Skessuhorn - 09.12.2015, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 201526
Ert þú veðurhrædd/hræddur?
Spurning
vikunnar
(spurt á Akranesi)
Kári Maríuson
Nei, alls ekki.
Valdimar Lárusson
Nei, ekki neitt.
Grétar Guðnason
Ekki tiltakanlega, nei.
Birna Katrín Hallsdóttir
Já, ég er frekar veðurhrædd.
Júlíana Viðarsdóttir
Nei, alls ekki.
Meðal þess sem tekið var fyrir á að-
alfundi Golfklúbbsins Leynis var
tillaga, borin upp af tveimur félags-
mönnum, þess efnis að stjórn GL
taki upp áætlanir um að koma að
byggingu golfhótels sem einn-
ig innihéldi félagaaðstöðu, vinnu-
aðstöðu og veitingarekstur fyr-
ir klúbbinn. Í kjölfar umræðna var
borin upp eftirfarandi breytingar-
tillaga af Þórði Emil Ólafssyni for-
manni: „Stjórn GL verði falið að
stofna starfshóp um bætta félagsað-
stöðu. Starfshópur verði settur sam-
an af félagsmönnum GL. Nefndin
skili niðurstöðum um bætta félags-
aðstöðu á vormánuðum 2016.“
Í samtali við Skessuhorn kvaðst
Þórður Emil hafa orðið var við um-
ræðu um hugsanlegt hótel í ná-
grenni golfvallarins, meðal annars
gegnum þessarar tillögu sem bor-
in var upp á aðalfundi GL. Aftur á
móti upplýsir hann að ekki séu uppi
áform meðal stjórnenda klúbbs-
ins um að koma að byggingu og
rekstri hótels, það væri ekki hlut-
verk íþróttafélaga. Hann sagði hins
vegar að stjórnendur golfklúbbs-
ins væru að skoða ýmsa mögu-
leika varðandi bætta félagsaðstöðu
og væru opnir fyrir ýmsum lausn-
um. Bætt aðstaða myndi gera mik-
ið fyrir klúbbinn, en Þórður Emil
ítrekaði að GL myndi ekki koma að
byggingu hótels.
Reksturinn gekk með
ágætum
Á hálfrar aldar afmælisári Leynis bar
hæst Íslandsmótið í golfi sem haldið
var með miklum glæsibrag á Garða-
velli í júnímánuði. Eins og Skessu-
horn hefur áður greint frá var aðsókn
að mótinu góð og framkvæmd þess
gekk vel.
Heildarvelta klúbbsins jókst um
24% frá síðasta ári og nam 89,6 millj-
ónum króna samanborið við 75,5
milljónir árið 2014. Rekstrarafgang-
ur klúbbsins var 3,3 milljónir í ár fyr-
ir fjármagnsliði og afskriftir.
Félagsmönnum fjölgaði úr 390 í
410 á milli ára eða um 5% og spil-
aðir hringir á Garðavelli voru 18.500
í ár. Er það fjölgun um 550 hringi
frá árinu áður þrátt fyrir að völlur-
inn hafi opnað seinna en vanalega og
kalt hafi verið í veðri langt fram eft-
ir vori.
Stjórn GL var endurkjörin en hana
skipa auk Þórðar Emils formanns
þau Hannes Marinó Ellertsson, Ei-
ríkur Jónsson, Hörður Kári Jóhann-
esson, Berglind Helgadóttir og Ingi-
björg Stefánsdóttir.
Viðurkenningar til
afrekskylfinga
Venju samkvæmt voru þeim kylf-
ingum sem þykja hafa skarað fram
úr á árinu veittar viðurkenningar.
Guðmundar- og Óðinsbikarinn var
veittur Birni Viktori Viktorssyni fyr-
ir góðan árangur á mótaröðum Golf-
sambands Íslands, en Björn endaði
tímabilið í öðru sæti áskorendamót-
araðar GSÍ. Aron Máni Alfreðsson
fékk háttvísiverðlaun GSÍ sem veitt
eru þeim kylfingi 18 ára og yngri sem
endurspeglar hvað best þá eiginleika
sem Leynir vill sjá meðal afreksung-
menna sinna. Þá fékk Hafþór Péturs-
son verðlaun fyrir mestu forgjafar-
lækkun Leynis, en hann lækkaði for-
gjöf sína úr 36 í 12,4 á árinu.
Formaður Leynis afhenti Val-
dísi Þóru Jónsdóttur atvinnukylf-
ingi styrk sem móðir hennar Pá-
lína Alfreðsdóttir tók við fyrir henn-
ar hönd, en Valdís var stödd á Flór-
ída við æfingar og undirbúning fyrir
úrtökumót LET Access mótaraðar-
innar sem fram fer í Marokkó í þess-
um mánuði.
Golfklúbburinn fékk gæðaviður-
kenningu Íþrótta- og Ólympíusam-
bands Íslands og verður klúbburinn
því talinn fyrirmyndarfélag næstu
fjögur árin. Um endurnýjun er að
ræða, en GL fékk þessa viðurkenn-
ingu fyrst árið 2009. Þá afhenti Sig-
urður Arnar Sigursson formaður ÍA
viðurkenningu og styrk til GL fyrir
frábært uppbyggingar- og sjálfboða-
starf á árinu sem er að líða.
kgk/ Ljósm. GL.
