Skessuhorn - 02.12.2015, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 13
Freisting vikunnar
Það er fátt betra en að setjast nið-
ur í byrjun desember með heitt
kaffi í bolla eða kalda mjólk í glasi
og gæða sér á nýbakaðri jólaköku.
Uppskriftin er gömul og góð, hef-
ur verið bökuð í áraraðir af mömm-
um, ömmum og jafnvel langömm-
um. Um er að ræða hefðbundna ís-
lenska jólaköku, eins og þær voru
gerðar í gamla daga þegar sítrónu-
dropailmurinn fyllti húsið á með-
an kakan var í ofninum.
Hráefni:
250 gr mjúkt smjörlíki / íslenskt
smjör
250 gr sykur
2 egg (mega vera fleiri)
500 gr hveiti
4 tsk. lyftiduft
3 dl mjólk
2 dl rúsínur (má skipta út fyrir
súkkulaðibita)
1 tsk. sítrónudropar
Aðferð:
Þeytið saman smjörlíki og sykri.
Bætið við eggjum, einu í einu.
Hrærið svo þurrefnin saman við
ásamt mjólkinni. Að lokum er
rúsínum blandað varlega sam-
an við. Bakið í tveimur smurðum
formum við 180° C í 45 - 60 mín-
útur.
Gamaldags
jólakaka
Ljósm. Gæðabakstur.
Nýttu nafnið þitt til að skrifa undir bréf
til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi.
Undirskrift þín hefur meira
vægi en þú heldur.
Vertu með í bréfamaraþoni Amnesty
International í HUGHEIMUM
BJARNARBRAUT 8 Í BORGARNESI
12. DESEMBER frá kl. 13 til 16.
Söngdívan Soffía Óðinsdóttir gleður
gesti með söng sínum. Kaffiveitingar.
BREYTTU HEIMINUM!
Fyrirtækin KPMG ehf. og bók-
haldsþjónustan PRACTICA á
Akranesi sameinuðu nýverið starf-
semi sína undir nafni KPMG. Skrif-
stofa fyrirtækisins á Akranesi verð-
ur á sama stað, við Kirkjubraut 28,
og engar breytingar verða gerðar
á starfsmannahaldi í tengslum við
sameininguna. „Fram til þessa höf-
um við meðal annars verið að bjóða
upp á þjónustu varðandi bókhald,
launauppgjör, ársreikninga, skatt-
framtöl og fleira en nú munum við
geta veitt breiðari þjónustu,“ segir
Skúli B. Garðarsson hjá KPMG á
Akranesi. Hann segir PRACTICU
hafa á undanförnum árum verið í
óformlegu samstarfi við KPMG
og beint til þeirra verkefnum sem
voru fyrir utan sérsvið stofunnar.
„Það má því segja að þetta sé eðli-
legt skref í framhaldi af því sem
verið hefur. Breytingin sem felst í
sameiningunni er fyrst og fremst
sú að við getum nú veitt mun fjöl-
breyttari þjónustu með aðgengi að
sérfræðingum á öllum sviðum og
nú bætist endurskoðunarþjónusta
við starfsemina,“ segir Skúli. Sam-
einingin verður einnig til þess að
möguleiki skapast til að jafna sveifl-
ur í verkefnaálagi til að verkefni
vinnist ávallt á réttum tíma.
Betri þjónusta
KPMG hefur verið með skrifstofu í
Borgarnesi frá árinu 1990 og opnaði
nú síðast skrifstofu í Stykkishólmi í
fyrra. Það er Konráð Konráðsson
endurskoðandi sem er verkefna-
stjóri skrifstofunnar í Borgarnesi,
ásamt Haraldi Erni Reynissyni
endurskoðanda. Haraldur hefur
einnig umsjón með skrifstofunni
í Stykkishólmi en Konráð mun
nú stýra rekstrinum á Akranesi og
verður með viðveru á skrifstofunni
tvo til þrjá daga í viku. „Viðskipta-
vinir Practica ættu ekki að verða
varir við neinar breytingar í dag-
legum samskiptum við fyrirtækið.
Símanúmer sem Practica var með
eru enn í notkun, en bein síma-
númer og netföng starfsmanna
hafa breyst. Það ættu ekki að verða
nein óþægindi tengd sameining-
unni og við stefnum á að viðskipta-
vinir fái sömu persónulegu þjón-
ustuna og hingað til. Þjónustan á
bara að batna og með þessari við-
bót er í raun boðið upp á allt sem
viðskiptalífið þarfnast,“ segir Kon-
ráð. „KPMG hefur að undanförnu
lagt aukna áherslu á stuðning við
frumkvöðla- og nýsköpunarstarf-
semi meðal annars með stuðningi
við frumkvöðlasetrið Hugheima
í Borgarnesi. Við hvetjum alla þá
sem eru að stíga sín fyrstu skref í
frumkvöðlastarfsemi til að koma
og hitta okkur en við höfum átt í
farsælu samstarfi við marga frum-
kvöðla sem eru mislangt á veg
komnir í að koma sinni vöru eða
þjónustu á framfæri,“ bætir hann
við.
