Fréttablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 52
Snyrtivöruheimurinn er auðvitað ákveðinn frum-skógur fyrir leikmann enda nánast allt í boði en oft fáum við bestu ráðin frá kynsystrum okkar sem
eru búnar að prófa sig áfram og hafa
dottið niður á eitthvað geggjað. Því
spurðum við nokkrar glæsilegar
konur sem sannarlega vita sínu viti
þegar að útlitinu kemur, hvað þær
nota á varirnar. Við hinar getum
svo skoðað svörin og prófað okkur
áfram hvað hentar okkur, næst
þegar fjárfesta á í varalit eða glossi.
bjork@frettabladid.is
Það besta á
varirnar
Á alltaf góða farða
grunna og blýanta
Hafdís Helgudóttir Hinriksdóttir,
félagsfræðingur, áfallaþerapisti
og förðunarfræðingur, kann svo
sannarlega öll skrefin að fallegum
vörum.
„Ég er mjög gjörn á að fá vara-
þurrk, sérstaklega þegar það fer
að kólna úti svo það skiptir mig
miklu máli að eiga góða varasalva
sem næra varirnar og mýkja.“
Hvað nota þessar
glæsilegu konur á
varirnar til að líta
óaðfinnanlega út?
Svörin eru misjöfn
en varasalvar, gloss-
ar, blýantar, vara-
litir og farðagrunnur
koma við sögu.
Alveg ljósar og vel
nærðar varir
Andrea Magnúsdóttir fatahönn-
uður vill hafa varirnar alveg ljósar
og hefur fundið þrjá glossa sem
henta henni.
„Ég er oftast með varirnar alveg
ljósar og vil að varaliturinn sé
nærandi, pínu eins og varasalvi. Ég
notaði sama glossinn frá L’Oréal í
mörg ár eða þangað til hann hætti
í framleiðslu og hef verið í góðan
tíma að finna nýjan uppáhalds.
Þessir þrír eru allir í töskunni minni
núna og hafa allir þessa eiginleika
sem ég vil og eru ekki klístraðir.“
Oft ómáluð með
varalit eða gloss
Elísabet Gunnarsdóttir, eigandi
Trendnets, á það til að setja
aðeins á sig varalit eða gloss og
bíður spennt eftir jólatrendi hvers
árs, rauðu vörunum.
„Ég er ein þeirra sem nota oft
á tíðum eingöngu varalit eða
gloss þegar ég fer út úr húsi. Það
er á þeim dögum þegar ég hendi
hárinu upp í snúð og fer ómáluð
í notalegum gír frá heimilinu en
nota samt smá lit á varirnar. Finnst
það gera svo mikið. Nú er sá tími
árs að ég er alltaf með varasalva á
mér því kuldinn veldur varaþurrki,
örugglega margir sem tengja við
það. Það er líka sá tími árs að ég
fer að færa mig yfir í rauðari varir
og hlakka á sama tíma til jólanna,
rauðar varir í desember er allavega
trend sem fellur aldrei úr tísku.
Við erum alveg að koma þangað,
mikið finnst mér tíminn líða hratt!
Ég festist ekki beint við merki
þegar kemur að varalitum og er
alltaf að prófa eitthvað nýtt. En ef
mér líkar vel við eitthvað, kaupi ég
það aftur. Varasalvar aftur á móti
eru eitthvað sem ég kaupi alltaf
frá sömu merkjum og ég sé, þegar
ég fer að skoða málið, að ég er að
velja íslenskt, sem er ekki verra.“
Vill frískar og
fallegar varir
Steinunn Edda Steingrímsdóttir,
förðunarfræðingur og flugfreyja,
segist alltaf hafa verið hrifnari af
glossum en varalitum og er alltaf
með tvo í veskinu.
„Ég hef alltaf verið hrifnari af
glossum heldur en varalitum. Ég
fíla glansinn og næringuna sem
þeir gefa í leiðinni og finnst ég ein-
hvern veginn frísklegri með gloss
og varirnar fallegri. Það eru tveir
glossar sem ég á alltaf í veskinu og
nota nánast daglega saman eða
sitt á hvað.
Það er annars vegar Instant Light
Natural Lip Perfector glossinn í lit
númer 2 frá Clarins. Hann kaupi ég
oftast um borð í vélum Icelandair í
Saga Shop eða í Hagkaup.
