Skessuhorn - 02.12.2015, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 201520
Starfsstöðvar Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands í Borgarnesi,
Grundarfirði, Ólafsvík og í Stykk-
ishólmi hlutu í síðustu viku viður-
kenningu fyrir úrbætur í umhverf-
ismálum þegar þær luku fyrstu
tveimur grænu skrefunum í ríkis-
rekstri. Græn skref í ríkisrekstri
snúast um að efla vistvænan rekst-
ur ríkisins með kerfisbundnum
hætti. Verkefnið byggir á Grænum
skrefum Reykjavíkurborgar en þar
hafa rúmlega 100 vinnustaðir stig-
ið skrefin. Skrefin eru fimm talsins
og er markmið verkefnisins marg-
þætt, meðal annars að gera starfs-
semi ríkisins umhverfisvænni og að
auka vellíðan starfsmanna og bæta
starfsumhverfi þeirra.
Frumkvöðlar í
umhverfismálum
Upphafið á vistvænum rekstri
HVE var fyrir fjórum árum, þeg-
ar umhverfisnefnd HVE var stofn-
uð. Að sögn Hafdísar Bjarnadóttur
formanns nefndarinnar var nefnd-
in stofnuð með það markmið að
vinna að úrbótum í umhverfis-
málum. „Við fórum strax 2012 að
vinna okkar eigin græn skref, unnin
upp úr Grænum skrefum Reykja-
víkurborgar. Við fórum vel áleið-
is í að uppfylla skrefin á öllum átta
starfsstöðvunum og lögðum mik-
inn metnað í verkið. Meðal annars
hannaði Ægir Jóhannsson, umsjón-
armaður fasteigna í Stykkishólmi,
sérmerkingar á sorpflokkunar-
ílát og miða sem minntu starfsfólk
á að slökkva ljósin og fleira,“ segir
Hafdís. Hún bætir því við að með
þessu hafi stofnunin sýnt ákveð-
ið frumkvæði í umhverfismálum.
„Það gerðum við að sjálfsögðu líka
með því að hafa innleitt græn skref
í rekstri áður en Umhverfisstofnun
fór af stað með sitt verkefni.“
Verkefnið sýnilegt
öðrum
Í árslok 2014 fór Umhverfisstofnun
af stað með verkefnið græn skref í
ríkisrekstri og að sögn Hafdísar var
fljótlega tekin ákvörðun um að skrá
HVE til þátttöku. Markmiðið var
að vera fyrsta heilbrigðisstofnun-
in sem skráði sig til leiks og til að
ljúka einhverjum skrefanna. „Þeg-
ar Grænu skrefin í ríkisrekstri voru
komin ákváðum við að fylgja þeim
frekar en okkar eigin, enda mikil
samsvörun. Þarna fáum við aðhald,
hvatningu og viðurkenningu frá
öðrum en okkur sjálfum. Auk þess
er þetta verkefni sýnilegt öðrum og
vonandi getum við orðið fyrirmynd
fyrir aðrar heilbrigðisstofnanir,“
útskýrir hún.
Starfsfólkið á heiðurinn
af árangrinum
Líkt og fyrr segir fengu umrædd-
ar starfsstöðvar HVE nú viður-
kenningu fyrir að hafa lokið fyrstu
tveimur grænu skrefunum af fimm.
Græn skref í ríkisrekstri gera kröfu
um að uppfylla 90% af aðgerðum
sem eiga við hverju sinni, sem gef-
ur stofnunum svigrúm til að aðlaga
skrefin að sínum rekstri. „Við höf-
um unnið ötullega að því að upp-
fylla þau skilyrði sem þarf til að
ljúka skrefunum en það er flókið
að vinna að svona málum á heil-
brigðisstofnunum. Nú hafa starfs-
stöðvarnar í Borgarnesi og á Snæ-
fellsnesi fengið staðfest að hafa
lokið 90% af þeim skilyrðum sem
sett eru. Starfsemi HVE á Hólma-
vík, Hvammstanga og Búðardal fá
sínar viðurkenningar fljótlega og
Akranes vonandi líka.“ Hafdís seg-
ir að nú taki við að uppfylla skilyrði
næstu þriggja skrefa sem eftir eru.
„Markmiðið er sett á að ljúka öllum
fimm skrefunum en það verður erf-
iðara eftir því sem lengra er haldið,
sérstaklega fyrir heilbrigðisstofnun.
En það er mikill meðbyr hjá fram-
kvæmdastjórninni um að standa vel
að verkefninu. Það er gríðarlega
mikil vinna sem liggur að baki og
það þurfa allir að leggjast á eitt og
taka þátt. Þetta fæst ekki bara með
umhverfisnefndinni, það er starfs-
fólk HVE sem er á bakvið þennan
árangur.“ grþ
Heilbrigðisstofnun Vesturlands fær
viðurkenningu í umhverfismálum
Við afhendingu viðurkenningarinnar á starfsstöð HVE í Stykkishólmi. Ljósm. sá.
Þórarinn Steingrímsson sjúkraflutningamaður við viðurkenn-
inguna sem veitt var í Ólafsvík.
Ásgeir Sæmundsson sjúkraflutningamaður og Sólrún Rafnsdóttir
læknaritari í Borgarnesi með viðurkenninguna.
Í Grundarfirði veitti Ásthildur Erlingsdóttir læknaritari viðurkenn-
ingunni móttöku. Hér er hún ásamt Hólmfríði Þorsteinsdóttur frá
Umhverfisstofnun.
Reykholtskórinn efnir til aðventu-
söngs í Reykholtskirkju sunnudag-
inn 6. desember nk. kl. 20. Á tón-
leikunum verður Ágústu Þorvalds-
dóttur frá Skarði minnst, kórfélaga
til margra ára, en hún féll frá fyrr á
árinu langt um aldur fram. Efnis-
skráin er fjölþætt, falleg jólalög og
lofgjörðarvers allt frá 16. og 17. öld
til dagsins í dag. Allir eru velkomnir
og aðgangseyrir er enginn, en söfn-
unarbaukur til styrktar kórstarfinu
verður á staðnum. Að tónleikum
loknum bjóða kórfélagar gestum
upp á samverustund í safnaðarsaln-
um með smákökum og jólaöli.
Stjórnandi kórsins er Viðar Guð-
mundsson, sem jafnframt leikur
undir á píanó, og Kristín Sigurjóns-
dóttir leikur á fiðlu. Einsöngvarar
með kórnum eru Dagný Sigurðar-
dóttir, Inga Vildís Bjarnadóttir, Lára
Kristín Gísladóttir, Snorri Hjálm-
arsson og Þorvaldur Jónsson.
Reykholtskórinn hefur starfað í
meira en 20 ár og voru stofnfélagar
hans úr kórum Reykholts-, Hvann-
eyrar- og Bæjarkirkju, sem þá höfðu
starfað saman í nær áratug. Síðar
bættust í hópinn félagar úr Lund-
arkirkju og á síðasta ári komu kór-
félagar úr Stafholtssókn til liðs við
kórinn.
Fyrsti stjórnandi kórsins var
Bjarni Guðráðsson organisti Reyk-
holtskirkju og undir hans stjórn hef-
ur kórinn farið í þrjú kórferðalög
erlendis. Fyrsta ferðin var til Fær-
eyja, önnur til Noregs og sú þriðja
til Kanada. Annar og núverandi
stjórnandi Reykholtskórsins er Við-
ar Guðmundsson frá Kaðalsstöðum,
nú bóndi í Miðhúsum í Kollafirði á
Ströndum.
- Fréttatilkynning.
Ljósm. Guðlaugur Óskarsson.
Aðventusöngur
Reykholtskórsins
Síðastliðinn föstudag var haldið
upp á fimm ára starfsafmæli Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands í
Búðardal. Staðið hafa yfir fram-
kvæmdir við stöðina þar sem inn-
viðir voru orðnir gamlir og barn
síns tíma. Íbúum umdæmis heilsu-
gæslu Búðardals, Reykhóla og
nærsveita var boðið að koma og
skoða stöðina og sjúkrabíla með
þeim tækjum sem þeir hafa að
geyma. Þar gaf m.a. að líta hjarta-
hnoðtækið Lúkas og nýjan staf-
rænan röntgenlesara. Frá söfnun
og afhendingu þessara gjafa hefur
áður verið sagt frá í Skessuhorni.
Loks mældu sjúkraflutningamenn
blóðþrýsting og súrefnismettun
við góðan orðstýr gesta.
Við þetta tækifæri færðu Holl-
vinasamtök HVE sólarhrings-
blóðþrýstingsmæli ásamt hugbún-
aði til notkunar. Hollvinasamtök-
in hafa fært HVE átta slík tæki, að
andvirði þriggja milljóna króna.
Skemmst er að minnast þess að
Hollvinasamtökin stóðu á síðasta
ári fyrir söfnun til kaupa á nýju
tölvusneiðmyndatæki fyrir HVE
sem var tekið í notkun síðasta vor
á sjúkrahúsinu á Akranesi. Há-
þrýstingur er algengur sjúkdóm-
ur sem getur í mörgum tilvikum
haft lítil sem engin einkenni árum
saman. Því er mjög gagnlegt að
geta mælt blóðþrýsting af og til
yfir einn sólarhring. Þannig fæst
glögg mynd af þrýstingssveiflum
og hvaða hæðum blóðþrýstingur-
inn nær. Góð greining er forsenda
meðferðar við háþrýstingi. Við
þetta tækifæri, í tilefni af alþjóða-
degi sykursjúkra sem haldinn er ár
hvert 14. nóvember, bauð Lions-
klúbbur Búðardals gestum fría
blóðsykrusmælingu sem hjúkrun-
arfræðingar stöðvarinnar fram-
kvæmdu. bae
Haldið upp á fimm ára
afmæli HVE í Búðardal
Steinunn Sigurðardóttir, formaður Hollvinasamtaka HVE, afhenti Þórði Ingólfs-
syni yfirlækni og Þórunni Einarsdóttur yfirhjúkrunarfræðingi blóðþrýstingsmæli
um leið og Sæmundur Kristjánsson afhenti Jóhanni Birni Arngrímssyni svæðisfull-
trúa Búðardals og Hómavíkur annan blóðþrýstingsmæli.