Skessuhorn


Skessuhorn - 09.12.2015, Síða 18

Skessuhorn - 09.12.2015, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 201518 Klukkan er fimm að morgni föstu- dags í síðustu viku þegar blaðamaður Skessuhorns mætir fyrir utan starfs- stöð Vegagerðarinnar í Borgarnesi. Við ætlum að fara í bílferð með Inga Björgvini Reynissyni. Hann er verk- stjóri hjá Vegagerðinni. Dagurinn hefst snemma hjá honum og mönn- um hans. Undanfarið hefur snjó- að og það er hálka á vegum Vestur- lands. Þeir eru menn sem vaka við störf sín á meðan flestir sofa. Verk þeirra er að sjá til þess að ungir sem aldnir komist ferða sinna að morgni þegar risið er úr rekkju á dimmum vetrarmorgnum, hvort heldur er til skóla, starfa eða annarra erinda- gjörða sem bíða í erli dagsins. Vel búnir tækjum Ingi ætlar út á vegina til að kanna akstursskilyrðin og jafnvel ryðja snjó þar sem þess þarf. Til þess hefur hann til umráða rauðan og vel útbúinn Toyota-pallbíl. Fram- an á bílinn hefur verið sett lítil ýtu- tönn sem stilla má með fjarstýringu úr ökumannssætinu. Auk þessa er bíllinn vel búinn fjarskiptatækjum. Samtímis því sem við leggjum af stað með Inga fara stórir vörubílar af stað frá bækistöðinni í Borgar- nesi. Þeir eru með stórar snjóruðn- ingstennur framan á sér og útbún- að til saltdreifingar að aftan. „Það er Borgarverk í Borgarnesi sem á og rekur þessa bíla og sér um þetta í verktöku fyrir Vegagerðina,“ út- skýrir Ingi. Sjálfur hefur hann með- al annars það hlutverk að segja bíl- stjórunum fyrir um það hvar þeir skuli ryðja. Við hefjum förina með því að aka út á Akranes með stuttri viðkomu í Melasveitinni til að kanna ástand- ið á veginum þar. Ingi sér strax að hingað þarf að senda bíl til að ryðja. Svo höldum við áfram út á Skaga. „Vegagerðin er með starfsstöð á Akranesi sem heldur til í húsa- kynnum Sementsverkmiðjunnar. Það er nauðsynlegt, einkum með tilliti til þess að halda veginum til og frá Grundartanga vel færum frá því snemma á morgnana. Hann er mikilvægur vegna iðnaðarsvæðisins þar,“ segir Ingi. Fyrir sunnan Akra- fjall mætum við einmitt bílnum sem er að koma frá Akranesi. Vökul augu á veginum Allan tímann þegar við keyrum fylgist Ingi árvökulum og vönum augum með ástandi vegarins. Hann grípur litla talstöð sem er í beinu sambandi við stjórnstöð Vegagerð- arinnar sem staðsett er í Hafnar- firði. Þar svarar rödd konu sem er á vakt. Ingi mælir fram nokkrar töl- ur sem gefa til kynna númer vegar- ins og hálkustig. Þessar upplýsing- ar eru strax slegnar inn í tölvu sem síðan uppfærir vegakort á heima- síðu Vegagerðarinnar þar sem fólk getur fræðst um færðina. Í bílnum er mælitæki sem nemur viðnámið á veginum og þar með hálkuna ef bremsað er snöggt. Mælitækið sýn- ir að það er ekki mjög hált þennan morgun samanborið við það hvern- ig hálkan getur orðið þegar hún er sem verst. Ingi notar þessar tölur líka til að meta hvort og þá hvar þurfi að dreifa salti á vegina. Stóru vörubíl- arnir sjá um það. Hann getur kallað þá upp og gefið fyrirmæli um þetta. „Reyndar er tæknin líka orðin þannig í dag að við getum fjarstýrt saltdreifingunni úr bílunum beint úr tölvu í stjórnstöðinni. Hver bíll er búinn staðsetningartækjum sem gefa til kynna nákvæmlega hvar þeir eru staddir á hverjum tíma. Þannig er hægt að fylgjast með snjóruðn- ingi og slá inn hvar þeir skuli dreifa saltinu.“ Með langa reynslu Við erum staddir milli Grundar- tanga og Hvalfjarðarganga. Ingi grípur skyndilega talstöðina. „Það vantar 18 stikur hér,“ segir hann. Á meðan við höfum spjallað sam- an hefur hann haft vakandi auga með öllu á veginum og í grennd við hann. Verkstjórinn sér strax ef það vantar vegstikur með glit- merkjum sem eru mjög svo gagn- legar nú í skammdeginu. Stikurnar eiga það til að sópast um koll þegar snjóruðningstækin fara um vegina. „Sumir strákanna eru nýir í þessum snjómokstri og hafa ekki gætt sín nógu vel þegar þeir ryðja og keyra niður stikurnar. En við erum búnir að messa yfir þeim og þeir eru farn- ir að passa sig betur og komnir upp á lag með þetta,“ segir Ingi og bros- ir í kampinn. Frá Akranesi liggur leiðin upp í Hvalfjörð. Ingi segist hafa unn- ið hjá Vegagerðinni í 27 ár. Hann er Borgfirðingur og býr ásamt fjöl- skyldu sinni á Tómasarhaga í Staf- holtstungum í Borgarfirði. „Þar erum við líka með smá búskap, ein- ar 250 kindur á vetrarfóðrum. En sauðfjárræktin er ekkert til að lifa af. Aðalstarfið er hjá Vegagerðinni og ég kann því vel. Þetta er fjöl- breytt eftir árstíðunum. Nú snýst þetta mikið um snjómokstur og færð. Á sumrin erum við svo mik- ið í að fylgjast með verktökunum og sjá til þess að þeir séu að vinna,“ segir hann og hlær við. Hann bætir því við að nú á árinu sem er að líða hafi þeir hjá Vegagerðinni í Borg- arnesi unnið mikið við það að end- urnýja rör í ræsum veganna. Mörg þeirra eru orðin gömul og ryðguð og tímabært að setja niður ný. „Við í Borgarnesi sjáum í dag um svæðið úr Hvalfjarðarbotni, Borgarfjörðinn og uppsveitir, Bröttubrekku og upp á Holtavörðuheiði.