Skessuhorn - 09.12.2015, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2015 23
Ýmsir viðburðir verða á gömlu
torfunni á Hvanneyri laugardaginn
19. desember frá klukkan 13-17.
Hefð er fyrir því að hafa sérstak-
ar uppákomur á staðnum í aðdrag-
anda jólanna, bjóða upp á skemmti-
lega dagskrá, halda markaði, bjóða
upp á ljúffengar veitingar og skapa
réttu stemninguna. Að sögn Stef-
aníu Nindel íbúa á Hvanneyri,
sem meðal annarra undirbýr við-
burðinn, verður glæsilegur jóla-
markaður í íþróttahúsinu. Fjöldi
söluaðila hefur meldað komu sína.
Þar verður Kristín Jónsdóttir ljós-
myndari með myndatökur á milli
kl. 14 og 15. Tilvalið er láta taka
af sér mynd í jólalegu umhverfi
til að setja í jólakortin. Jólasvein-
ar munu mæta á svæðið og sérstakt
jólabarnahorn verður á milli 15-17
þar sem börn hafa tækifæri til þess
að föndra eitthvað skemmtilegt.
Frumflutt nýtt ævintýri
Í Skemmunni kaffihúsi verða opn-
ar dyr og ýmsar jólalegar veiting-
ar, svo sem vöfflur í sparibúningi,
ristaðar möndlur, heitt súkkulaði,
óáfengt jólaglögg, tvíreykt hangi-
kjöt og margt fleira verða á boð-
stólum. Dagskrá verður í gangi á
efri hæð Skemmunnar. Þar ber
hæst að klukkan 14 munu börn-
in í Hvanneyrardeild GBF frum-
flytja leikrit undir stjórn Hafsteins
Þórissonar í samvinnu við tón-
listarskólann og tómstundaskól-
ann. „Sett verður upp nýtt frum-
samið ævintýri þar sem krakkarnir
fengu sjálfir að velja hvaða fígúrur
þeir vildu vera og svo var útbúin
saga í kringum það og loks skrifað
handrit. „Þarna er leikur og spilað
á hljóðfæri, söngur og fallegt æv-
intýri flutt með fallegan boðskap í
anda barnanna. Börnin fengu svo
þá hugmynd að hafa söfnunarbauk
á sýningum en frjáls framlög ganga
til UNICEF,“ segir Hafsteinn í
samtali við Skessuhorn. Klukkan
15 verða börn úr tónlistarskólan-
um með tónlistaratriði í Skemm-
unni og klukkan 16 verður lesin
jólasaga fyrir börn.
Í Halldórsfjósi verður Land-
búnaðarsafnið opið þennan dag
og einnig Ullarselið. Það verður
líklega hægt að fylgjast með fólki
spinna ull. Þar að auki hefur ver-
ið komið á fót bókalofti sem verð-
ur opið. Skógrækt ríkisins verð-
ur með jólatré og greinar til sölu
og á Hvanneyri pub verður opið
og ýmsar veitingar í boði. Stefanía
segir að enn eigi dagskráin eftir að
þróast og dafna, en hvetur fólk til
að taka daginn frá og eiga ánægju-
lega stund í jólaþorpinu Hvann-
eyri. mm
Jólaþorpið Hvanneyri býður
í heimsókn 19. desember
Svipmynd frá markaði í fyrra.
Skógrækt ríkisins verður með sölu á jólatrjám og greinum.
Frá æfingu á nýja ævintýrinu sem börnin á Hvanneyri munu sýna í Skemmunni.
Síðastliðinn föstudag var leik-
verkið Fróðá frumsýnt í Frysti-
klefanum í Rifi og verður sýnt
fram til 19. desember. Uppselt
var á fyrstu sýningarnar. Verk-
ið er ný túlkun á Fróðárundrun-
um úr Eyrbyggju þar sem áhersl-
an er lögð á aðal kvenpersónurn-
ar í sögunni og þeirra samband.
Í verkinu blandast saman margar
miðlunaraðferðir þar sem tungu-
mál, sviðsleikur, kvikmyndalist,
brúðuleikhús og frumsamin tón-
list og hljóðheimur blandast sam-
an í einni sterkri heild. Verkið
kemur á óvart, er óhefðbundið í
sagnaaðferð og skilur engan eftir
ósnortinn.
Óhætt er að segja að verkið sé
glæsilegt og leikkonurnar Aldís
Davíðsdóttir, sem fer með hlut-
verk Þuríðar húsfreyju á Fróðá, og
Allison Osberg, sem leikur Þór-
gunnu vinnukonu, fari á kostum
í túlkun sinni. Tónlist og vídeó-
grafík er ein sú besta sem frétta-
ritari Skessuhorns hefur séð í leik-
verki.
Kári Viðarson er leikstjóri
Fróðár og segir hann í samtali við
Skessuhorn að sýningin sé búin að
fá frábærar viðtökur og gestir séu
ánægðir með sýninguna. Að hans
mati er verkið mjög vel sett sam-
an, spennandi, áleitið, óheflað og
leikkonurnar standa sig báðar al-
veg frábærlega vel í mjög krefj-
andi hlutverkum.
af
Leikverkið
Fróðá vekur
verðskuldaða
athygli
Svipmynd úr sýningunni.
Kári Viðarsson sögumaður og leikstjóri.
Aldís Davíðsdóttir, Kári Viðarsson og Allison Osberg.
Síðastliðinn miðvikudag fór fram
keppnin um hátónsbarka grunnskól-
anna á Akranesi og félagsmiðstöðv-
arinnar Arnardals. Þar kepptu þrjú
atriði úr hvorum skóla til úrslita,
auk þess sem nemendum gafst tæki-
færi til að sýna hæfileika sína á ýms-
um sviðum. Keppendur stóðu sig all-
ir með mikilli prýði og góð stemning
var í salnum. Dómnefndin var skip-
uð Brynju Valdimarsdóttur, Sveini
Arnari Sæmundssyni og Viðari Eng-
ilbertssyni, sem þurftu að velja sigur-
vegara úr hvorum skóla fyrir sig. Sig-
urvegari Brekkubæjarskóla var Ragna
Benedikta Steingrímsdóttir sem söng
lagið I found a boy. Rakel Rún Eyj-
ólfsdóttir og María Dís Einarsdóttir
lentu í fyrsta sæti fyrir hönd Grunda-
skóla en þær sungu lagið Your side
of town. Munu sigurvegarar hvors
skóla fyrir sig keppa fyrir hönd Arn-
ardals í Söngkeppni Samfés – Vestur-
landskeppni, sem jafnframt er und-
anfari Samféskeppninnar á landsvísu.
Í hæfileikakeppninni sigraði Andri
Snær Axelsson sem lék prelúdíu eftir
J.S. Bach á flygil. grþ
Hátónsbarkinn fór
fram í síðustu viku
Allir keppendur Hátónsbarkans saman á sviðinu.
Ragna Benedikta er Hátónsbarki
Brekkubæjarskóla.
Rakel Rún og María Dís, Hátónsbarkar Grundaskóla