Fréttablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 21
ONEPL US 7 Magna ður sí mi á ótrúle gu ver ði 79.99 0 VERÐ ÁÐUR 99.99 0 AF ÖLLUM MINNISLY KLUM 50% Afsláttur AF ÖLLUM SSD DISKUM 20% Afsláttur 20% Afslát tur af öllum BLAST ! leikj atölvu m 2.792 VERÐ ÁÐUR 3.490 Af öllum snjallúrum frá Wonlex 20% AFSLÁTTUR JÓLAL EG TILB OÐ Sérva lin tilb oð í al lan nóvem ber eð a með an birgði r enda st SWITC H LITE Mögnu ð leikj atölva frá Ninten do í 3 litum 39.99 0 VERÐ ÁÐUR 42.99 0 GTX16 60 Zotac Gamin g GeFo rce skjáko rt 6GB GDDR 5 29.99 0 VERÐ ÁÐUR 39.99 0 7. nóvem ver 2019 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl TILBOÐ Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 SENDUM FRÍTT Um land allt allar vörur allt að 10 kg. FRÁBÆR TILBOÐ ÚT ALLAN NÓVEMBER Á rlega útskrifast hópur ung-menna með skerta starfsgetu af starfsbrautum framhalds- skóla. Þau koma full tilhlökkunar og vel undirbúin út í lífið en þar mætir þeim blákaldur veruleikinn. Sinnuleysi stjórnvalda. Fyrir réttu ári áttu sér stað umræður í þingsal um hvað stjórn- völd gætu gert til að standa undir væntingum þessa hóps og sam- félagsins um að tryggja úrræði og atvinnutækifæri . Þingmenn, þar á meðal félagsmálaráðherra, voru sammála um tvennt, það þyrfti hvata og aðgerðir frekar en orð. Stofnaður var verkefnahópur á vegum menntamálaráðuneytisins. Það átti að bregðast hratt við. Fjár- lög fyrir árið 2019 voru frágengin en tækifærið var sagt koma að ári. Verkefnahópurinn skilaði til- lögum sínum snemma í vor. Til þeirra tillagna hefur síðan ekkert spurst. Fjárlög fyrir árið 2020 hafa hins vegar verið lögð fram og þar sjást þess engin merki að til standi að setja fjármagn í að bæta stöðu þessa unga fólks. Þar er reyndar frekar bakslag með lækkun á fjár- veitingum til Fjölmenntar sem m.a. sér um rekstur símenntunarstöðvar fyrir fatlað fólk. Landsþing Þroskahjálpar álykt- aði nú í lok október sl. um skort á menntunar- og atvinnutækifærum fyrir ungt fatlað fólk sem útskrifast af starfsbrautum framhaldsskóla. Þar kemur fram að í ljósi þess að nefnd á vegum menntamálaráð- herra hefði farið yfir stöðu þess hóps og skilgreint fyrsta skrefið í að breyta þessum aðstæðum, vekti það undrun og vonbrigði að í fjárlögum fyrir árið 2020 væri ekki að finna þess merki að auka ætti möguleika þessara ungmenna til að fóta sig. Stjórnvöld hafa gefið undir fótinn með að aðgerðir væru fyrirhugaðar til að fjölga tækifærum í atvinnu- og menntamálum fyrir fötluð ung- menni og styrkja tengsl skóla við atvinnulífið til að auka atvinnu- tækifæri fatlaðs fólks. Þessi hópur á rétt á því að fá upp- lýsingar um afdrif tillagna verk- efnahópsins sem hafa legið fyrir lengi. Þessi hópur þarf að fá að vita hvernig fyrirhugaðri fjármögnun verður háttað, fjármögnun sem er ekki tryggð í fjárlögum næsta árs. Þessi hópur á heimtingu á stað- festingu frá ráðherrum mennta- mála og félagsmála á því að þau ætli að láta aðgerðir fylgja orðum. Er ráðherrunum bara sama? Hanna Katrín Friðriksson þingflokks­ formaður Viðreisnar Zonta International eru alþjóð-leg samtök sem vinna að bættri stöðu kvenna og jafnrétti. Sam- tökin telja yfir 29.000 meðlimi í 63 löndum. Zontameðlimir bjóða fram hæfni sína og tíma til að styðja við staðbundin verkefni á landsvísu og alþjóðleg þjónustuverkefni, auk þess að veita námsstyrki. Á Íslandi eru sex Zontaklúbbar starfandi og félagar eru um 160. Markmið Zonta er að bæta stöðu stúlkna og kvenna um allan heim. Zontahreyfingin er aðili að heims- markmiðum Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti og valdeflingu stúlkna og kvenna, auk Pekingsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þar er meðal annars kveðið á um að útrýma skuli ofbeldi gagnvart konum, þar sem ofbeldi standi í veginum fyrir jafnrétti, þróun og friði – og geri oft mannréttindi og grundvallarfrelsi kvenna að engu. Enn er langt í land að markmiðum hafi verið náð. Verkefni klúbbanna taka mið af grunnhugsun Zonta um að styðja konur til betra lífs og ef la þær í víðum skilningi. Af verkefnum á heimaslóð má nefna ýmiss konar stuðning við stofnanir og þjónustu sem sinna þolendum ofbeldis og baráttu gegn kynbundnu of beldi, auk verkefna sem styðja við aðlögun erlendra kvenna, verkefni sem styðja við menntun kvenna og efnalitlar ein- stæðar mæður. Meginverkefni íslensku klúbb- anna á afmælisárinu eru tvö. Alþjóðlega verkefnið er að hindra hjónabönd stúlkubarna en íslenska verkefnið er að færa Húsbygginga- sjóði Kvennaathvarfsins peninga- gjöf. Er þörf á stuðningi og baráttu gegn of beldi á Íslandi og í heiminum? Samkvæmt tölum frá UN Women eru konur og stúlkur 71% allra þol- enda mansals í heiminum auk þess sem þriðja hver kona er beitt kyn- bundu ofbeldi. Á Íslandi búa um 80.000 börn og verða um 13.000 þeirra fyrir líkam- legu eða kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur, samkvæmt nýjum tölum frá Rannsókn og greiningu. Hérlendis hefur ein af hverjum þremur konum orðið fyrir kyn- ferðislegri áreitni eða ofbeldi í starfi eða námi, samkvæmt fyrstu niður- stöðum rannsóknarinnar Áfalla- sögur kvenna. Þessi staða er algjör- lega óásættanleg. Afmælisfundur verður haldinn á morgun þann 8. nóvember í Veröld – húsi Vigdísar Finnbogadóttur og á Borgum við Háskólann á Akureyri kl. 15.30. Allir velkomnir. 100 ára afmæli Zonta Ingibjörg Auðunsdóttir S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 C -0 7 D 0 2 4 2 C -0 6 9 4 2 4 2 C -0 5 5 8 2 4 2 C -0 4 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.