Skessuhorn


Skessuhorn - 30.12.2015, Page 28

Skessuhorn - 30.12.2015, Page 28
gr af ik a. is Öll leyfi til reksturs Fiskmarkað- ar Snæfellsbæjar komu í hús síð- astliðinn mánudag og þá strax voru fyrstu fiskfarmarnir boðnir upp. Klukkan 14:00 á gamlársdag verður síðan formleg opnun á þessum nýja markaði. Þangað eru allir velkomn- ir að koma og skoða fiskmarkaðinn í húsnæði sem hefur verið gert upp og innréttað fyrir hann að Snoppu- vegi 1 á hafnarsvæðinu í Ólafsvík. Fiskmarkaður Snæfellsbæjar keypti húsnæðið þar og í haust og vetur hefur verið unnið hörðum höndum að endurbótum á því. „Við byrjuðum að selja í gær af bátum sem réru nú strax eftir jólahátíðina. Þeir fengu gott verð. Þorskur var seldur á frá 440 krón- um kílóið upp í 620 krónur. Sól- kolinn fór á 1.080 krónur, skarkol- inn á 379 krónur og steinbíturinn hélst yfir 300 krónum fyrir kílóið. Ég held við höfum verið með ein hæstu verð á landinu í gær. Þetta var svo sem ekki mikið, ein átta tonn í heildina af þremur bátum. Það voru dragnótarbáturinn Egill og svo línutrillurnar Brynja og Álf- ur. Allt bátar héðan úr Snæfellsbæ,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson fram- kvæmdastjóri hins nýstofnaða Fisk- markaðs Snæfellsbæjar. Friðbjörn segir að fiskmarkað- urinn muni taka við afla í öllum höfnum Snæfellsbæjar. „Við keyr- um bara aflann hingað frá Arnar- stapa og Rifi.“ Stofnun og opnun nýja markaðarins leggst vel í hann. „Þetta er rosalega gaman. Okkur er vel tekið. Allir sem eru í útgerð eru velkomnir að eiga hlut í markaðin- um. Það hefur bæst í hluthafahóp- inn síðan markaðurinn var stofn- aður og því fylgja fleiri bátar sem verða í viðskiptum hjá okkur,“ segir Friðbjörn. Auk hins nýja Fiskmark- aðar Snæfellsbæjar er Fiskmarkað- ur Íslands starfandi í Snæfellsbæ og ljóst að nú er komin upp samkeppni í uppboðsmálum á fiskafla þar. Þrír starfsmenn eru hjá Fiskmarkaði Snæfellsbæjar og segir Friðbjörn að verið sé að bæta þeim fjórða í hóp- inn. Þorsteinn Bárðarson er stjórn- arformaður Fiskmarkaðs Snæfells- bæjar. Meðstjórnendur eru Heiðar Magnússon og Sigurður Jónsson. Varamenn eru Brynja Mjöll Ólafs- dóttir, Bárður Guðmundsson og Ásbjörn Óttarsson. mþh Fiskmarkaður Snæfellsbæjar hefur byrjað starfsemi Þessi mynd var tekin í október þegar endurbætur stóðu yfir á húsnæði Fiskmark- aðs Snæfellsbæjar við Snoppuveg í Ólafsvík. Nú er þeim lokið og markaðurinn hefur hafið starfsemi. Ljósm. af. Fyrr í þessum mánuði var ráð- ið í stöðu aðstoðarskólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Fjórtán sóttu um stöð- una og var Dröfn Viðarsdóttir ráð- in. Hún er menntaður tölvufræð- ingur og kennari, auk þess að vera með viðbótarnám í stjórnun. Und- anfarin fjögur og hálft ár hefur hún starfað sem áfangastjóri skólans en þar áður kenndi hún í mörg ár tölvunarfræði, upplýsingatækni og stærðfræði, einnig við FVA. Dröfn tekur við sem aðstoðarskólameist- ari á áramótum. „Mér líst bara vel á nýja starf- ið og er bjartsýn á framtíðina,“ segir Dröfn í samtali við Skessu- horn. „Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og tek- ur að sér almenn stjórnunarstörf, svo sem að sjá um skólanámskrár, námsferla nemenda, áætlanagerð um kennslu og fleira,“ segir hún og kveðst búa vel að reynslu und- anfarinna ára sem áfangastjóri skólans. Framundan hjá Fjölbrauta- skóla Vesturlands segir Dröfn vera áframhaldandi vinna við að innleiða nýja námskrá fyrir fram- haldsskóla og stytta nám til stúd- entsprófs í þrjú ár. „Þeir nemend- ur sem hófu nám síðastliðið haust eru á þriggja ára brautum en hin- ir eru í eldra kerfi. Núna er ákveð- ið millibilsástand sem verður þar til eldri nemendurnir ljúka sinni skólagöngu. En við munum halda áfram að vinna að styttingu náms- ins og þróa brautirnar hjá okkur,“ segir Dröfn. Hún bætir því við að stytting stúdentsprófsins feli í sér ákveðnar breytingar, meðal annars í þrepaskiptingu áfanga. Aðspurð segir hún að sér lítist ágætlega á styttingu náms til stúd- entsprófs í þrjú ár, eins og kveðið er á um í nýrri aðalnámskrá fram- haldsskóla. „Mér líst ágætlega á það. Það á auðvitað eftir að koma í ljós hvernig gengur að útfæra það og hvernig það kemur til með að reynast. Við vonum auðvitað að þetta komi til með að ganga vel,“ segir Dröfn að lokum. kgk Dröfn Viðarsdóttir tekur við stöðu að- stoðarskólameistara FVA á áramótum. Ljósm. Myndsmiðjan. Dröfn Viðarsdóttir er nýr aðstoðarskólameistari FVA Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.