Skessuhorn - 09.12.2015, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2015 13
AKRANES • BORGARNES • BÚÐARDALUR • GRUNDARFJÖRÐUR • HÓLMAVÍK • HVAMMSTANGI • ÓLAFSVÍK • STYKKISHÓLMUR
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
•
• Fagstjóri heilbrigðisupplýsinga á HVE
•
•
heilbrigðisupplýsinga
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið við Vesturgötu
1. deild
Fimmtudaginn 10. desember kl. 19.15
ÍA - Valur
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Bílaréttingar - Bílasprautun
Framrúðuskipti - Bílaleiga - Tjónaskoðun
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Þjónustum öll tryggingafélög
Á föstudagsmorguninn síðasta fór
brunavarnakerfi grunnskóladeild-
ar Auðarskóla í Búðardal af stað en
reyk lagði frá heimilisfræðistofu
skólans þar sem steikingarfeiti hafði
ofhitnað. Kalla þurfti út slökkvi-
lið til að reykræsta húsið en enginn
eldur var laus og nemendur ekki í
hættu. Nemendur voru strax send-
ir út í Dalabúð, sem er félagsheim-
ili og jafnframt mötuneyti skólans,
og dvöldu þeir þar meðan aðgerð-
ir stóðu yfir. Einn starfsmann þurfti
að senda á heilsugæslustöð HVE til
skoðunar en hann fann til óþæg-
inda vegna reyksins en sá hafði far-
ið í reykmettaða kennslustofuna og
tekið pottinn af eldavélarhellunni
og slökkt undir. Skólayfirvöld sendu
strax upplýsingar til foreldra auk
þess sem umsjónarkennarar tóku
góðan tíma í að fara yfir atburðinn
með nemendum sínum og ræða um
líðan þeirra. mm/ Ljósm. sm.
Steikingarfeiti ofhitnaði
Eins og fram kom í síðasta Skessu-
horni ætlar Silicor Materials, sem
ætlar á næsta ári að hefja byggingu
sólarkísilverksmiðju á Grundar-
tanga, að gera framleiðsluna kol-
efnishlutlausa þannig að verksmiðj-
an auki ekki útblástur gróðurhúsa-
lofttegunda á heimsvísu eftir að
framleiðsla hefst. Í þeim tilgangi
hefur Silicor samið við sjóðinn
Kolvið um að planta árlega 26 þús-
und trjám sem binda eiga alla los-
un koltvísýrings sem verður til við
starfsemi sólarkísilversins. Kolvið-
ur er skógræktarsjóður Skógræktar
ríkisins og Landverndar. Sjóðurinn
hefur nú þegar gert sambærilega
samninga við nokkur fyrirtæki, svo
sem Icelandair Cargo, Landsvirkj-
un og Landsbankann og tekið að
sér að kolefnisjafna þau. Nú hefur
Kolviður að beiðni Silicor ákveð-
ið að leita að jarðnæði til leigu í
Hvalfirði fyrir skógræktina. Áætl-
að er að um tíu hektara lands þurfi
á ári hverju fyrir 26 þúsund skóg-
arplöntur. Við kolefnisjöfnunina
verður m.a. plantað birki og furu
auk fleiri trjátegunda.
Fram kom í frétt Morgunblaðs-
ins í liðinni viku að forsvarsmenn
Kolviðs munu ræða við forystu-
fólk í sveitarfélaginu Hvalfjarðar-
sveit um aðstoð við leit að hent-
ugu landi. Ekki verður leitast eftir
landi sem kjörið er til landbúnað-
ar. Kjörin sem landeigendum bjóð-
ast eru sú að landið er lagt fram án
beinna leigutekna, en að 90 árum
liðnum á viðkomandi landeigandi
trén sem þá hafa vaxið, en fyrr ef
trén hafa lokið kolefnisbindingu
sinni. Þannig geta landeigendur
ekki gert ráð fyrir beinum peninga-
legum tekjum af verkefninu í þeirra
lífi, heldur ánægjunni af að sjá land-
ið fóstra skóg, en afkomendurn-
ir eða eigendur landsins síðar meir
munu væntanlega njóta afraksturs-
ins í peningum talið.
mm
Kolviður leitar að landi í Hvalfirði til skógræktar
Gróðursnautt land sem sjóðurinn Kolviður hefur tekið á leigu og hafið skógrækt í.