Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Page 1

Skessuhorn - 09.12.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 50. tbl. 18. árg. 9. desember 2015 - kr. 750 í lausasölu Skemmtilegt spilasett fylgir þinni peningagjöf Þegar lagðar eru inn �.��� kr. eða meira á Framtíðar- reikning fylgir skemmtilegt spilasett með sex spilum. Tilvalið í jólapakkann. Kynntu þér málið í næsta útibúi eða á arionbanki.is/spariland Coldfri munnúði Fluconazol ratiopharm - við kvefi og hálsbólgu Eru bólgur og verkir að hrjá þig? Landnámssetur Íslands, Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi Frá Landnámssetri Jólalegt hádegi 10. og 18. desember Aðventutilboð og jólatónleikar 10. desember Svavar Knútur og Kristjana Bræðurnir Ævar vísindamaður og Guðni lesa upp úr bókum sínum kl. 18:00 þriðjudaginn 15. desember Þorláksmessuskata 23. des kl. 12:00 Pantið fyrir 18. desember Munið gjafakortin okkar SK ES SU H O R N 2 01 5 Rafræn áskrift Ný áskriftarleið Pantaðu núna Milli desemberlægðanna stóð Framfarafélag Borgfirðinga fyrir jólamarkaði í Nesi síðastliðinn sunnudag. Þar var fjórtán stiga frost þann daginn og því þótti gestum gott að ylja sér á heitu ketilkaffi. Þær Kristín Eir Hauksdóttir og Adda Karen Harðardóttir hituðu sér hins vegar sykurpúða yfir eldinum. Ljósm. mm. Mikill viðbúnaður björgunar- og við- bragðsaðila var síðastliðinn mánu- dag vegna óvenju djúprar lægð- ar sem nálgaðist þá landið úr suðri. Á sama tíma var háþrýstisvæði yfir Grænlandi sem magnaði upp áhrifin. Því var jafnvel spáð að vindstyrkur- inn yrði sá mesti í aldarfjórðung og vitnað þá til óveðurs 1991 sem kennt er við Engihjalla í Kópavogi þeg- ar bílar tókust á loft og hús splundr- uðust. Lægðin gekk yfir landið síð- degis og um kvöldið. Fram á nótt- ina var slæmt veður um allt land, en þó ekki eins foráttuvitlaust og óttast var, nema þá helst á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Almannavarn- ir lýstu yfir óvissustigi og virkjuðu samhæfingarstöðina í Skógarhlíð. Þegar mest var voru um 700 björg- unar- og viðbragðsaðilar að störfum vítt og breitt um landið. Sett var upp áætlun um lokun vega og henni fylgt eftir. Slíkur viðbúnaður var tvímæla- laust til bóta og hefur vafalítið kom- ið í veg fyrir að t.d. ferðamenn færu sér að voða. Skólum og vinnustöðum var víða lokað snemma á mánudag og fólk hafði hægt um sig heima fyrir. Á Vesturlandi varð óveður um allt, en þó ekki hamfaraveður eins og þau gerast verst. Öllum stofnvegum var lokað þegar komið var undir kvöld og því engin bílaumferð. Einna verst var veðrið á Akranesi um tíma á mánudagskvöldið og tilkynnt um ell- efu tjón eða óhöpp til lögreglu. Stórt hjólhýsi tókst á loft við Smiðjuvelli og skemmdi tvo bíla við bílasöluna. Þá losnaði þak á Sementsverksmiðj- unni, rúður brotnuðu í húsum, þakk- læðning losnaði og hluti veggklæðn- ingar á íbúðarhúsi. Björgunarfélag Akraness sinnti útköllum og kom lögreglu til aðstoðar. Í uppsveitum Borgarfjarðar gerði slæmt veður um nóttina þegar vindur snerist úr norð- vestlægri átt í sunnanstæðari undir morgun. Þakplötur fuku af útihús- um á nokkrum bæjum, m.a. í Reyk- holtsdal og Hvítársíðu og nokkrir rafmagnsstaurar