Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.11.2019, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 07.11.2019, Qupperneq 52
Snyrtivöruheimurinn er auðvitað ákveðinn frum-skógur fyrir leikmann enda nánast allt í boði en oft fáum við bestu ráðin frá kynsystrum okkar sem eru búnar að prófa sig áfram og hafa dottið niður á eitthvað geggjað. Því spurðum við nokkrar glæsilegar konur sem sannarlega vita sínu viti þegar að útlitinu kemur, hvað þær nota á varirnar. Við hinar getum svo skoðað svörin og prófað okkur áfram hvað hentar okkur, næst þegar fjárfesta á í varalit eða glossi. bjork@frettabladid.is Það besta á varirnar Á alltaf góða farða­ grunna og blýanta Hafdís Helgudóttir Hinriksdóttir, félagsfræðingur, áfallaþerapisti og förðunarfræðingur, kann svo sannarlega öll skrefin að fallegum vörum. „Ég er mjög gjörn á að fá vara- þurrk, sérstaklega þegar það fer að kólna úti svo það skiptir mig miklu máli að eiga góða varasalva sem næra varirnar og mýkja.“ Hvað nota þessar glæsilegu konur á varirnar til að líta óaðfinnanlega út? Svörin eru misjöfn en varasalvar, gloss- ar, blýantar, vara- litir og farðagrunnur koma við sögu. Alveg ljósar og vel nærðar varir Andrea Magnúsdóttir fatahönn- uður vill hafa varirnar alveg ljósar og hefur fundið þrjá glossa sem henta henni. „Ég er oftast með varirnar alveg ljósar og vil að varaliturinn sé nærandi, pínu eins og varasalvi. Ég notaði sama glossinn frá L’Oréal í mörg ár eða þangað til hann hætti í framleiðslu og hef verið í góðan tíma að finna nýjan uppáhalds. Þessir þrír eru allir í töskunni minni núna og hafa allir þessa eiginleika sem ég vil og eru ekki klístraðir.“ Oft ómáluð með varalit eða gloss Elísabet Gunnarsdóttir, eigandi Trendnets, á það til að setja aðeins á sig varalit eða gloss og bíður spennt eftir jólatrendi hvers árs, rauðu vörunum. „Ég er ein þeirra sem nota oft á tíðum eingöngu varalit eða gloss þegar ég fer út úr húsi. Það er á þeim dögum þegar ég hendi hárinu upp í snúð og fer ómáluð í notalegum gír frá heimilinu en nota samt smá lit á varirnar. Finnst það gera svo mikið. Nú er sá tími árs að ég er alltaf með varasalva á mér því kuldinn veldur varaþurrki, örugglega margir sem tengja við það. Það er líka sá tími árs að ég fer að færa mig yfir í rauðari varir og hlakka á sama tíma til jólanna, rauðar varir í desember er allavega trend sem fellur aldrei úr tísku. Við erum alveg að koma þangað, mikið finnst mér tíminn líða hratt! Ég festist ekki beint við merki þegar kemur að varalitum og er alltaf að prófa eitthvað nýtt. En ef mér líkar vel við eitthvað, kaupi ég það aftur. Varasalvar aftur á móti eru eitthvað sem ég kaupi alltaf frá sömu merkjum og ég sé, þegar ég fer að skoða málið, að ég er að velja íslenskt, sem er ekki verra.“ Vill frískar og fallegar varir Steinunn Edda Steingrímsdóttir, förðunarfræðingur og flugfreyja, segist alltaf hafa verið hrifnari af glossum en varalitum og er alltaf með tvo í veskinu. „Ég hef alltaf verið hrifnari af glossum heldur en varalitum. Ég fíla glansinn og næringuna sem þeir gefa í leiðinni og finnst ég ein- hvern veginn frísklegri með gloss og varirnar fallegri. Það eru tveir glossar sem ég á alltaf í veskinu og nota nánast daglega saman eða sitt á hvað. Það er annars vegar Instant Light Natural Lip Perfector glossinn í lit númer 2 frá Clarins. Hann kaupi ég oftast um borð í vélum Icelandair í Saga Shop eða í Hagkaup. Hinn glossinn sem ég elska ofboðslega mikið er Lip injection Extreme frá Too Faced. Hann er alveg glær svo ég nota hann óspart einan og sér eða undir aðra liti. Þennan kaupi ég í snyrtivöru- versluninni Sephora.