskju í hlutastarf. brynja1988@hotmail.
com.
Til sölu SSANGYONG MUSSO
GRANDLUX
Til sölu Ssangyong Musso Grand Lux
árgerð 2000. 3.200cc bensín vél, sjálf-
skiptur, skoðaður 2016 , nýsmurður bíll
í fínu lagi. Lítið ekinn og góður jeppi
sem hefur fengið gott viðhald upp á
síðkastið. Ekinn aðeins 135 þús. km.
Lækkað verð: 295.000 kr. staðgreitt.
ENGIN SKIPTI. Bíllinn er í Reykjavík.
Frekari upplýsingar í síma 821-2084.
Óska eftir hundi
Óska eftir orkumikilli tegund, má vera
blandað, vantar ferðafélaga til að taka
með mér á fjöll og í aðra útivist, langar
líka að skrá hann í björgunarhunda-
sveitina. IcelandJedi@gmail.com.
Daggæsla
Dagmóðir á Varmalandi með 2 laus
pláss. Upplýsingar í síma 892-4013 eða
með tölvupósti magga.geymonat@
gmail.com.
Antik sófi mjög flottur
Antik sófi, tréverk alveg heilt, eik og
nýbólstraður, fæst á 75.000. Uppl. í
síma 696-2334.
Til sölu
Til sölu sófasett 3+1+1, brúnt leðurlíki.
Keypt í Hagkaup fyrir 9 árum verðhug-
mynd 40 þús. Uppl. í síma 699-8160.
Óska eftir íbúð
Óska eftir stúdíó eða íbúð. Ég er 23 ára
gamall og í 100% vinnu. Kærastan er
21 árs nemi við HÍ og er líka í vinnu.
Ekkert mál að senda meðmæli.
Reykjum ekki og erum ekki partífólk,
erum helst í útilegu eða í hesthúsinu
um helgar. Endilega sendið mér skila-
boð. Sími 857-8144.
Einbýlishús til leigu
Til leigu 220 fm einbýlishús á
Brákarbraut í Borgarnesi, getur losnað
fljótlega. Elín sími: 699-7569 og / eða
tölvupóstur elladav@simnet.is.
Íbúð til leigu
Til leigu 140 fm íbúð í Borgarnesi.
Getur verið laus fljótlega. Svar í tölvu-
pósti elladav@simnet.is eða í síma
699-7569, Elín.
Húsnæði óskast
Íbúðarhúsnæði óskast sem fyrst í
Borgarnesi eða nágrenni. Leigutími
eftir samkomulagi. Góðri umgengni og
skilvísum greiðslum heitið. Uppl. Einar
í síma 698-3404.
Óska eftir postulínsdúkkum
Óska eftir postulínsdúkkum, bæði
stórum 60 cm og eins 45 cm. Hef verið
að kaupa minni dúkkurnar á 500 kr.
og þær stærri á 1500 kr. aterg13@
simnet.is.
Bækur til sölu
Sléttuhreppur, Saga Strandamanna,
Jeppabókin, Sálumessa syndara, Saga
Ólafsvíkur, Ættir Strandamanna, Bú-
vélar og ræktun, Harmsaga ævi minnar
og Þegar ástvinur deyr. Upplýsingar í
síma 557-7957.
Borgarnes dagatalið 2016
Veggdagatal með 13 ljósmyndum úr
Borgarnesi. Hægt er að skoða mynd-
irnar á dagatalinu á internetslóðinni :
www.hvitatravel.is/dagatal Dagatalið
kostar 2,400.- kr. stk. en veittur er 15%
afsláttur ef keypt eru 5 stk. eða fleiri. Frí
heimsending í Borgarnesi. Upplýsingar
í síma 661-7173 & tolli@hvitatravel.is.
Bækur um Vesturland og Vestlend-
inga
Byggðir Borgarfjarðar I-IV. Ættir Akur-
nesinga I-IV. Héraðssaga Borgarfjarðar.
Mýramannaþættir. Hvanneyrarskólinn.
Borgfirsk ljóð. Hvítárbakkaskólinn.
Snorri á Húsafelli.Allsherjargoðinn. Og
þá rigndi blómum.Norðurá fegurst
áa. Merkir Borgfirðingar.Uppl. í síma
8410322.
Hesthús til sölu
Að Vindási í Borgarnesi er 11 hesta hús,
samtals 105 fermetrar. Upplýsingar í
síma 696-9593.TIL SÖLU
HÚSBÚNAÐUR / HEIMILISTÆKI
Dalabyggð - 2. desember
Kveikt verður á jólatré við Auðarskóla
kl. 17:30. Á eftir er boðið upp á kaffi,
súkkulaði og piparkökur í Dalabúð eins
og venjulega.
Akranes - 2. desember
Jólatónleikar í Tónbergi kl. 18. Nem-
endur leika listir sínar á hin ýmsu
hljóðfæri. Verið velkomin.
Akranes - 3. desember
Jólatónleikar II í Tónbergi kl. 18. Fjöl-
breytt tónlist á nemendatónleikum.
Allir alltaf velkomnir.
