Skessuhorn


Skessuhorn - 30.12.2015, Side 10

Skessuhorn - 30.12.2015, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 201510 Lítilsháttar aukning atvinnuleysis LANDIÐ: Samkvæmt Vinnu- markaðsrannsókn Hagstofu Ís- lands voru að jafnaði 194.900 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í nóvember 2015, sem jafngildir 83,2% at- vinnuþátttöku. Af þeim voru 188.100 starfandi og 6.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlut- fall starfandi af mannfjölda var 80,3% og hlutfall atvinnu- lausra af vinnuafli var 3,5%. Samanburður mælinga fyr- ir nóvember 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 2,4 prósentustig og hlut- fall starfandi fólks jókst um tvö prósentustig. Samanburð- urinn sýnir aukningu í hlut- falli atvinnuleysis, en það jókst um 0,4 prósentustig frá því í nóvember 2014, úr 3,1% í 3,5% af vinnuaflinu. –mm Aflatölur fyrir Vesturland 19. - 25. desember Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 3 bátar. Heildarlöndun: 7.392 kg. Mestur afli: Flugaldan SH: 2.102 kg í tveimur löndunum. Arnarstapi 2 bátar. Heildarlöndun: 8.272 kg. Mestur afli: Kvika SH: 6.512 kg í einni löndun. Grundarfjörður Samkvæmt skrá Fiskistofu var engu landað í Grundarfirði þessa daga. Ólafsvík 6 bátar. Heildarlöndun: 30.170 kg. Mestur afli: Kristinn SH: 10.802 kg í einni löndun. Rif 5 bátar. Heildarlöndun: 96.170 kg. Mestur afli: Örvar SH: 51.332 kg í einni löndun. Stykkishólmur 3 bátar. Heildarlöndun: 24.923 kg. Mestur afli: Fjóla SH: 11.030 kg í þremur löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Örvar SH – RIF: 51.332 kg. 21. desember. 2. Tjaldur SH – RIF: 25.799 kg. 21. desember. 3. Kristinn SH – ÓLV: 10.802 kg. 19. desember. 4. Fjóla SH – STY: 6.638 kg. 19. desember. 5. Kvika SH – ARN: 6.512 kg. 21. desember. mþh Fauk í óveðri á aðfangadag SNÆFELLSNES: Rúta með 13 erlenda ferðamenn, á leið frá Ólafsvík til Stykkishólms, fór út af Snæfellsnesvegi undir Kol- grafarmúla við bæinn Berserks- eyri að morgni aðfangadags. Töluverður vindur var á svæð- inu og strengir af fjöllum sam- hliða hálku þegar óhappið varð. Lagðist rútan á hliðina í vegkant- inum en engan sakaði. Björgun- arsveitirnar Klakkur í Grundar- firði og Berserkir í Stykkishólmi voru sendar á staðinn til að flytja fólkið í húsaskjól og gekk sú að- gerð vel. Sama dag lenti öku- maður jeppabifreiðar í vandræð- um á Fróðárheiði og var honum komið í samband við dráttarbíla- þjónustu. Var Fróðárheiðin ófær öllum bílum og merkt lokuð á vef Vegagerðarinnar. –mm Notuðum frímerkjum safn- að til hjálparstarfs LANDIÐ: Samband íslenskra kristniboðsfélaga, í samstarfi við Póstinn, hefur nú hafið söfnun á notuðum frímerkjum. Heiti verkefnis er: Hendum ekki verð- mætum! Söfnunin stendur til 31. janúar 2016 og er tekið við frí- merkjum og umslögum á póst- húsum um land allt. „Skorað er á einstaklinga og fyrirtæki að skila notuðum frímerkjum í safnkassa sem eru á öllum pósthúsum. Æskilegt er að fá frímerkin á umslögum en einnig er tekið við stökum frímerkjum. Allur ágóði verður notaður í þróunarstarf á sviði menntunar barna, unglinga og fullorðinna í Eþíópíu og Ke- níu. Frímerkjum er einnig veitt móttaka allan ársins hring í Bas- arnum, nytjamarkaði Kristni- boðssambandsins í Austurveri, Háaleitisbraut 68 og í Litla hús- inu, Glerárgötu 1, Akureyri. Á árinu 2015 skilaði frímerkja- söfnun Kristniboðssambandsins um 3,6 milljónum króna. Þeir fjármunir voru m.a. notaði til að byggja framhaldsskóla í Pó- kot í Keníu, styðja fátæk börn í Addis Abeba, höfuðborg Eþíóp- íu og kenna fullorðnum að lesa í Suður-Eþíópíu. Til að fá frekari upplýsingar er fjölmiðlum bent á að hafa samband við Jarle Reier- sen í síma 854 6006 eða á jarle. reiersen@gmail.com Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á www.sik.is.