Formleg opnun og
fræðsludagur
Eftir áramótin verður formleg
opnun og fræðsludagur hjá KPMG
á Akranesi, en endanleg dagsetn-
ing liggur ekki fyrir. Þar geta við-
skiptavinir og aðrir sem hafa áhuga
komið og kynnt sér starfsemina
og þegið léttar veitingar. „Í janú-
ar verðum við með fyrirlestur um
skattamál og annað sem ofarlega
er á baugi í þjóðfélaginu ásamt
því að kynna starfsemi félags-
ins. Í tengslum við það ætlum við
að bjóða gestum og gangandi að
líta við hjá okkur, hægt verður að
spjalla við starfsfólkið og sérfræð-
inga KPMG, en þessi viðburður
verður auglýstur sérstaklega þegar
nær dregur,“ segir Konráð að end-
ingu. grþ
Starfsfólk KPMG á Akranesi. Frá vinstri: Konráð Konráðsson, Þórunn Steinarsdóttir, Guðrún Garðarsdóttir, Unnur Sigurðar-
dóttir, Lilja Gunnarsdóttir og Skúli B Garðarsson.
PRACTICA á Akranesi
sameinast KPMG
Rekstrartekjur HB Granda sam-
stæðunnar á þriðja ársfjórðungi
voru 56,2 milljónir evra og 166,6
milljónir evra á fyrstu níu mánuð-
um ársins. Á gengi dagsins nem-
ur þetta 7,9 og 23,5 milljörðum ís-
lenskra króna. Sambærilegar tölur
frá síðasta ári eru 68,3 milljónir evra
á þriðja ársfjórungi (9,6 milljarðar)
og 155,6 milljónir (21,9 milljarðar)
á fyrstu níu mánuðunum. Hagnað-
ur fyrir vexti og aðra fjármagnsliði
(EBITDA) nam 15,6 milljónum á
þriðja ársfjórðungi og 46,9 á fyrstu
níu mánuðum ársins. Í fyrra voru
þessar upphæðir 26,4 milljónir og
45 milljónir. Hagnaður á þriðja árs-
fjórðungi var 9,1 milljónir evra (1,3
milljarðar) og á fyrstu níu mánuð-
um ársins 31,2 milljónir (4,4 millj-
arðar). Á þriðja ársfjórðungi í fyrra
var hagnaðurinn 20 milljónir evra
(2,8 milljarðar) og 39,6 milljónir
(5,6 milljarðar) fyrstu 9 mánuðina.
Af þessum tölum er ljóst að veru-
lega dregur úr hagnaði HB Granda
á þessu ári samanborið við sömu
tímabil í fyrra.
„Innflutningsbann sjávarafurða til
Rússlands hefur haft og mun hafa
mikil áhrif á starfsemi félagsins og
afkomu þess, sérstaklega á Vopna-
firði, gangi það að fullu eftir. Um
17% tekna félagsins komu frá rúss-
neskum aðilum árið 2014. Erfitt er
að meta fjárhagsleg áhrif þessa á HB
Granda hf. en gróflega áætlað munu
tekjur félagsins lækka um u.þ.b.
10-15 milljónir evra á ársgrundvelli.
Árið 2014 námu tekjur félagsins 215
milljónum evra. Félagið á nú um 2,4
milljónir evra í útistandandi kröfum
í Rússlandi,“ segir í frétt HB Granda
um afkomutölurnar sem lagðar voru
fram í síðustu viku.
Þrátt fyrir að það dragi úr hagn-
aði þá er HB Grandi eftir sem áður
mjög sterkt fyrirtæki. Heildareign-
ir þess námu 387,3 milljónum evra
í lok september 2015. Eigið fé nam
231,8 milljónum evra. Eiginfjárhlut-
fall í lok september sl. var 59,9%, en
var 59,7% í lok árs 2014. Heildar-
skuldir félagsins voru í september-
lok 155,5 milljónir evra. Á fyrstu níu
mánuðum ársins 2015 var afli skipa
félagsins 38 þúsund tonn af botn-
fiski og 113 þúsund tonn af uppsjáv-
arfiski.
mþh
Tekjur HB Granda
minnka vegna inn-
flutningsbanns Rússa
Þann 15. ágúst var loðnuhrognafarmi á leið til Rússlands snúið við og skipað upp
að nýju í frystigeymslur á Akranesi. Daginn fyrir hafði Rússland lýst yfir viðskipta-
banni á íslenskar sjávarafurðir. Þessa sjást nú merki í bókhaldi HB Granda.