brotnuðu. Rafmagnstruflanir Talsverðar rafmagnstruflanir urðu um kvöldið og fram á þriðjudag víðs- vegar um landið. Fóru vinnuflokkar Rarik á Vesturlandi í nokkur útköll. Rafmagn fór t.d. af Hvalfjarðarlínu um kl. 21:15 um kvöldið og komst rafmagn á aftur eftir miðnætti á lín- unni inn að Hvalstöðinni. Rafmagn fór einnig af í Grundarfirði í skamma stund á mánudagskvöldið vegna óró- leika í flutningskerfinu. Um kvöldið fór rafmagn af Mýralínu frá Vatns- hömrum og tókst að koma rafmagni á alla bæi sem tengdir eru henni klukkan 10:40 um morguninn. Þá urðu rafmagnstruflanir m.a. á Skóg- arströnd í Dölum og í Reykholtsdal í Borgarfirði. Nánar er fjallað um áhrif óveðursins í blaðinu í dag sem og óveðurs sem gerði undir síðustu helgi. Gekk eins og vel smurð vél Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri Vesturlands kvaðst í gær ánægður með hvernig fólk hafi brugðist við í aðdraganda óveðursins og með- an á því stóð. „Það gekk allt vel og ákvörðun Ríkislögreglustjóra að lýsa yfir óvissustigi á öllu landinu var skynsamleg. Það var ákveðið að loka vegum og gerð um það sérstök áætl- un þannig að vegfarendur gætu hag- að ferðum sínum í samræmi við það. Því var enginn á ferð á fjall- og þjóð- vegum þegar versta veðrið gekk yfir. Þá þurfa björgunarsveitarmenn held- ur ekki að glíma við vegfarendur og gátu einbeitt sér að almennum björg- unarstörfum. Fólk fékk í góðan tíma að vita hvað stæði til.“ Úlfar segir að veðurspáin hafi að flestu leyti gengið eftir og reynslan af þessu óveðri styrki björgunar- og viðbragðskerfið í heild. „Almannavarnakerfið var að virka. Nú höfum við uppsafnaða reynslu af viðbrögðum við jarðskjálftum og eldgosum á Suðurlandi og finnum að við Íslendingar erum að standa okk- ur vel þegar náttúruhamfarir verða.“ Úlfar segir að yfirstjórn lögreglunnar á Vesturlandi muni á næstunni funda með viðbragðsaðilum í landshlutan- um og fara yfir liðna daga. „Reynsl- an í þessu veðri og áður segir okk- ur að við höfum gríðarlega öflugar björgunarsveitir á Vesturlandi. Mér sýnist á öllu að allt hafi gengið vel og samskiptin voru góð. Ég vil því koma kærum þökkum til allra viðbragðs- aðila fyrir vel unnið störf,“ segir Úlf- ar Lúðvíksson lögreglustjóri. Að endingu bendir Úlfar á að fólk hugi að eigum sínum, til dæmis sum- arbústöðum, þegar allt er um garð gengið og orðið ferðafært. mm Óveðrið olli minna tjóni en óttast var Ferðamálasamtök Vesturlands héldu árlega uppskeruhátíð sína í liðinni viku. Komið var saman að morgni og dagurinn nýttur til að miðla því sem fólk er að fást við, heimsækja fyrirtæki og slíkt. Um kvöldið var svo blásið til veislu þar sem viður- kenningar voru veittar. Höfðinginn er verðlaunagripur sem veittur er þeim sem þykja hafa skarað fram úr á árinu. Að þessu sinni kom hann í hlut hjónanna Bergþórs Kristleifssonar og Hrefnu Sigmarsdóttur sem eiga og reka Ferðaþjónustuna Húsafelli. Hér eru þau ásamt sonum þeirra, þeim Unnari, Rúnari og Arnari. Þarna eru fjölskyldan stödd í anddyrinu á hinu nýja og glæsilega Hótel Húsafelli. Lesa má nánar um uppskeru- hátíðina á bls. 12 í Skessuhorni í dag. Ljósm. mm. Höfðinginn í Húsafell

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.