Hinn glossinn sem ég elska
ofboðslega mikið er Lip injection
Extreme frá Too Faced. Hann er
alveg glær svo ég nota hann óspart
einan og sér eða undir aðra liti.
Þennan kaupi ég í snyrtivöru-
versluninni Sephora.“
NYX #this is
everything
varaolía
Olían veitir
æðislega áferð,
er nærandi
og fullkomin
þegar það fer
að kólna.
Maybelline 50
Baddest Beige
Glossinn er
með fallegan
beige tón og
veitir hinn full-
komna „nude“
tón.
Guerlain varalitur Rouge G Refill
nr 520
Þessi varalitur lítur út fyrir að
vera skær appelsínugulur en er
eiginlega alveg glær þegar hann
er kominn á. Ég féll alveg fyrir
umbúðunum eða hulstrinu en
þegar maður opnar það, opnast
lítill spegill. Þú velur þér umbúðir
í lit sem þig langar í og svo kaupir
maður áfyllingar á sama hulstur,
getur skipt um lit en átt alltaf
sama hulstur.
Jöklamús
Ef ég er virkilega slæm af vara-
þurrki þá nota ég þetta töfrakrem
frá Jöklamús sem er algjör nauð-
syn á veturnar á mitt heimili. Við
notum það öll í fjölskyldunni.
Karl Lagerfeld
x L’Oréal
Ég tryllist smá
yfir samstarfi
Loréal við
Karl Lagerfeld
heitinn. Þetta
er vörulína sem
hann vann með
snyrtivöruris-
anum rétt áður
en hann lést og
hún var að fara
í sölu núna um
mánaðamótin.
MAC varalitir
Ég á alltaf
matta vara-
liti frá MAC
í töskunni,
þennan sem þú
grípur í hvers-
dags allt árið
um kring. Ég
get mælt með
litunum Velvet
teddy eða
Brave, sem ég
á sjálf til þessa
stundina.
Farðagrunnur og blýantar
„Yfirleitt fara varalitir og glossar
með sterkum litum að „blæða“ hjá
mér og því er ótrúlega mikilvægt
að ég noti vörur sem halda vara-
litnum á þeim stað sem ég vil hafa
hann. Ég á alltaf góða „primera“
og blýanta sem vinna galdra í
þeim efnum. Ég nota Urban Decay
Ultimate Ozone gríðarlega mikið,
set hann yfir allar varirnar og læt
hann þorna. Því næst set ég þenn-
an í kringum varirnar, það skiptir
ótrúlega miklu máli að teygja á
húðinni til að slétta úr öllu, þannig
fer formúlan inn í allar fínar línur
og sléttir úr. Passa að setja út fyrir
varirnar til að loka vel.“
Varalita-
blýantar
„Því næst set
ég varalita-
blýant í þeim
lit sem ég kýs
hverju sinni,
ég er svaka-
lega hrifin af
blýöntunum
m.a. frá MAC,
Lancôme og
Charlotte Til-
bury.
Glossar
„Ég á alltaf nóg af glossum sem ég
nota bæði dagsdaglega og þegar
ég er að fara eitthvað fínna og eru
nokkrir í uppáhaldi.“
Varalitir
„Svo þegar
ég er í stuði
þá finnst mér
æðislegt að
setja á mig
varaliti, ýmist
frá nude litum
og alveg upp í
dökka berjaliti.
Hér eru þeir
sem ég elska
mest.“
Instant Light Natural Lip Perfector
varaglossar frá Clarins
Þessir glossar eru óheyrilega
mjúkir í túpu sem fer vel í veski
og vasa. Glossinn kreistist fram í
litinn svamp sem gerir ásetningu
ótrúlega þægilega. Ég er hrifin af lit
númer 2 því hann er svona hlutlaus
ljós litur sem ég heillast alltaf af.
Too Faced Lip
injection Ext-
reme
Glossinn er
svokallaður
„plumper“
sem ertir var-
irnar örlítið
svo þær virka
aðeins stærri
og þrýstnari.
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
0
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
B
-E
A
3
0
2
4
2
B
-E
8
F
4
2
4
2
B
-E
7
B
8
2
4
2
B
-E
6
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K