Fréttablaðið - 07.11.2019, Blaðsíða 44
BÍLAR
Fiat Chrysler Automobiles eða FCA hefur verið í fréttum að undanförnu vegna áætlaðs
samruna samsteypunnar við PSA.
FCA tilkynnti við uppgjör þriðja
ársfjórðungs að samsteypan hyggist
leggja framleiðslu smábíla á hilluna
og það gæti gerst mjög fljótlega. Þess
í stað á að leggja áherslu á B-flokk
bíla sem eru í stærðarflokki eins og
Fiat Punto eða Ford Fiesta.
Fleiri framleiðendur á sömu línu
Aðrir bílaframleiðendur hafa gert
það sama að undanförnu og nægir
að nefna merki eins og Ford og
Opel. Volkswagen Group er einn-
ig að íhuga að hætta framleiðslu á
VW Up, Seat Mii og Skoda Citigo.
Ástæðan er hærri
þróunarkostn-
aður veg na
s t r a n g a r i
m e n g u n -
arreglna,
en þ að
þýðir aftur á móti að hagnaðurinn
vegna framleiðslu smábíla er ekki
nægur til að standa undir fram-
leiðslu þeirra. Reglur, sem eiga að
tryggja minni mengun, eru því að
hafa þau áhrif að minnstu bílarnir
sem skilja eftir sig minna kolefnis-
spor eru á leið út af markaðinum.
Öfugsnúið, ekki satt?
Þrátt fyrir að vera leiðandi á
markaði smábíla er áhersla Fiat
að færast af A-f lokki bíla yfir á B-
flokk. Þess vegna er ekki ólíklegt að
nýr Fiat Punto sé á teikniborðinu,
sérstaklega þegar samruni FCA og
PSA er genginn í gegn. Þá fær Fiat
aðgang að undirvagni Peugeot 208
og Opel Corsa sem gefur Fiat mögu-
leika á að koma með raf- og tvinnút-
gáfur. Fiat mun þó ætla að halda í
Fiat 500 enn um sinn, en
rafútgáfa hans er áætluð
á næsta ári. Fiat 500 er
óhemju vinsæll en
105.000 eintök
voru seld í
Ev rópu á
fyrsta árs-
fjórðungi
2 0 1 9 .
Sa mt er
núverandi
k y n s l ó ð
orðin sjö ára.
Fiat íhugar að leggja
smábíla á hilluna
Rafútgáfa
Fiat 500
er líkleg til
að haldast í fram-
leiðslu áfram þótt aðrir
smábílar Fiat gætu verið á
leið út af teikniborðinu.
Það er ekki á hverjum degi sem nýr útfararbíll kemur til landsins en á dögunum kom
nýr Volvo V90 bíll fyrir Útfararstofu
kirkjugarðanna. Hingað til höfum
við verið vön að sjá ameríska útfar-
arbíla og því lék okkur forvitni á að
vita hvers vegna Volvo hefði orðið
fyrir valinu.
Mun umhverfisvænni bíll
„Hann varð fyrir valinu vegna gæða-
og umhverfissjónarmiða fyrst og
fremst,“ sagði Elín Sigrún Jóns-
dóttir hjá Útfararstofunni. „Hann
er mun umhverfisvænni en hinir
hefðbundnu amerísku líkbílar, þar
er ólíku saman að jafna. Við erum
í miklu norrænu samstarfi og koll-
egar okkar hafa mjög góða reynslu
af þessum bílum. Bílarnir eru sem
tákn um gæði, metnað og hina nor-
rænu áherslu okkar,“ sagði Elín.
Það var ekki síst fyrir fallega
hönnun og glæsilegan glugga sem
stjórnendur Útfararstofunnar
hrifust af þessum bíl. „Við gerðum
okkur grein fyrir mikilvægi þess
að að kistan og blómin nytu sín
á leið frá kirkju í kirkjugarð. Það
er hluti af því að vinna með það
tabú sem dauðinn er í okkar sam-
félagi,“ segir Elín enn fremur.
Þetta er þó ekki fyrsti Volvo-líkbíll-
inn því líkbíll frá merkinu kom til
landsins fyrir um 50 árum. Bíllinn
er ríkulega búinn á allan hátt og er
pláss fyrir tvær líkkistur í honum.
Að sögn Elínar koma einstöku
sinnum óskir um tiltekinn líkbíl. „Í
síðustu viku sagði kona mér að hún
hefði þráð Volvo allt sitt líf, og að
hún vildi fá að fara sína síðustu ferð
í Volvo, þannig að segja má að fyrsta
pöntunin sé komin,“ segir Elín.
Fyrsti Volvo líkbíllinn í fimmtíu ár og
fyrsta pöntunin er þegar komin
Elín Sigrún Jónsdóttir hjá Útfararstofu Kirkjugarðanna við nýja líkbílinn.
VOLVO V90 VARÐ FYRIR
VALINU VEGNA UMHVERFIS-
SJÓNARMIÐA EN HANN ER MUN
BETRI FYRIR UMHVERFIÐ EN
HINIR HEFÐBUNDNU AMERÍSKU
LÍKBÍLAR.
