Skessuhorn - 30.12.2015, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 201522
Ljúfmetismarkaður var haldinn í Stykkishólmi laugardag-
inn 19. desember. Veitingamenn og matvælaframleiðend-
ur í Stykkishólmi og nágrenni vildu skapa saman jólastemn-
ingu og bjóða upp á nokkurs konar mini-útgáfu af jólalegum
réttum og drykkjum. Í húsnæði Rækjuness á Reitarveginum
var sannkallaður jólaandi. Þar var hægt að smakka hrein-
dýraborgara frá veitingahúsinu Skúrnum, Hákarlsverkunin
í Bjarnarhöfn bauð upp á hákarl og selspik og harðfiskverk-
unin Friðborg bauð upp á harðfisk. Sæþór á veitingahúsinu
Narfeyrarstofu bauð upp á reykt hangikjöt, hrossapylsur og
flatkökur sem voru bakaðar á staðnum með gasi. Veitinga-
húsið Sjávarpakkhúsið bauð upp á grafna gæs, grafna lúðu og
eplaköku svo eitthvað sé nefnt og frá veitinga- og gistiheim-
ilinu Rjúkanda var boðið upp á rjúkandi heitan jóladrykk og
smurt brauð með síld og fleira góðgæti.
Jón Torfi Arason söng nokkur lög fyrir viðstadda en hann
er meðlimur í hljómsveitinni Þrír, en sveitin er að gefa út
disk um þessar mundir. Það var þó nokkur hópur af gestum
sem kom og naut veitinga og samveru á aðventunni. Gerð-
ur var góður rómur að veitingunum sem allar smökkuðust
hver annarri betur og eiga þeir aðilar sem að þessu stóðu
hrós skilið fyrir framtakið. Myndirnar tala að öðru leyti sínu
máli.
sá
Jólastemning á ljúfmetismarkaði í Hólminum