“ –mm Brennur á tveimur stöðum DALIR: Áramótabrenna árs- ins í Búðardal verður á gamla fótboltavellinum. Kveikt verð- ur í brennunni kl. 20:30 á gaml- árskvöld. Brennan í Saurbæn- um verður að þessu sinni í landi Bjarnastaða í Staðarhólsdal. Kveikt verður í þeirri brennu um miðnætti. -mþh Íbúar á Túnbergi hafa lengi barist fyrir því að sett verði upp skilti sem sýni vegfarend- um á hvaða hraða þeir eru þegar þeir aka inn í þéttbýlið á Hellissandi. En umferðin framhjá húsinu er mikil og oft mjög hröð bæði, á stórum og litlum bíl- um. Vegagerðin setti svona skilti upp á dög- unum og vonandi verður það til þess að hægist á umferðinni. þa Skilti verður vonandi til að hægja á umferðinni Tveimur rútum fullum af ferðafólki var lagt í vegarkanti á afleggjurun- um að Ölveri og Höfn við Hafn- arfjall eitt kvöld helgina fyrir jól. Þar hleyptu fararstjórarnir útlend- ingunum út á veginn til að skoða norðurljósin. Öll ljós voru slökkt á rútunum og ferðafólkið var án endurskinsmerkja, að sögn sjónar- votta. Ökumaður sem hringdi til lögreglunnar hafði komið akandi þarna að og sagði að fyrir hreina Guðs mildi þá hafi honum tekist að beygja framhjá fólkinu þegar það birtist skyndilega í ljósgeislanum standandi á miðjum veginum eins og mýs í myrkrinu með gsm símana á lofti. Þegar lögreglan kom á vett- vang voru rúturnar og ferðafólkið á bak og burt svo ekki náðist í þessa ábyrgðarlausu fararstjóra til að lesa þeim pistilinn. „Ábyrgð fararstjóra og ökumanna er mikil, sérstakleg í tilvikum sem þessum. Því miður er ekki hægt að koma í veg fyrir öll slys,“ segir Theódór Þórðarson hjá Lögreglunni á Vesturlandi og vitn- ar í mann sem sagði: „Það er óþarfi að búa slysin til viljandi.“ mm Stoppuðu á veginum og hleyptu fólkinu út í myrkrið Það er búið að vera í nógu að snú- ast að undanförnu hjá þeim sem sæti eiga í menningarnefnd Snæ- fellsbæjar. Hafa þau ásamt öðr- um staðið fyrir ýmsum viðburðum sem sett hafa svip sinn á bæjar- félagið og skapað jólastemningu. Stóðu þau í fyrsta skipti fyrir sam- keppni um fallegasta piparköku- húsið. Margir búa til piparköku- hús á aðventunni og finnst ýms- um það ómissandi hluti jólanna þegar fjölskyldan eða vinahóp- ur safnast saman til að búa til og skreyta piparkökuhús. Í þessa fyrstu samkeppni voru send fjög- ur hús en mjög líklegt er að þátt- tákan aukist jafnt og þétt ef áfram- hald verður á þessu. Sigurvegar- arnir að þessu synni voru systkinin Ásbjörn og Særún Friðbjörnsbörn sem skreyttu þetta fallega hús með móður sinni. þa Áttu flottasta piparkökuhúsið Bílvelta varð á Holtavörðuheið- inni í byrjun jólavikunnar. Þar hafði vörubifreið með tengivagn verið á suðurleið. Mikil hálka var á veginum og missti ökumaðurinn stjórn á ökutækinu með þeim af- leiðingum að ækið fór útaf veg- inum og valt á hliðina. Á tengi- vagninum var 40 feta gámur og famurinn var meðal annars fiskur. Nokkrar tafir urðu á umferð með- an unnið var að því að ná bíl og vagni aftur upp á veginn. Öku- maðurinn var fluttur á heilsu- gæslustöð til skoðunar. mm/ Ljósm. LVL. Tengivagn á hliðina á Holtavörðuheiðinni

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.