Skessuhorn - 30.12.2015, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 52. tbl. 18. árg. 30. desember 2015 - kr. 750 í lausasölu
Við óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum
gleðilegs árs og þökkum ánægjuleg samskipti á
árinu sem er að líða.
Coldfri munnúði
Fluconazol
ratiopharm
- við kvefi og hálsbólgu
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Landnámssetur Íslands,
Brákarbraut 13 – 15, Borgarnesi
Frá Landnámssetri
Mr. Skallagrímsson
í janúar
Ekki missa af þessari
glæsilegu sýningu
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Skömmu fyrir jól kom nýr og glæsilegur Víkingur AK-100 til heimahafnar á Akranesi en hann er í eigu HB Granda. Skipið
var smíðað í Istanbúl í Tyrklandi og er afar fullkomið uppsjávarveiðiskip, búið nýjustu tækjum og tækni og er systurskip
Venusar NK sem kom fyrr á þessu ári til landsins. Fjölmenni tók á móti Víkingi við komuna til Akraness og enn fleiri mættu til
vígsluathafnar mánudaginn 21. desember. Sjá ítarlega frásögn í máli og myndum og spjall við Albert Sveinsson skipstjóra á
bls. 18-19 í Skessuhorni í dag. Ljósm. mm.
Líkt og undanfarin sautján ár gekkst
Skessuhorn fyrir vali á Vestlend-
ingi ársins, en verðlaunin falla í hlut
þess eða þeirra íbúa á Vesturlandi
sem þykja hafa skarað framúr á ein-
hvern hátt á árinu. Í aðventublaði
Skessuhorns var auglýst eftir tilnefn-
ingum. Eina skilyrðið fyrir tilnefn-
ingu er að viðkomandi sé búsettur
í landshlutanum. Lesendur Skessu-
horns sendu inn fjölmargar tilnefn-
ingar og er þakkað fyrir það. Af þeim
hlutu ferðaþjónustuhjónin Hrefna
Sigmarsdóttir og Bergþór Kristleifs-
son í Húsafelli flestar tilnefningar
og eru réttkjörnir Vestlendingar árs-
ins 2015. Viðurkenninguna hljóta
þau fyrir myndarlega uppbyggingu í
Húsafelli en í júní opnuðu þau fjög-
urra stjörnu hótel í hjarta Húsafells
með glæsilegum veitingastað. Fram-
kvæmdin þykir hafa heppnast eintak-
lega vel, enda unnin af miklum metn-
aði og forsjálni. Áframhaldandi fram-
kvæmdir eru fyrirhugaðar í Húsafelli
og mun hótelið og önnur þjónusta
sem þar er hafa jákvæð áhrif á vöxt
ferðaþjónustu í landshlutanum. Les-
endum Skessuhorns þótti uppbygg-
ingin í Húsafelli verðskulda að þeir
sem að henni standa hljóti sæmdar-
heitið Vestlendingar ársins.
Auk Húsafellshjóna hlutu flest-
ar tilnefningar: Andrea Björnsdótt-
ir bóndi og hugsjónakona á Eystri-
Leirárgörðum, Alda Dís Arnardótt-
ir söngkona frá Hellissandi, Hilm-
ar Sigvaldason vitavörður á Akranesi
og ferðafrömuðurnir Kjartan Ragn-
arsson og Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir í Borgarnesi.
Rætt er við hjónin Bergþór og
Hrefnu, Vestlendinga ársins 2015, á
miðopnu. grþ
Ferðaþjónustuhjónin á Húsafelli
eru Vestlendingar ársins 2015
Hrefna Sigmarsdóttir og Bergþór Kristleifsson með blóm og áletraðan kristalsvasa,
hefðbundinn verðlaunagrip sem Skessuhorn veitir árlega Vestlendingum ársins.
Umhverfisstofnun gaf skömmu fyr-
ir jól út nýtt starfsleyfi fyrir álverk-
smiðju Norðuráls á Grundartanga.
Nýja leyfið gildir til ársins 2031 og
gefur fyrirtækinu heimild til fram-
leiðslu á allt að 350 þúsund tonn-
um af áli á ári. Framleiðsla Norð-
uráls hefur verið að aukast á undan-
förnum árum og vegna áforma um
enn meiri framleiðslu með straum-
hækkun sótti fyrirtækið um nýtt
starfsleyfi.
Sjá nánar bls. 2 .
Nýtt starfsleyfi
Norðuráls
Skömmu fyrir jól voru alls 75 ung-
menni brautskráð frá tveimur fram-
haldsskólum á Vesturlandi; Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi
og Fjölbrautaskóla Snæfellinga í
Grundarfirði.
Sjá nánar bls. 16-17.
75 brautskráðust
Þrír drengir og ein stúlka komu í
heiminn á jóladag á kvennadeild
HVE á Akranesi. Að sögn Önnu
Björnsdóttur deildarstjóra kvenna-
deildarinnar voru þetta óvenju
margar fæðingar. „Það fæddist ekk-
ert barn hjá okkur á aðfangadag en
svo kom sprengja akkúrat á jóladag.
Þetta er óvenjulegt, ég man ekki
eftir að þetta hafi gerst áður að það
hafi fæðst svona mörg börn þennan
dag,“ segir Anna. Hún segir að yfir-
leitt sé ein ljósmóðir á vakt þenn-
an hátíðisdag en á föstudag hafi þær
verið fjórar. „Það var ein ljósmóð-
ir á hverja fæðandi konu og þetta
gekk allt mjög vel.“ Fullt tungl var
á jóladag í fyrsta sinn í 38 ár en
Anna gaf lítið út á að samband væri
á milli þess og fæðinganna. „Þetta
getur alveg gerst svona,“ sagði hún
og benti á að þrjár fæðingar hefðu
til dæmis verið á deildinni mánu-
daginn 28. desember.
grþ
Fjögur jólabörn
á Akranesi