Skessuhorn - 09.12.2015, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 20154
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Brjálað í
beinni
Fyrri hlutann af pistli mínum þessa vikuna skrifa ég þegar einungis örfá
korter eru í að skelli á landinu einhver dýpsta lægð um áratugaskeið. Því
er spáð að vindur fari upp í 60 metra á sekúndu enda lægðin með þeim
dýpstu sem yfirhöfuð myndast hér á norðlægum slóðum. Ég ákvað að
skrifa fyrri hlutann í dag, en síðari hlutann á þriðjudegi, þegar veðrið átti
samkvæmt spánni að vera gengið niður. Akkúrat núna laust fyrir klukkan
18 að kvöldi mánudags kafa ég í reynslubankann. Ég er nefnilega nógu
gamall til að muna eftir ofsaveðri sem gekk yfir landið veturinn 1981. Þá
var ég nemandi í Héraðsskólanum í Reykholti og nógu ungur til að haga
mér eins og barn, enda hálfgert barn. Við vorum einhverjir sem vorum
að leika hetjur, líklega til að ganga í augun á stelpunum, og fórum milli
húsa þarna um kvöldið þrátt fyrir að búið væri að banna okkur að vera
nema skjólmegin í húsi heimavistarinnar, innandyra þar að segja. Slíkan
ofurhetjuleik hef ég ekki að gamni mínu leikið síðan. Þarna í húsasund-
inu tókst ég á loft í bókstaflegri merkingu eins og Superman. Þeir sem
hafa séð líkamsvöxt minn ættu að geta gert sér í hugarlund ofsarokið sem
þurfti til að hefja slíkan líkama á flug. Tóks mér að grípa um ljósastaur
sem þar stóð í húsasundi og uppskar við það marinn handlegg og dass af
brostnu stolti. Ég og félagar mínir náðum að skríða í húsaskjól, en tæpt
stóð það.
Hér sit ég í lækkandi loftþrýstingi og rifja þetta upp. Helsti munurinn
nú og fyrir 35 árum er sá að veðrinu hefur nú verið spáð alveg stjörnu-
vitlausu í þrjá daga. Veðurfræðingar dagsins í dag hafa bæði þekkingu og
tækni til að gera betur en hægt var að gera árið 1981. Það ber að þakka og
ekki síður öllum þeim viðbragðsaðilum og starfsmönnum hins opinbera
sem hafa það hlutverk að koma vitinu fyrir landsmenn. Í tilfelli hamfara-
veðra er nefnilega öruggast að eiga sterkustu lýsingarorðin í bókinni eftir
til að freista þess að fólk taki mark á varnaðarorðum sem snúa að velferð
þess sjálfs. Nú ætla ég hins vegar að venda kvæði mínu í kross, slökkva á
tölvunni og drífa mig heim því ég er farinn að heyra meira í veðrinu en
mér finnst þægilegt. Síðari hlutinn verður því skrifaður á morgun, þriðju-
dag, ef búið verður að fresta heimsendi.
________________________
Jæja. Hér er ég, á lífi og meira að segja við svipað góða heilsu og í gær.
Þrátt fyrir að veðrið hafi verið fremur leiðinlegt í gærkvöldi og nótt, virð-
ast allir landsmenn hafa lifað þetta af, alla vega er ekki hægt að kenna
veðrinu um ef öðruvísi hefur farið. Hrós dagsins ætla ég að gefa þeim
sem vaka yfir velferð okkar þegar hamfarir ganga yfir. Þeir stóðust sitt
próf með sóma. Mér fannst faglega hafa verið staðið að því að kynna fyr-
irhugaða lokun þjóðvega, lýsa yfir hættustigi, innkalla börn tímanlega úr
skólum og loka þeim fyrirtækjum sem ekki þurftu lífsnauðsynlega að vera
opin eftir að veðurhamurinn hófst. Mér finnst allt í lagi að haft sé vit fyr-
ir landsmönnum þegar brýn ástæða er til. Á liðnum sólarhring gegndu
fjölmiðlar veigamiklu hlutverki í koma boðum áleiðis. Björgunarsveitirn-
ar og lögregla stóðu vaktina og sinntu því sem um var beðið þegar fólk
þurfti aðstoð. Meira að segja ég þurfti að hringja í Neyðarlínuna því hluti
af klæðningu hússins sem ég bý í ákvað að segja skilið við húsið, kveðja
og fljúga á haf út, hraðar en krían í ætisleit. Mikið voru þau snögg ung-
mennin og hetjurnar allar í björgunarsveitinni sem snarlega komu í veg
fyrir að við eigendur hússins þyrftum að sjá á eftir restinni af einangrun
og klæðningu hússins svona fyrri hluta vetrar. Þau verða venju fremur létt
sporin í flugeldasöluna daginn fyrir gamlársdag til að kaupa skammtinn af
blysum af þeim og styrkja um leið starf þeirra. Takk allir þeir sem höfðu
vit fyrir okkur Íslendingum, ekki veitir af.
Magnús Magnússon.
Stórt Trailer-hjólhýsi hófst á loft í
óveðrinu á mánudagskvöld þar sem
það stóð á plani við bílasöluna Bí-
lás við Smiðjuvelli á Akranesi. „Það
hófst á loft og skemmdi tvo bíla. Ann-
ar þeirra, sem er nýlegur bílaleigu-
bíll af Suzuki Swift-gerð, er reyndar
ónýtur eftir þetta. Hjólhýsið sem er
stórt og þungt lenti að hluta til ofan
á honum. Þetta hjólhýsi er reynd-
ar svo stórt að það hvarflaði ekki að
okkur að það færi af stað. Það stóð
þarna á stæðinu með lappirnar niðri.