“ Fært og ófært Þegar komið er í Hvalfjörð merkjum við að þar hefur snjóað nokkuð um nóttina. Við beygjum upp í Hlíðar- hverfið ofan við Hlaðir. Þar eru all- ir greinilega ennþá í fastasvefni. Ingi skellir ýtutönninni niður og ryður snjónum bæði af afleggjaranum og úr götunni við húsin. Þetta tekur ekki langan tíma og þegar við hverf- um á brott er tryggt að Hlíðarbæ- ingar munu komast greiðlega bæði í skóla og vinnu þegar þau vakna. Frá Hlíðarbænum liggur leið- in yfir Ferstikluháls. Þar hefur ekk- ert verið rutt og töluverður snjór. Pallbíllinn og snjóruðningsbúnað- urinn á honum fær nú að sýna til hvers tækin duga. Ingi keyrir háls- inn af lagni þess sem veit hvað hann er að gera. Þó að töluverður snjór sé á hálsinum er ekki annað að sjá en hann fari létt með að gera leiðina greiðfæra. „Við höldum Ferstiklu- hálsinum opnum en látum Dragháls eiga sig. Hann er ófær og það tekur því ekki að ryðja hann því veðurspá- in er svo slæm. Hann yrði bara ófær strax aftur,“ segir Ingi og vísar til þess að um kvöldið er spáð stormi. „Það hefur snjóað mikið undafarið og hér er alls staðar efni í mikinn byl ef hann hvessir.“ Hann grípur talstöðina aftur og ræðir við stjórnstöðina í Hafnar- firði. „Ferstikluháls er fær en settu ófært á Dragann,“ segir hann um leið og við beygjum út Svínadalinn. Ingi beitir tönninni framan á bíln- um þar sem hann telur þess þurfa. Kantar eru snyrtir og litlum snjó- sköflum sem safnast hefur í um nóttina er rutt burt. „Það munar miklu um það í snjóruðningi að hér var lagt bundið slitlag nánast á rest- ina af veginum í Svínadal nú í sum- ar leið. Malarvegirnir geta verið erf- iðir í ruðningi þegar í þeim leyn- ast grjót. Annars er maður nú far- inn að þekkja þessa vegi og ég veit nokkurn veginn hvar maður þarf að passa sig.“ Kaffi í Baulu og ferðarlok Við höldum fyrir Hafnarfjall og í Skorradal og áfram um uppsveitir Borgarfjarðar. Förum norður fyrir Húsafell og til baka niður Hvítár- síðu. Sumstaðar má sjá ný spor eft- ir refi sem hafa verið á ferð í næt- urmyrkrinu. Ýtutönnin er niðri og mjöllin þyrlast aftur úr bílnum í myrkrinu. Enn eru nokkrir tímar í að birti. Ferð okkar hefur samt sóst vel. Ingi segir að við munum stoppa í veitingaskálanum Baulu og fá okk- ur kaffi þar enda hæg heimatökin. Kristberg Jónsson – „Kibbi í Baul- unni“ og annálaður vert þar - er tengdafaðir Inga. Kibbi er þó ekki á kaffivaktinni, heldur Þorvaldur Ásberg sonur hans. Einnig er Einar Guðmann Örnólfsson skólabílstjóri frá Sigmundarstöðum í Þverárhlíð staddur þarna. Hann hefur nýlokið við að keyra krakkana í skólann og er mættur í morgunkaffið í Baul- unni. Það er létt yfir mönnum og þegar þessir koma saman berst talið fljótt að færð og ferðasögum. Með- al annars er sögð sagan af mannin- um sem í fyrra slapp framhjá lok- unarhliði Vegagerðarinnar í Borg- arnesi þegar vegurinn fyrir Hafnar- fjall var lýstur ófær í eitt skiptið af mörgum í fyrravetur. Hann var að koma að vestan og þótti sem veðrið á leiðinni hefði ekki verið svo slæmt og því hlyti það að vera tóm bá- bilja að ófært væri fyrir Hafnarfjall. „Hann komst að Seleyri og þá voru allar rúðurnar foknar úr bílnum hjá honum og hann varð að snúa við. Karlinn var frekar skömmustuleg- ur þegar hann kom aftur í Borgar- nes.“ Við höldum áfram eftir stutt Í morgunferð með Vegagerðinni Kortleggur færðina áður en aðrir ökumenn rísa úr rekkja Bíllinn góði sem Ingi notar til að kanna ástand veganna. Mjöllin þyrlast aftur úr einum af snjóruðningsvörubílunum sem vinna á vegum Vegagerðarinnar. Vörubílarnir sem Vegagerðin í Borgarnesi notar við snjóruðninginn eru frá Borgarverki í Borgarnesi. Hér er einn þeirra undir sunnanverðu Akrafjalli. Ingi Björgvin Reynisson verkstjóri hjá Vegagerðinni í Borgarnesi.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.