Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Page 9

Skessuhorn - 09.12.2015, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2015 9 Opið í desember Mánudaga til fimmtudaga kl. 11.00 - 23.00 Föstudaga og laugardaga kl. 11.00 - 01.00 Sunnudaga kl. 12.00 - 22.00 VEITINGAHÚS • KAFFIBAR Laugardaginn 26. des. (annan í jólum) Dansleikur frá miðnætti Hljómsveitin SPAN leikur fyrir dansi Gamlársdag er lokað til kl. 01 DJ HEMLEX halda uppi fjörinu frá kl. 01 Lokað 1. og 2. janúar 2016 RúBen • Grundargötu 59, Grundarfirði • Sími 438-6446 SK ES SU H O R N 2 01 5 Þjóðbraut 1 • Akranesi • 431-3333 Kíktu á úrvalið á www.gjafahus.is Tilvalin jólagjöf Frábæru inniskórnir frá 1224. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 15. desember kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Sjálfstæðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn • 12. desember kl. 10.30. Fr• jálsir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 14. desember kl. 20.00. Bj• ört framtíð í Vitakaffi, Stillholti 16-18, mánudaginn 14. desember kl. 20.00. Samf• ylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, laugardaginn 12. desember kl. 11.00. S K ES SU H O R N 2 01 5 Bæjarstjórnarfundur Fjölmenni mætti í Stillholt 23 á Akra- nesi þegar taílenski veitingastaður- inn Thai Santi var opnaður síðast- liðinn laugardag. Röð var út úr dyr- um og færri komust að en vildu. „Það var mjög mikið að gera alla helgina og komu yfir sex hundruð manns hingað. Ég bjóst ekki alveg við svona mörgum þó ég vissi að margir væru að bíða eftir opnuninni,“ segir Alex- andra Sineenard Prangsri eigandi Thai Santi. Hún segir matinn á laug- ardag hafa klárast fyrir kvöldmat og því hafi verið bætt við á sunnudegin- um. „Við héldum að það væri rólegra á sunnudeginum og hann fór rólega af stað en svo allt í einu fylltist allt af fólki aftur,“ segir hún kát. Alexandra segir rækjurnar og núðlurnar vana- lega vera vinsælastar en um helgina hafi allt sem kom á borðið klárast. Alexandra hefur ráðið tvær konur í vinnu en auk þeirra er vinkona henn- ar henni til halds og trausts í eldhús- inu. „Hún er rosalega góður kokkur, við vinnum alltaf saman,“ segir Alex- andra. Nafnið þýðir friður og ró Thai Santi er fyrsti veitingastaðurinn sem Alexandra opnar. Hún er þó ekki allskostar óvön að elda fyrir lands- menn og hefur eldað á ýmsum bæj- arhátíðum undanfarin ár. „Ég byrjaði í íþróttahúsinu hér á Írskum dögum. Þá var ég að selja djúpsteiktan kjúk- ling og franskar en fólk spurði mig hvers vegna ég eldaði ekki tælensk- an mat. Ég byrjaði þá með kínarúll- ur og rækjur og þá spurði fólk hvort ég ætti ekki eitthvað bragðsterkt. Svo bættist hitt smátt og smátt við,“ seg- ir hún og brosir. Hún segir ástæðu þess að Akranes hafi orðið fyrir val- inu fyrir veitingastaðinn að þar hafi ekki verið annar tælenskur matsölu- staður sem búið var að loka. „Ég er búin að elda um allt land og það var alltaf mest að gera hjá mér á Akra- nesi,“ segir Alexandra. Aðspurð um nafn staðarins segir hún að Santi þýði friður og ró. „Þetta er tælenskt nafn eldri sonar míns, amma mín gaf hon- um þetta nafn. Honum líkaði ekki að nota nafnið á Íslandi og breytti því í Alexander. Amma mín dó svo fyr- ir nokkrum árum og ég vildi ekki að nafnið glataðist. Ég skírði því yngri son minn Santi líka og nú veitinga- staðinn,“ segir hún brosandi. Thai Santi er opinn alla daga vikunnar frá kl. 11 og fram á kvöld. Til að byrja með er boðið upp á fimm rétti á dag sem fólk getur valið úr og eru ýmis tilboð í gangi. Alexandra segir að fljótlega verði matseðill tilbúinn sem hægt verði að panta af. „Svo erum við með heimsendingu líka þó það hafi ekki verið hægt að bjóða upp á það fyrstu helgina vegna anna.“ grþ Tælenskur veitingastaður opnaður á Akranesi Lek Lakana og Alexandra Sineenard Prangsri á Thai Santi.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.