Leynir mun ekki koma að byggingu golfhótels
Valdísi Þóru Jónsdóttur atvinnukylfingi var afhentur sérstakur styrkur á aðalfundi
Leynis.
Björn Viktor Viktorsson fékk Guðmundar- og Óðinsbikarinn fyrir góðan árangur á
mótaröðum GSÍ.
Háttvísiverðlaun GSÍ komu í hlut Arons Mána Alfreðssonar.
Um helgina var leikið í 16 liða úr-
slitum Powerade-bikar í körfuknatt-
leik. Vesturlandsliðin þrjú sem öttu
kappi unnu öll leiki sína og eru því
komin áfram í næstu umferð.
Á laugardaginn mættust Skalla-
grímur og Breiðablik í spennandi
leik í bikarkeppni karla í Kópavog-
inum. Skallagrímur byrjaði vel að
vanda og leiddi með fimm stigum í
hálfleik. Heimamenn voru lengur í
gang en söxuðu jafnt og þétt á for-
skot gestanna. Með góðum síðari
hálfleik minnkuðu Blikar muninn og
komust yfir í upphafi lokafjórðungs-
ins. Leikmenn Skallagríms svöruðu
fyrir sig og sigruðu að lokum með
þremur stigum, 75-78.
Sigtryggur Arnar Björnsson var
stigahæstur leikmanna Skallagríms
með 33 stig. J.R. Cadot skoraði 17
stig og tók 18 fráköst.
Burst í Hólminum
Á sunnudag var svo leikið í bikar-
keppni kvenna. Í Stykkishólmi vann
Snæfell öruggan sigur á Breiðabliki,
85-48. Snæfell réði lögum og lofum
á vellinum frá fyrstu mínútu enda
allnokkur getumunur á ríkjandi Ís-
landsmeisturum og ungu og efnilegu
liði Breiðabliks.
Haiden Palmer lauk leik með
myndarlega þrennu; 16 stig, tíu frá-
köst og tíu stoðsendingar. Við þrenn-
una bætti hún átta stolnum boltum.
Berglind Gunnarsdóttir skoraði 16
stig og Bryndís Guðmundsdóttir 15
stig og tók 10 fráköst.
Spenna í leik
Skallagríms og KR
Skallagrímur lék einnig í bikar-
keppni kvenna um helgina þegar
liðið mætti KR í Vesturbæ Reykja-
víkur. KR náði undirtökunum í
þeim leik við upphaf fyrsta leik-
hluta og leiddi þar til Skallagrím-
ur komst yfir með góðum spretti
fyrir lokafjórðunginn. Upphóf-
ust þá spennandi lokamínútur en
Borgarnesliðið hélt heimaliðinu í
skefjum og vann að lokum góðan
ellefu stiga sigur, 52-63.
Erikka Banks var atkvæðamest í
liði Skallagríms með 23 stig og 15
fráköst. Næst henni kom Kristrún
Sigurjónsdóttir með 15 stig og níu
fráköst.
Leikið verður í átta liða úrslit-
um bikarsins helgina 9.-11. janú-
ar og eins og áður sagði hafa ofan-
greind lið öll tryggt sér þátttöku-
rétt í næstu umferð. Dregið verður
í átta liða úrslitum karla og kvenna
áður en langt um líður og þá kem-
ur í ljós hverjir mótherjar Vestur-
landsliðanna verða.
kgk
Vesturlandsliðin öll áfram í bikarnum
Haiden Palmer fór mikinn í stórsigri
Snæfells á Breiðabliki í bikarnum um
helgina þar sem hún náði þrennu.
Mynd úr safni.
Skallagrímur hefur unnið alla leiki sína
í vetur undir stjórn Manuel Rodriguez,
bæði í deild og bikar.
Ljósm. Facebook-síða Skallagríms.
Sundkonan knáa Inga Elín Cryer frá
Akranesi bætti eigið Íslandsmet sitt í
200m flugsundi um tæpar fjórar sek-
úndur á Evrópumeistaramótinu í
sundi í 25 metra laug sem fram fór í
Ísrael í liðinni viku. Inga Elín synti á
tímanum 2.12.95. Gamla metið átti
hún sjálf, en það var 2.16.72. Inga
Elín varð í 15. sæti en það voru átta
sem komust í úrslit í 200m sundi. Auk
flugsundsins keppti Inga Elín í 200,
400 og 800 metra skriðsundi og gekk
þar ekki eins vel og í flugsundinu.
Mótið í Ísrael verður í minnum
haft fyrir þær sakir að þar vann stalla
Ingu Elínar; Eygló Ósk Gústafsdótt-
ir til tvennra bronsverðlauna en það
er besti árangur sem íslenskt sund-
fólk hefur náð frá upphafi á svo stóru
móti. Auk stúlknanna synti Aron Örn
Stefánsson á mótinu, en þjálfari liðs-
ins er Jacky Pellerin. mm
Inga Elín stór-
bætti eigið
Íslandsmet