Skessuhorn - 02.12.2015, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 201526
Lokahóf útskriftarnema í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands var hald-
ið síðastliðinn fimmtudag. Nem-
endur mættu í skólann klæddir sem
teiknimyndapersónurnar Lilo og
Stitch og byrjuðu daginn á að bjóða
starfsfólki skólans til morgunverð-
ar. Í síðasta tíma fyrir hádegi höfðu
þeir skemmtun á sal skólans fyrir
skólafélaga og starfsmenn. Brugðið
var út af vananum og í stað þess að
sýna leikrit höfðu útskriftarnemar
gert myndband, þar sem þeir gerðu
bæði grín af sjálfum sér og kennur-
um skólans. Myndbandið var nokk-
uð gróft, með sótsvörtum húmor
og vakti mikla lukku meðal nem-
enda. Eftir hádegi héldu útskrift-
arnemarnir í óvissuferð og gleð-
skapnum lauk um kvöldið á jóla-
balli NFFA á Gamla Kaupfélag-
inu þar sem Úlfur Úlfur sá um að
skemmta liðinu ásamt leynigesti og
DJ NóraNightelf.
grþ
Dimission
á Akranesi
Stúlkurnar voru klæddar sem geimveran Stitch. Ljósm. Valey Benediktsdóttir. Líkt og hefð er fyrir var morgunverðurinn snæddur í skólanum ásamt kennurum.
Ljósm. Valey Benediktsdóttir.
Skemmtunin hófst á því að nemendur tóku velvalin dansspor uppi á sviði. Brugðið á leik með nokkrum kennurum.
Fjallabræður eru einn þekktasti
og vinsælasti karlakór á landinu.
Þeir hafa komið víða fram og gef-
ið út plötur sem hafa selst vel. Nýj-
asta platan heitir Hosiló og kom út á
dögunum. Til að fagna því var boð-
að til útgáfutónleika í Háskólabíói á
föstudagskvöldið. Þar kom kórinn
fram ásamt hljómsveit og Magnúsi
Þór Sigmundssyni söngvara og tón-
skáldi. Eftir hlé lék síðan lúðrasveit
Vestmannaeyja með kórnum. Upp-
selt var á útgáfutónleikana, salur Há-
skólabíós fullsetinn þar sem kórinn
og gestir fóru á kostum við mikinn
fögnuð áheyrenda.
Einn sjötti af
Vesturlandi
Fjallabræður skipa 60 hressir karlar.
Grunnhugmyndin að baki stofnun
kórsins var upphaflega sú að í honum
skyldu syngja karlar sem ættir eiga
að rekja til Vestfjarða. Það hefur aft-
ur leitt til þess að nálega tíu kórfélag-
ar, eða einn sjötti hluti kórsins, eru af
Vesturlandi. Þeir búa þar í dag eða
eru fæddir og uppaldir í landshlutan-
um allt frá Akranesi vestur á Snæfells-
nes. Flestir þeirra koma þó af Akra-
nesi. „Já, það er ótrúlega hátt hlutfall
af Skagamönnum í Fjallabræðrum.
Skýringin liggur í því að á Akranesi
er svo sterk tenging við Vestfirði. Þar
býr fjöldinn allur af gömlum Vestfirð-
ingum og afkomendum þeirra. Þann-
ig er það til komið að Skagamenn
standa sterkt meðal Fjallabræðra,“
segir Jónas Björgvinsson sem sjálfur
hefur sungið með kórnum í sjö ár.
Halda til í Háskólabíói
Jónas er sjálfur fæddur og uppalinn á
Akranesi. Hann heldur enn sterkum
tengslum við heimabæinn þó hann sé
nú búsettur á höfuðborgarsvæðinu,
enda á hann fjölda ættingja á Skag-
anum. Hann segir að Skagamennirn-
ir innan Fjallabræðra standi þétt sam-
an. „Stundum höfum við kallað okk-
ur Akrafjallsbræður. Við viljum stofna
sér-rödd innan kórsins. Þannig væru
það baritónar, tenórar og bassar og
svo Akrafjallabræður,“ segir hann og
hlær við. „Það er æðislega gaman að
vera í kórnum. Félagsskapurinn er frá-
bær og starfið mjög líflegt. Við æfum
einu sinni í viku, svona tvo tíma í
senn. Kórinn er með fasta æfingatíma
hér í Háskólabíói. Við erum þá annað
hvort á sviðinu eða í kjallaranum und-
ir því. Svo er stúdíó hér. Þetta er afar
góð aðstaða. Það skapaðist pláss fyr-
ir okkur þegar Sinfóníuhljómsveitin
flutti í Hörpuna. Háskólabíó er okk-
ar heimavöllur, þetta getur ekki verið
flottara,“ segir Jónas Björgvinsson og
bætir við: „Nýja platan okkar Hosiló
er alveg æðisleg og fæst í öllum betri
verslunum um allt land.“
Fjallabræður ætla að vera í Ey-
mundsson á Akranesi fimmtudaginn
3. desember kl. 20 og taka þar lagið.
mþh
Karlakórinn Fjallabræður vel settur
með Vestlendinga
Nokkrir Vestlendinganna sem skipa Fjallabræður kampakátir í Háskólabíói að
loknum útgáfutónleikum á föstudagskvöldið. Fremri röð frá vinstri: Jóhann Haf-
steinn Hafsteinsson, Júlíus Björgvinsson, Sigurður Óli Ólason á Lambastöðum á
Mýrum. Aftari röð frá vinstri: Björn Þorri Viktorsson, Guðmundur Jón Hafsteinsson
og Sveinbjörn Hafsteinsson. Á myndina vantar þá Ólaf Pál Gunnarsson og Sigurð
Pál Jónsson sem gátu ekki verið með þetta kvöld vegna anna á öðrum vígstöðvum.
Mikið var um dýrðir í Háskólabíói á föstudagskvöld þegar Fjallabræður héldu
útáfutónleika sína með gestum.
Skagamaðurinn Sveinbjörn Hafsteinsson
syngur einsöng í mörgum lögum með
félögum sínum í Fjallabræðrum.
Það var líf og fjör í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga síðastliðinn föstudag.
Þá höfðu væntanlegir útskriftar-
nemar brugðið sér í líki geim-
verunnar Stitch úr kvikmyndinni
Lilo og Stitch. Nemendur fóru
með ljóð um kennarana og skor-
uðu svo þeirra á hólm í danskeppni.
Að endingu var svo öllum boðið í
vöffluveislu á kennarastofunni eins
og hefð er fyrir. Um kvöldið var
jólaskemmtun NFSN haldin í sal
FSN þar sem boðið var upp á dýr-
indis jólamat og skemmtiatriði. Því
næst var haldinn stórdansleikur í
Samkomuhúsi Grundarfjarðar þar
sem þeir DJ Óli Geir og DJ Musc-
leboy héldu uppi stuðinu. Líkt og
meðfylgjandi myndir sína skemmti
fólk sér konunglega á dimission út-
skriftarnema í fjölbrautaskólanum.
grþ / Ljósm. tfk.
Dimmiterað í FSN
Útskriftarnemar voru klæddir sem Disney persónan Stitch.
Nemendur og starfsfólk skólans skemmtu sér konunglega á danskeppni út-
skriftarnema og kennara.