KTM 1290 SUPER DUKE R ER
HINS VEGAR AFLMIKIÐ SPORT-
HJÓL SEM KEPPA Á VIÐ ÞAU
KRAFTMESTU Á MARKAÐI Í
DAG, HJÓL EINS OG KAWASAKI Z
H2 OG DUCATI STREETFIGHTER
V4
Stærsta mótorhjólasýning ársins er EICMA-sýningin í Mílanó en hún var opnuð á þriðjudaginn og stendur til 11. nóvember. Flestir framleiðendur mótorhjóla
nota þessa sýningu til að frumsýna
nýjar gerðir hjóla og sýningin í ár er
engin undantekning.
Honda CBR 1000RR-R er komið
á sterana sem það vantaði með
nýrri vél sem skilar 214 hestöflum
og 113 newtonmetra togi, um leið
og hún uppfyllir Euro5-mengunar-
staðalinn. Auk þess fær það upp-
færða aksturstölvu og hljóðkút úr
títaníum svo eitthvað sé nefnt. Útlit
CB1000R er endurhannað og vélin
hefur fengið aðeins meira af l auk
þess sem hjólið er 12 kg léttara en
áður. Loks er CB4X-tilraunahjólið
sem hannað er af Valerio Aiello
eins og framtíðarútgáfa af Katana-
hjólinu, með pústkerfi sem breiðir
úr sér eins og vængur með hlið
hjólsins.
Mikið að gerast hjá KTM
Meðal frumsýninga hjá KTM-
merkinu voru hjól eins og KTM 390
og 1290 Super Duke R. KTM 390
Adventure er eins og nafnið gefur til
kynna, ferðahjól fyrir ævintýrin og
hér í minni og viðráðanlegri útgáfu
en flest þau hjól sem tilheyra þess-
um flokki. KTM 1290 Super Duke R
er hins vegar aflmikið sporthjól sem
keppir við þau kraftmestu á mark-
aði í dag, hjól eins og Kawasaki Z H2
og Ducati Streetfighter V4. KTM 890
Duke R er svo þriðja nýja hjólið frá
austurríska framleiðandanum og er
minni útgáfa 1290 hjólsins. Hliðar-
sjálf KTM er Husqvarna en Norden
901 er tilraunahjól eins og er. Með
þessum nýja mótor er líklegt að
það fari í framleiðslu ásamt nýjum
gerðum Svartpilen og Vitpilen.
Ný ferðahjól frá Japan
Eitt af þeim hjólum sem beðið
hefur verið eftir er nýtt Yamaha
Tracer 700. Það er ferðahjól með
framúrstefnulegu útliti og er búið
698 rsm-vélinni úr MT-07-hjólinu,
sem fengið hefur aðeins meira af l
með endurhannaðri innspýtingu.
Yamaha frumsýnir einnig TMAX
560, MT-125, MT-03 og FJR 1300AS.
Hjá Kawasaki kemur ný útgáfa
Z650 með vél, sem uppfyllir Euro5-
mengunarstaðalinn, og léttri and-
litslyftingu. Kawasaki Z900 fær yfir-
halningu og fullt sett af tækni eins
og spólvörn, akstursstillingar, blá-
tannarbúnað og díóðuljósapakka.
Loks fær Ninja 1000SX-sportferða-
hjólið nokkra andlitslyftingu ásamt
nýju sæti og mælaborði.
Suzuki V-Strom 1050XT er ný
útgáfa V-Strom-hjólsins sem sækir
útlit sitt til DR Big-hjólsins frá
níunda áratugnum. Vélin hefur
verið endurhönnuð og er aflmeiri
en áður og uppfyllir Euro5.
Tilraunahjól fara í framleiðslu
BMW Z 1000 XR-sportferðahjólið
hefur fengið alveg nýja hönnun og
er nú 10 kg léttara en áður og einnig
aflmeira, en það skilar nú 165 hest-
öflum. Það fær nýtt mælaborð í lit,
nýtt pústkerfi og endurhannaða
fjöðrun.
BMW R 18/2 tilraunahjólið er
komið í sinni annarri útgáfu sem
þýðir vonandi að það sé stutt í fram-
leiðslu þess. Boxer-vél þess er 1.800
rsm og útlit hjólsins er af gamla
skólanum með ryðfríu pústkerfi
og steyptum felgum. Aprilia RS 660
er nýtt millistærðarhjól með nýju
tveggja strokka vélinni, en það var
sýnt sem tilraunahjól í fyrra. Hjólið
er aðeins 169 kg en nýja vélin skilar
100 hestöf lum sem gerir þetta að
spennandi hjóli. Auk þess verður
hjólið búið fimm akstursstillingum
auk nýs upplýsingaskjás með blá-
tannarbúnaði.
Mikið um frumsýningar á EICMA
Nýja R18/2 tilraunahjólið frá BMW vakti verðskuldaða athygli enda sækir
það í hönnun af gamla skólanum sem einmitt er svo vinsæl í dag.
KTM 390 Adventure er ferðahjól af minni gerðinni sem hentar til létts torfæruaksturs og er einnig gott innanbæjar.
EICMA mótorhjóla-
sýningin í Mílanó er
stærsti viðburður
í mótorhjólaheim-
inum ár hvert og þar
velja framleiðendur
helst að frumsýna
nýjustu afurðir sínar.
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
7
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:0
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
2
B
-D
B
6
0
2
4
2
B
-D
A
2
4
2
4
2
B
-D
8
E
8
2
4
2
B
-D
7
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K