Annar bíll, Land Cruiser-jeppi sem
stóð þarna við hliðina varð svo fyr-
ir skemmdum af völdum þess,“ seg-
ir Ólafur Óskarsson hjá Bílási. „Við
náðum svo að fjarlægja fleiri bíla og
koma þeim í öruggt skjól. Björgun-
arsveitarmenn komu síðan og stóðu
sig mjög vel við að tryggja að hjól-
hýsið færi ekkert lengra með því að
binda það við gröfu sem var þarna.
Þetta hjólhýsi er ónýtt,“ sagði Ólaf-
ur. mþh
Hjólhýsi og bíll eyðilögðust
Hjólhýsið skemmdi bíl og eyðilagði annan. Það er þarna á hliðinni á bílastæðinu
við Bílás. Ljósm. mm
Á dögunum tóku þrjár fimleika-
stúlkur af Akranesi, þær Sólveig Erla
Þorsteinsdóttir, Sóley Brynjarsdótt-
ir og Valdís Eva Ingadóttir, þátt í úr-
taksæfingu fyrir unglingalandslið Ís-
lands skipað keppendum fæddum
árið 1999 og yngri. Stúlkurnar, sem
æfa allar með Fimleikafélagi Akra-
ness, stóðu sig með vel á æfingunum
og voru sjálfum sér og félagi sínu til
sóma, segir á Facebook síðu FIMA.
kgk
Þrjár fimleikastúlkur á landsliðsæfingu
Fimleikastúlkurnar Sólveig Brynjarsdóttir, Valdís Eva Ingadóttir og Valdís Eva
Ingadóttir. Mynd. FIMA.
Síðdegis á föstudag og fram á laug-
ardag gekk venju fremur kröpp lægð
yfir landið. Verst var veðrið á suð-
austanverðu landinu og í Öræfa-
sveitinni var blindhríð samhliða því
að vindur fór í 56 metra á sekúndu í
hviðum. Lægðin gekk svo yfir land-
ið og var mjög víða um landið ekkert
ferðaveður. Í flestum landshlutum
gerði vonskuveður og vegir meira
og minna ófærir eða lokaðir enda
mikill snjór og hráefni í byl. Á Kjal-
arnesi, Holtavörðuheiði, Bröttu-
brekku og fjallvegum á Snæfell-
nesi varð ófært á föstudag og fram
á laugardag. Á föstudag þurfti um
tíma að loka veginum fyrir Hafnar-
fjall sökum hálku og hvassviðris og
einhverjir bílar fóru útaf. Björgun-
arsveitir aðstoðuðu við að stýra um-
ferð. Ekki er vitað um teljandi tjón
og alvarleg óhöpp í þessu veðri enda
hafði vandlega verið varað við því
og fólk undir það búið. Fjölmörgum
samkomum sem vera áttu á föstudag
og laugardag var frestað.
mm
Óveður gekk yfir landið
Á veginum við Kúludalsá við Hvalfjörð fauk þessi bíll útaf í hvassviðri og hálku.
Engan sakaði. Ljósm. mþh.
Mánudaginn 4. janúar á nýju ári
stendur Leik- og grunnskóli Hval-
fjarðarsveitar fyrir nýstárlegri ráð-
stefnu. Yfirskrift hennar er „Spjald-
tölvur í skólastarfi - Staðan í dag.
Hvað svo?“ Haustið 2013 innleiddi
Heiðarskóli notkun spjaldtölva, svo-
kallaðra iPada, við kennslu barna og
unglinga. Nemendur við unglinga-
deild skólans fengu slíkar tölvur af-
hentar haustið 2013. Síðan fengu 1.
– 7. bekkir slíkar tölvur í hendur í
janúarbyrjun 2014. Þessi tölvunotk-
un við kennslu hefur vakið mikla at-
hygli. Meðal annars komu sjónvarps-
menn frá Suður-Kóreu og heimsóttu
Heiðarskóla á síðasta ári til að taka
upp myndefni í fræðsluþátt sem þeir
voru að gera um innleiðingu nýrrar
kennslutækni.
Á ráðstefnunni 4. janúar verður
greint frá þeirri reynslu sem kenn-
arar og nemendur við Heiðarskóla
hafa öðlast við notkun spjaldtölvanna
í skólastarfinu. Einnig mun Ras-
mus Borch kennari og námsráðgjafi
frá Danmörku flytja erindi. Hann er
upphafsmaður að fyrsta spjaldtölvu-
verkefninu í Evrópu sem hófst fyr-
ir fimm árum síðan. Þar fengu all-
ir nemendur í sveitarfélaginu Odder
í Danmörku iPad spjaldtölvur til af-
nota í sínu námi. Ingvi Hrannar Óm-
arsson kennsluráðgjafi í Skagafirði
mun einnig flytja fyrirlestur þar sem
hann greinir frá reynslu Skagfirðinga
af spjaldtölvuvæðingu í skólastarfinu.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna
má nálgast á heimasíðu Hvalfjarðar-
sveitar.
mþh
Halda ráðstefnu um
spjaldtölvunotkun við kennslu
Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit.