Skessuhorn


Skessuhorn - 02.12.2015, Síða 15

Skessuhorn - 02.12.2015, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 15 Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is S K E S S U H O R N 2 01 2 Reyktur og grafinn Eðallax fyrir hátíðarstundir Fyrsti sunnudagur í aðventu var um liðna helgi. Af því tilefni voru jólaljós tendruð víðsvegar um land- ið og jólasveinar á ferðinni, þó að þeirra tími sé í raun ekki kominn. Mikil jólastemning ríkti meðal annars víða hér á Vesturlandi, þar sem haldnar voru aðventuhátíðir með söng og jólagleði ýmist á laug- ardeginum eða sunndeginu, þegar kveikt var á ljósum jólatrjánna. Hér má sjá svipmyndir frá Snæfellsbæ, Akranesi og Borgarbyggð þegar ljósin voru tendruð um liðna helgi. grþ Jólaljósin tendruð í skammdeginu Jólaljósin á Akratorgi voru kveikt við hátíðlega athöfn á laugardag. Systurnar Högna og Laila Þóroddsdætur tendruðu ljósin en afi þeirra gróðursetti grenitréð sem skreytir torgið fyrir 20 árum. Ljósm. Ágústa Friðriksdóttir. Hilmar Atli Þorvarðarson fékk þann heiður að kveikja á jólatrjánum bæði í Ólafsvík og Hellissandi. Ljósm. af. Eftir að ljósin voru kveikt á Akratorgi tóku Grýla og nokkrir synir hennar nokkur jólalög. Ljósm. Ágústa Friðriksdóttir. Skólakór Grundaskóla söng fyrir áheyrendur á aðventuhátíðinni á Akranesi. Ljósm. Ágústa Friðriksdóttir. Fólk lét kuldann ekki á sig fá í Borgarnesi þegar ljósin voru tendruð á jólatré Borgarbyggðar á Kveldúlfsvelli síðastliðinn sunnudag. Ljósm. Kolfinna Jóhannesdóttir. Að venju vöktu jólasveinarnir kátínu barnanna í Snæfellsbæ. Ljósm. af. Kveikt var á jólatrjám í Snæfellsbæ síðastliðinn sunnudag. Hér er dansað í kringum jólatréð í Ólafsvík. Ljósm. af.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.