“ NYX #this is everything varaolía Olían veitir æðislega áferð, er nærandi og fullkomin þegar það fer að kólna. Maybelline 50 Baddest Beige Glossinn er með fallegan beige tón og veitir hinn full- komna „nude“ tón. Guerlain varalitur Rouge G Refill nr 520 Þessi varalitur lítur út fyrir að vera skær appelsínugulur en er eiginlega alveg glær þegar hann er kominn á. Ég féll alveg fyrir umbúðunum eða hulstrinu en þegar maður opnar það, opnast lítill spegill. Þú velur þér umbúðir í lit sem þig langar í og svo kaupir maður áfyllingar á sama hulstur, getur skipt um lit en átt alltaf sama hulstur. Jöklamús Ef ég er virkilega slæm af vara- þurrki þá nota ég þetta töfrakrem frá Jöklamús sem er algjör nauð- syn á veturnar á mitt heimili. Við notum það öll í fjölskyldunni. Karl Lagerfeld x L’Oréal Ég tryllist smá yfir samstarfi Loréal við Karl Lagerfeld heitinn. Þetta er vörulína sem hann vann með snyrtivöruris- anum rétt áður en hann lést og hún var að fara í sölu núna um mánaðamótin. MAC varalitir Ég á alltaf matta vara- liti frá MAC í töskunni, þennan sem þú grípur í hvers- dags allt árið um kring. Ég get mælt með litunum Velvet teddy eða Brave, sem ég á sjálf til þessa stundina. Farðagrunnur og blýantar „Yfirleitt fara varalitir og glossar með sterkum litum að „blæða“ hjá mér og því er ótrúlega mikilvægt að ég noti vörur sem halda vara- litnum á þeim stað sem ég vil hafa hann. Ég á alltaf góða „primera“ og blýanta sem vinna galdra í þeim efnum. Ég nota Urban Decay Ultimate Ozone gríðarlega mikið, set hann yfir allar varirnar og læt hann þorna. Því næst set ég þenn- an í kringum varirnar, það skiptir ótrúlega miklu máli að teygja á húðinni til að slétta úr öllu, þannig fer formúlan inn í allar fínar línur og sléttir úr. Passa að setja út fyrir varirnar til að loka vel.“ Varalita- blýantar „Því næst set ég varalita- blýant í þeim lit sem ég kýs hverju sinni, ég er svaka- lega hrifin af blýöntunum m.a. frá MAC, Lancôme og Charlotte Til- bury. Glossar „Ég á alltaf nóg af glossum sem ég nota bæði dagsdaglega og þegar ég er að fara eitthvað fínna og eru nokkrir í uppáhaldi.“ Varalitir „Svo þegar ég er í stuði þá finnst mér æðislegt að setja á mig varaliti, ýmist frá nude litum og alveg upp í dökka berjaliti. Hér eru þeir sem ég elska mest.“ Instant Light Natural Lip Perfector varaglossar frá Clarins Þessir glossar eru óheyrilega mjúkir í túpu sem fer vel í veski og vasa. Glossinn kreistist fram í litinn svamp sem gerir ásetningu ótrúlega þægilega. Ég er hrifin af lit númer 2 því hann er svona hlutlaus ljós litur sem ég heillast alltaf af. Too Faced Lip injection Ext- reme Glossinn er svokallaður „plumper“ sem ertir var- irnar örlítið svo þær virka aðeins stærri og þrýstnari. 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R40 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 0 7 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :0 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 2 B -E A 3 0 2 4 2 B -E 8 F 4 2 4 2 B -E 7 B 8 2 4 2 B -E 6 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.