Borgarbyggð - 3. desember
Kósýkvöld í verslun Líflands Borgar-
braut 55 kl. 19. Lífland tekur þátt í
Kósýkvöldi Hyrnutorgs. Veitingar,
tilboð, uppákomur o.fl.
Stykkishólmur - 4. desember
Tendrun ljós jólatrésins frá Drammen í
Hólmgarði kl. 17.
Borgarbyggð - 4. desember
Leppalúðar og létt jólatónlist í Hjálm-
akletti, Menntaskóla Borgarfjarðar kl.
21. Stórskemmtileg jólaskemmtun
með hinum einu sönnu Hvann-
dalsbræðrum sem hafa aldrei verið
jólalegri, Sóla Hólm grínista, útvarps-
stjörnu og eftirhermu og síðast en ekki
síst hið víðförla kyntákn landsbyggðar-
innar Gísla Einarsson. Hvanndals-
bræður munu flytja nokkur af sínum
þekktari lögum og fjölmiðlafríkin
Sólmundur og Gísli munu reita af sér
brandara eins og fiður af nýskotinni
rjúpu. Miðasala - tix.is.
Dalabyggð - 4. desember
Sameiginlegt aðventukvöld safnað-
anna í Staðarfellskirkju á Fellsströnd
kl. 21. Þorrakórinn ásamt kirkjukór
Dalaprestakalls syngur jólasálma og
Jóna Margrét Guðmundsdóttir syngur
jólalög. Flutt verður ljóð og lesin jóla-
saga. Eftir afhöfnina er kirkjugestum
boðið upp á veitingar. Allir velkomnir.
Borgarbyggð - 5. desember
Jólamarkaður í gömlu hlöðunni í Nesi
Reykholtsdal kl. 13 - 17. Handverk og
matvara úr héraði.
Borgarbyggð - 6. desember
Aðventutónleikar Reykholtskórsins í
Reykholtskirkju kl. 20. Á efnisdagskrá
eru falleg jólalög og lofgjörðarvers allt
frá 16. og 17. öld til dagsins í dag. Allir
eru velkomnir, aðgangseyrir er enginn,
en söfnunarbaukur til styrktar kórstarf-
inu verður á staðnum. Að tónleikum
loknum er boðið upp á samverustund
í safnaðarsal með smákökum og
jólaöli. Á tónleikunum verður Ágústu
Þorvaldsdóttur frá Skarði minnst, eins
kórfélaganna til margra ára, en hún féll
frá fyrr á árinu langt um aldur fram.
Stykkishólmur - 7. desember
Jólatónleikar í sal tónlistarskólans kl.
18. Nemendur skólans flytja jólalög og
fleira fallegt. Fjölbreytt tónlist úr öllum
deildum skólans. Öllum velkomið að
hlusta og njóta með okkur.
Akranes - 8. desember
Blóðsöfnun á Akranesi. Blóðbankabíll-
inn verður við Ráðhúsið á Akranesi frá
kl. 10 - 17. Allir velkomnir.
Borgarbyggð - 8. desember
Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi fer
í Félagsstarf aldraðra og syngur þar kl.
13:15.
Stykkishólmur - 8. desember
Jólatónleikar í sal tónlistarskólans kl.
18. Nemendur skólans flytja jólalög og
fleira fallegt. Fjölbreytt tónlist úr öllum
deildum skólans. Öllum velkomið að
hlusta og njóta með okkur.
Akranes - 8. desember
Jólatónleikar III í Tónbergi kl. 18. Nem-
endur skólans með skemmtilega stund
í salnum okkar góða. Allir alltaf svo
hjartanlega velkomnir og aðgangur er
sko ókeypis.
Stykkishólmur - 8. desember
Jólatónleikar í sal tónlistarskólans kl.
18:45. Nemendur skólans flytja jólalög
og fleira fallegt. Fjölbreytt tónlist úr
öllum deildum skólans. Öllum velkom-
ið að hlusta og njóta með okkur.
Borgarbyggð - 8. desember
Bókakynning í Bókhlöðu Snorrastofu
kl. 20:30. Óskar Guðmundsson rithöf-
undur kynnir nýja bók sína um Skúla
Alexandersson; Þá hló Skúli.
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands
BÍLAR / VAGNAR / KERRUR
LEIGUMARKAÐUR
ATVINNA ÓSKAST
Nýfæddir
Vestlendingar
23. nóvember. Stúlka. Þyngd
3.745 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar:
Margrét Þóra Jónsdóttir og Maron
Baldursson, Akranesi. Ljósmóðir:
Ásthildur Gestsdóttir.
26. nóvember. Stúlka. Þyngd
2.610 gr. Lengd 49,5 sm. Foreldrar:
Anna Karolina Belko og Helgi
Þórarinsson, Akranesi. Ljósmóðir:
G. Erna Valentínusdóttir.
Af raunum borgarstjóra
og hans undirmanna
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
PIstill
DÝRAHALD
FYRIR BÖRN
ÓSKAST KEYPT
Getir þú barn þá birtist
það hér, þ.e.a.s. barnið!
www.skessuhorn.is