Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Qupperneq 2

Skessuhorn - 09.12.2015, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 20152 Amnesty International hefur í 50 ár barist gegn mannréttindabrotum með pennann að vopni. „Bréf til bjargar lífi“ nefnist verkefni þar sem hundruð þúsunda manna setja nafn sitt við milljónir bréfa sem þrýsta á um- bætur hjá stjórnvöldum sem brjóta á mann- réttindum þegna sinna. Vestlendingar geta enn tekið þátt í bréfamaraþoni Amnesty, í Borgarnesi og Akranesi, eins og lesa má um í blaðinu í dag. Á morgun spáir norðlægri eða breytilegri átt, 3-8 m/s og hvassast á norðanverðum Vestfjörðum. Él verða einkum við Norður- strönd landsins, en að mestu þurrt á Suð- ur- og Vesturlandi. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til sveita. Norðlæg átt á föstudag, 8-15 m/s og snjókoma eða él. Úrkomulítið syðra. Hægir og dregur úr úrkomu með kvöldinu. Hiti breytist lítið. Suðaustlæg eða breyti- leg átt á laugardag. Bjart veður en dálítil él sunnan til. Áfram kalt í veðri. Austlæg átt, úr- komulítið og fremur kalt á sunnudag. Snjó- koma austast um kvöldið. Á mánudag er út- lit fyrir breytilega átt með stöku éljum og frosti um landið allt. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hvaða fylgihlut þarf góður snjókarl helst að hafa?“ Langflestir, eða 41,48% svöruðu „gul- rót“ en næstflestir, 18,97% sögðu „kolamola eða stein“. „Trefil“ sögðu 13,5% og „pípu- hatt“ sögðu 11,25%. 6,11% sögðu „frostlög“ æskilegan fylgihlut snjókarls, 2,57% sögðu „pípu“ og 2,25% „húfu“. „Vatnsfötu“ sögðu 1,61% og „annað“ sögðu 2,25%. Í næstu viku er spurt: Varðst þú fyrir eignatjóni í óveðrinu sem gekk yfir landið í síðustu viku? Skagamaðurinn Inga Elín Cryer stórbætti á dögunum Íslandsmet sitt í 200m flugsundi á Evrópumótinu í 25m laug sem fram fór í Ísrael. Inga Elín er Vestlendingur vikunnar. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Jólablað í næstu viku SKESSUHORN: Í næstu viku, miðvikudaginn 16. desember, kem- ur hnausþykkt Jólablað Skessu- horns út. Síðasta blað ársins kemur hins vegar út miðviku- daginn 30. desember og fyrsta blað nýs árs á þrettándanum 6. janúar. Vegna umfangs Jóla- blaðsins viljum við á ritstjórn og í markaðsdeild Skessuhorn biðja lesendur og auglýsend- ur að vera tímanlega á ferðinni með pantanir og efni til birt- ingar. Það þarf að berast í síð- asta lagi fyrir lok dags föstudag- inn 11. desember. Auglýsingar sendist á emilia@skessuhorn.is og efni á skessuhorn@skessu- horn.is. Svo er náttúrlega sím- inn alltaf góður, en númerið í honum er 433-5500. -mm Leiðrétt föðurnafn Í síðasta tölublaði var sagt frá því að systkinin Eyþór og El- ínborg Þórðarbörn fengu rós vikunnar í Vetrar-Kærleiknum hjá Blómasetrinu Kaffi kyrrð í Borgarnesi. Í fréttinni voru þau ranglega feðruð og sögð Har- aldarbörn. Leiðréttist það hér með, þau eru Þórðarbörn, og beðist velvirðingar á þessu. –mm Skólastjóri Auðarskóla lætur af störfum DALIR: Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri Auðarskóla í Dala- byggð hefur sagt upp