Skessuhorn - 30.12.2015, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2015 19
Skipstjórinn á hinum nýja Vík-
ingi AK er mjög ánægður með
skipið. Það er Skagamaðurinn
Albert Sveinsson sem heldur
þar um stjórnvölinn en hann var
áður skipstjóri á Faxa RE um ára-
bil. Það skip var einnig í eigu HB
Granda en hefur nú verið selt til
Vestmannaeyja og heitir nú Kap
VE. Albert Sveinsson sigldi sjálf-
ur skipinu heim hina löngu leið
frá skipasmíðastöðinni við Istan-
búl í Tyrklandi, út Marmarahaf,
um Eyjahaf, vestur Miðjarðarhaf,
gegnum Gíbraltarsund og síðan
norður eftir Atlantshafi alla leið
heim í Akraneshöfn.
Heimsigling
gekk mjög vel
„Mér líst rosalega vel á þetta,“
segir Albert í samtali við Skessu-
horn. „Víkingur gefur ekki ann-
að til kynna en að hér sé komið
gott skip og það gekk mjög vel
að sigla heim. Það var blíðuveður
mestan hluta leiðarinnar heim til
Íslands. Þó var það þannig þeg-
ar við vorum að koma að Írlandi
að við fengum á okkur stífa suð-
vestanátt og haugasjó. Síðan var
aftur bræla þegar við komum upp
að Íslandi austan við Vestmanna-
eyjar. En Víkingur bar þetta allt
saman mjög vel. Skipið er virki-
lega gott. Það eru miklu hægari
og þægilegri veltur í svona skipi
sem hefur þessa breidd en hún er
17 metrar á Víkingi. Til saman-
burðar er Faxi, sem ég var með
áður, 11 metra breiður.“
Albert nefnir líka að það sé
mikill munur hve allt pláss sé
gott um borð í nýja skipinu. „Það
er mikill munur að vera hér um
borð samanborið við gömlu skip-
in sem voru áður. Þetta er allt
svo miklu stærra og meira en á
þeim. Útsýnið úr brúnni er frá-
bært. Við sjáum út úr henni all-
an hringinn. Það er mikill kostur,
ekki síst þegar við erum á nóta-
veiðum. Þetta var nokkuð sem
vantaði á eldri skipunum.“
Tilgreina mætti allar nýjung-
arnar við Víking í löngu viðtali.
Eitt er það þó enn sem Albert
nefnir. „Hér um borð er mjög
öflugt kælikerfi fyrir aflann til
að tryggja gæði hráefnisins. All-
ur vélbúnaður er líka mjög hag-
kvæmur í keyrslu. Við eigum að
geta keyrt þessi nýju skip hag-
kvæmar heldur en gömlu skipin,
það er að segja eytt minni olíu. Það
þýðir minni mengun en svo er líka
sérstakur mengunarvarnarbúnaður
hér sem dregur úr útblæstrinum.“
Byrja á kolmunna-
veiðum
Nú þegar Víkingur AK er kom-
inn til Íslands verður næsta skref
að útbúa skipið og halda til veiða.
„Já, þó skipið sé gott þá á maður
þó eftir að finna fisk á hann, það
eru auðvitað aðal málið,“ segir Al-
bert. Hann upplýsir að sennilegast
verði byrjað á því að halda á Vík-
ingi til kolmunnaveiða suðaust-
ur af Íslandi þar sem veitt verði
í flotvörpu. Systurskipið Venus,
sem einnig er í eigu HB Granda
og kom til landsins í sumar, mun
einnig halda til kolmunnaveiða
strax á nýju ári. „Það hefur ekki
verið gefinn út loðnukvóti enn
sem komið er. Um leið og hann
kemur þá förum við svo á hana.
En áður en veiðar hefjast verður
unnið aðeins í skipinu. Það þarf
að gera smá breytingar á þilfars-
búnaði en ekkert alvarlegt. Ég á
von á því að við verðum farnir í
fyrstu veiðiferðina um eða upp
úr 10. janúar.“
Aðspurður í lokin segir að Al-
bert að ný flotvarpa komi um
borð í skipið með nýjum poka,
nýjum hlerum og öðru sem
fylgir. „Gamla flottrollið okkar
fór með Faxa til Vestmannaeyja.
Það fylgir honum. Hins veg-
ar höldum við eftir nótunum og
notum þannig þær sömu hér um
borð og við höfum haft til þessa.“
mþh
Albert Sveinsson skipstjóri á Víkingi AK:
„Mér líst rosalega vel á þetta“
Albert á stjórnpalli Víkings AK á heimsiglingunni frá Istanbul til Akraness.
Ljósm. Þúfan/HB Grandi.
Albert Sveinsson skipstjóri glaðbeittur við skip sitt í Akraneshöfn þegar
móttökuathöfnin var haldin mánudaginn 21. desember. Ljósm. Myndsmiðjan.
Þessir reyndu sjómenn voru meðal þeirra sem fögnuðu komu Víkings AK-100.
F.v. Jóhannes Eyleifsson, Högni Reynisson og Guðmundur Skarphéðinsson.
Ljósm. Halli Bjarna.
Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri, Einar Kristinn Guðfinnsson forseti Alþingis,
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri á Akranesi og Kristján Loftsson stjórnarformaður.
Karlakórinn Svanir.
Horft yfir hluta þess hóps sem beið þess að skoða skipið.
2 heilsárshús til sölu, annað um 100 m2 en hitt um 107 m2.
Bæði í leigu með góðar leigutekjur. Einnig til sölu 2 eignalóðir
á góðum stað í Húsafelli. Örfáar lóðir eftir á svæðinu.
Upplýsingar í tölvupósti: husafellbustadir@gmail.com.
HÚSAFELL - GÓÐUR
FJÁRFESTINGARKOSTUR
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5