Skessuhorn - 30.12.2015, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 201518
Á slaginu klukkan 13 föstudaginn
18. desember lagðist nýr Víkingur
AK-100 í eigu HB Granda að bryggju
í heimahöfn sinni á Akranesi. Skipinu
var siglt áleiðis frá Tuzla í Tyrklandi
laugardaginn 5. desember og gekk
heimsiglingin eins og í sögu und-
ir stjórn Alberts Sveinssonar skip-
stjóra. Skipið kom að bauju utan við
Skagann nóttina áður en eftir toll-
skoðun um morguninn var því fylgt
til hafnar af lóðsbátum Faxaflóa-
hafna. Fjölmenni var saman komið á
bryggjunni til að heilsa nýja skipinu
og áhöfn þess en gestum gafst kost-
ur á að skoða skipið mánudaginn 21.
desember þegar HB Grandi bauð
bæjarbúum og gestum til athafnar á
Akranesbryggju og eftir það skoðun-
arferð um skipið.
Fjölmenni
skoðaði skipið
Talið er að um þúsund gestir hafi
mætt á Akranesbryggju mánudag-
inn 21. desember til að verða við-
staddir þegar Víkingi AK-100 var
formlega gefið nafn og skipið bless-
að. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri
HB Granda bauð gesti velkomna
og sagði ánægjulegt hversu margir
hefðu séð sér fært að koma. Vilhjálm-
ur sagði þennan áfanga afar ánægju-
legan, þegar lokið væri endurnýjun
uppsjávarveiðiskipaflota fyrirtæk-
isins. Hinn nýi Víkingur er systur-
skip Venusar NS sem kom til lands-
ins síðasta vor og var einnig smíðað í
skipasmíðastöðinni Celiktrans Deniz
Insaat Ltd í Tyrklandi. Víkingur er
81,19 metra langt skip og 17 metra
breitt. Það ristir 7,8 metra. Víking-
ur á að geta tekið allt að 2.800 tonna
afla. Skipið er einkar glæsilegt utan
sem innan og áttu gestir vart orð til
að lýsa ánægju sinni með hversu vel
var frá öllu gengið og ekki síður að-
búnað skipverja.
Einar Kristinn Guðfinnsson for-
seti Alþingis, alþingismaður og fyrr-
um sjávarútvegsráðherra flutti ávarp.
Gat hann þess meðal annars að ís-
lensk útgerðarfyrirtæki gætu ekki
endurnýjað fiskiskipaflota sinn nema
fyrir þær sakir að hér væri kvótakerfi
sem ætti að tryggja viðunandi af-
komu útgerðar til að standa straum
að endurnýjun flotans. Fyrir bragðið
værum við Íslendingar í fremstu röð
þjóða þegar kæmi að tækni til veiða
og vinnslu sjávarfangs.
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
á Akranesi ávarpaði gesti og færði
fyrir hönd bæjarins Alberti Sveins-
syni skipstjóra málverk að gjöf, en
það málaði Bjarni Þór Bjarnason og
sýnir Akranesvita. Regína gat þess að
Albert væri nítjándi skipstjóri á skipi
með Víkingsnafninu.
Karlakórinn Svanir söng tvö lög
við athöfnina undir stjórn Valgerðar
Jónsdóttur og frumflutti meðal ann-
ars nýtt lag eftir hana sjálfa. Eftir að
Steinunn Ósk eiginkona Vilhjálms
Vilhjálmssonar hafði gefið Víkingi
nafn blessaði Séra Eðvarð Ingólfs-
son sóknarprestur skipið og áhöfn
þess. Eftir það var gestum boðið að
stíga um borð og þiggja veitingar.
Innanborðs sáu síðan um tónlistar-
flutning félagarnir í Steinríki; Þor-
steinn Bjarkason og Eiríkur Hafdal
auk tvíeykisins Arnars Jónssonar og
Steinþórs Guðjónssonar.
Áætlað er að Víkingur haldi til
veiða um miðjan janúar. Víking-
ur er reyndar fjórða skipið í eigu Ís-
lendinga sem smíðað er eftir sömu
teikningunni og í sömu skipasmíða-
stöðinni. Hin skipin þrjú eru Börk-
ur NK, Sigurður VE og systurskipið
Venus NS eins og áður sagði. mm
Nýr Víkingur AK-100 kominn til heimahafnar
Gengið um borð í skipið. Í landganginum er meðal annarra Einar
Kristinn Guðfinnsson.
Karlakórinn Svanir söng tvö lög við athöfnina. Regína bæjartjóri færði Alberti Sveinssyni og áhöfninni að gjöf
málverk frá Akraneskaupstað. Vilhjálmur Vilhjálmsson tók við
blómvendi.
Víkingur kom að landi á Akranesi föstudaginn 18. desember. Hér er skipinu
bakkað að bryggju.
Hinn nýi Víkingur AK-100 leggst í fyrsta skipti að bryggju í heimahöfn.
HB Grandi veitti ríkulega þegar gestir fengu að skoða skipið hátt
og lágt.
Hluti stjórntækjanna í brúnni og skipstjórastóll Alberts Sveins-
sonar.
Bæjarfulltrúarnir Rakel Óskarsdóttir, Vilborg Þórunn Guðbjarts-
dóttir og Valgarður Lyngdal Jónsson voru meðal gesta.
Séra Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur blessaði skipið og áhöfn
þess.
Kampavínsflaskan bíður örlaga sinna. Kampavínsflaskan smellur á síðunni og þar með heitir skipið form-
lega Víkingur AK-100.
Elsa Lára Arnardóttir alþingismaður og Stefán Lárus Pálsson afi
hennar voru mætt á kajann.
Horft úr brúnni fram eftir skipinu.