starfi sínu. Hann mun taka við nýju starfi sunnanlands í ársbyrjun. Á vef Dalabyggðar kemur fram að staða skólastjóra Auðarskóla verði auglýst fljótlega. Þor- kell Cýrusson staðgengill skóla- stjóra mun gegna starfinu þar til nýr skólastjóri hefur verið ráð- inn. Eyjólfur Sturlaugsson hef- ur verið skólastjóri Auðarskóla frá stofnun hans árið 2009. Það ár voru grunnskólarnir í Dala- byggð, leikskólinn og tónlistar- skólinn sameinaðir í eina stofn- un. Fræðslunefnd Dalabyggð- ar þakkaði Eyjólfi á fundi sínum 3. desember sl. fyrir samstarf- ið og óskar honum farsældar á nýjum vettvangi. Á sama fundi kom fram að erfiðlega gangi að manna leikskólann fagfólki. Mannabreytingar verða um ára- mót og lítið er um umsóknir. Einnig mun erfið staða uppi við Auðarskóla vegna forfalla sem verða vegna útkalla starfsmanna skólans sem starfa einnig sem sjúkraflutningamenn. –mþh Aðsókn í Ísgöngin í Langjökli eru langt umfram væntingar og áætl- anir fyrirtækisins Into the Gla- cier ehf. Göngin voru opnuð fyrir umferð gesta 1. júní á þessu ári og gerðu áætlanir ráð fyrir að 15 þús- und gestir kæmu í þau á þessum fyrstu sjö mánuðum. Göngin hafa hins vegar reynst kærkomin viðbót í afþreyingarflóru vaxandi atvinnu- greinar sem ferðaþjónustan er og stefnir nú í að 23-24 þúsund gest- ir gangi inn í jökulinn og kynni sér leyndardóma hans fyrir árslok. Sigurður Skarphéðinsson fram- kvæmdastjóri Into the Glacier seg- ir í samtali við Skessuhorn að eftir- spurn eftir því að komast í jökulinn hafi verið mun meiri en spár gerðu ráð fyrir. Þannig hafi verið fjölg- að dögum sem farið er með gesti á jökulinn og nú sé farið nánast alla daga þegar færð og veður leyfir. Að sjálfsögðu geti veður gerst válynd og til hamlað því að hægt sé að aka með gesti upp í 1260 metra hæð á jökulinn. Mjög þétt er bókað í ferð- ir á næstu vikum og uppselt suma daga um hátíðirnar enda útlit fyr- ir að margir ferðamenn dvelji hér á landi þá. Þó verður lokað í ísgöngin hátíðisdagana 23. til 26. desember og aftur á gamlárs- og nýársdag. Sigurður segir að nú starfi um 30 manns hjá fyrirtækinu, þar af 20 leiðsögumenn og bílstjórar. Fleiri starfsmenn eru í þjálfun og gert ráð fyrir að þeim þurfi að fjölga, eink- um næsta sumar. „Þá er gaman að segja frá því að til að svara eftir- spurn og auka rekstraröryggið höf- um við keypt þriðja jöklatrukk- inn í flotann okkar. Þetta er sam- bærilegur bíll og hinir tveir en það verður smíðað á þennan hús sem rúmar 55 farþega,“ segir Sigurður. Frá 15. október síðastliðnum hefj- ast allar ferðir í ísgöngin frá Húsa- felli þar sem Into the Glacier rekur bækistöðvar. Aðspurður segir Sig- urður að áætlanir geri ráð fyrir að um 40 þúsund gestir komi í ísgöng- in á næsta ári. „Stóra breytingin er náttúrlega sú að við stefnum á að fara á jökulinn alla daga vikunnar þegar er fært og veður leyfir.“ mm Aðsókn í ísgöngin sextíu prósentum meiri en áætlað var Eftir að snjóaði á fullveldisdaginn reyndist gott að hafa gps punkt til taks svo hægt væri að staðsetja gangnam- unnan rétt og moka tröppur niður. Ljósm. Into the Glacier á Facebook. Útgerðarfyrirtækið Melnes í Rifi hefur fest kaup á línubátnum Hálf- dáni Einarssyni ÍS. Báturinn á að koma í stað línubátsins Særifs SH sem Melnes hefur gert út undan- farin ár bæði á hefðbundnar línu- veiðar og makrílveiðar. Engar afla- heimildir fylgdu með í kaupun- um en Hálfdán Einarsson hefur verið gerður út frá Bolungarvík. Skipstjóri á bátnum verður Arn- ar Laxdal Jóhannsson. Undanfarin ár hefur hann verið með Tryggva Eðvarðs SH. Þess má geta að rætt verður við Arnar í Skessuhorni í næstu viku. mþh Nýr bátur keyptur í Rif Hálfdán Einarsson ÍS hefur verið gerður út af krafti frá Bolungarvík en fer nú til Rifs. Vinnuþjarkurinn Særif SH hefur skilað góðum afla á land undanfarin ár. Hér kemur báturinn vel hlaðinn til löndunar á Arnarstapa. Sölumaður sem hef- ur að atvinnu sinni að ferðast um land- ið hringdi á rit- stjórn Skessuhorns í byrjun vikunnar. Þá var spáð afar slæmu veðri. Sagðist mann- inum ofbjóða hvern- ig sumir eigendur og umráðamenn hrossa á Vesturlandi fara með skepnur í þeirra umsjón. „Ég hef fylgst með aðbún- aði og fóðrun úti- gangshrossa á ferð- um mínum um land- ið. Enn og aftur sýn- ist mér Vesturland skera sig úr hvað það snertir að hross eru í haglitlu landi og án nokkurs skjóls. Ég veit ekki betur en samkvæmt lögum og reglugerðum um fóðrun og aðbúnað hrossa þá sé eigendum þeirra skylt að sjá til þess eftir 1. nóvember ár hvert að hrossin komist í öruggt skjól, hvort sem það er manngert eða af nátt- úrunnar hendi. Á nokkrum stöð- um á Vesturlandi er þetta augljós- lega í miklu ólagi og mér virðist sem algengt sé að sama vanhirðan sé staðbundin við sömu jarðir eða bithaga ár eftir ár. Eftirlitskerfið er engan veginn að virka heldur,“ sagði maðurinn sem kýs að nafn hans komi ekki fram vegna ábend- ingarinnar. Í 29. gr. laga um velferð dýra segir m.a. um aðbúnað útigangs- hrossa: „Dýr skulu hafa skjól fyrir veðrum í samræmi við þarfir sínar þegar þau eru úti að staðaldri. Að vetri til skal sjá til þess að á staðn- um sé húsaskjól eða annað öruggt og hentugt skjól fyrir öllum veðr- um.“ Samkvæmt lögum er það Matvælastofnun sem hefur með eftirlit með velferð dýra að gera. Í tilkynningu á vef Mast á mánudag- inn sagði m.a.: „Vegna aðvörunar Veðurstofunnar um fárviðri seinni hluta dags vill Matvælastofnun benda öllum dýraeigendum á að huga að dýrum sínum í óveðrinu. Dýr á útigangi skal koma í hús ef mögulegt er, eða að öðrum kosti í skjól eftir fremsta megni. Færa þarf dýr á örugg landsvæði ef ein- hver hætta er á að þau geti hrak- ist undan óveðrinu fram af klettum eða í ár, vötn, sjó eða aðra hættu. Gæta þarf sérstaklega að því að fjarlægja eða festa alla lausa hluti í kringum dýrin, því fljúgandi hlut- ir geta bæði valdið ofsahræðslu og beinum skaða. Um leið og veður lægir og talið er óhætt að vera á ferli eru dýraeig- endur hvattir til að huga eins fljótt og auðið er að dýrum sínum,“ seg- ir í tilkynningu Matvælastofnunar. mm Skylt samkvæmt lögum að útigangur hafi skjól

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.